Morgunblaðið - 14.10.2009, Page 21

Morgunblaðið - 14.10.2009, Page 21
Minningar 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2009 Samúðarkveðjur sendum við allri stórfjölskyldu Eddu, sérstaklega Grethe, aldraðri móður hennar, sem í gegnum allt hefur sýnt hefur ótrúlegt þrek. Edda elskaði ykkur öll svo mik- ið. Elsku Pétur, það var ekki hægt að hugsa og hlúa betur að henni Eddu en þú gerðir í gegnum þessi erfiðu veik- indi. Þú varst alltaf til staðar. Við vit- um að Edda var þér allt. Hugur okkar er hjá þér og við samhryggjumst inni- lega. Megi guð vera með ykkur öllum í sorginni. Edda og Hildur. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn, og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (Valdimar Briem.) Edda Hjaltested starfaði sem for- stöðumaður fyrir félagsmiðstöð aldr- aðra við Lindargötu frá árinu 1994 þegar Reykjavíkurborg opnaði þar félagsmiðstöð. Fyrir nokkrum mán- uðum gerðu veikindi vart við sig hjá Eddu. Þrátt fyrir að við samstarfs- fólkið vissum að veikindi Eddu væru alvarleg gerðum við ráð fyrir því að Edda kæmi aftur til starfa þegar hún hefði hlotið meðferð við sínum veik- indum. En sjúkdómurinn hafði betur og Edda hefur nú kvatt fyrir aldur fram. Ég vil þakka Eddu fyrir gott starf í þágu velferðarþjónustunnar í Reykjavík öll þessi ár og kveð hana með virðingu. Fjölskyldu Eddu sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur. Stella Kr. Víðisdóttir. Það er hljótt yfir samfélaginu okk- ar á Sólheimum í Grímsnesi þegar við horfum á eftir félaga okkar, vini og fyrirmynd, henni Eddu Hjaltested. Það er stundum með eindæmum hvað einstaklingar geta skilið eftir mikil og góð áhrif, uppörvað og laðað fram það sem er gott. Í því góða samfélagi sem er á Sól- heimum, hefur tekist að láta alla njóta sín sem jafningja. Þegar litið er yfir farinn veg er ljóst að því markmiði hefði ekki verið hægt að ná, nema með fórnfýsi og kærleika að leiðar- ljósi. Með þeim minningum er hún Edda alltaf í miðri atburðarás. Alltaf tilbúin, fylgdist með öllu, þekkti hvern einstakling, mestur vinur þeirra sem mest þurftu á því að halda, – og þá er nokkuð sagt. Hún bar það góða fyrir brjósti, hafði mikinn og vakandi áhuga. Í öllum framkvæmda- málum og baráttumálum stóð hún traust við hlið Péturs, manns síns, foringja okkar, alltaf hvetjandi og umhyggjusöm. Það hafði alltaf mikil áhrif að mæta glaðværðinni hennar Eddu og fá að fljúga með. Starf Eddu fyrir Sólheima er ómet- anlegt. Hún setti meiri og traustari svip á umhverfið og starfið en flestir aðrir. Þar höfum við í söknuðinum mikið þakklæti í huga. Á liðnu sumri var árleg hátíð á Sólheimum. Að guðs- þjónustu lokinni var afhjúpuð stytta, engill vonarinnar, sem var gefin af er- lendum samherjum, tákn um sam- ábyrgð manna, tengsl byggðarlagsins við hugsjónahópa víða um lönd og um von lífsins, – trúna á hið eilífa sem er í hendi Guðs. Í öllu því hafði Edda unn- ið mikil störf. Hún var oft burðarás við hin miklu alþjóðlegu tengsl Sól- heima. Það var einstök stund þegar hún Edda afhjúpaði minnisvarðann og flutti skörulegt ávarp. Við vissum það öll, vinir hennar, hvernig komið var heilsu hennar og hvert stefndi. En í reisnarlegri framkomu hennar varð ekki komið auga á það. Þannig verður þegar lifað er í lífsvon, sem ein dugir við aðstæður sem eru erfiðastar. Okkur setur hljóð í samfélaginu á Sólheimum að horfa á eftir Eddu Hjaltested. En við eigum trúna, von- ina um eilíft líf fyrir upprisu Jesú Krists. Þess vegna erum við líka þakklát. Við biðjum fyrir Pétri og fjöl- skyldu hans. Guð blessi minningu góðrar konu, einstaks vinar. F.h. stjórnar Sólheima, Valgeir Ástráðsson, varaformaður. Það var hnípinn hópur starfsmanna Félagsmiðstöðvarinnar við Vitatorg sem kom saman í fundarherberginu mánudagsmorguninn 5. október sl. Edda Hjaltested, hún „Edda okkar“ eins og hún var jafnan kölluð meðal okkar, forstöðumaður félagsmið- stöðvarinnar, hafði látist aðfaranótt sunnudagsins 4. október eftir tólf mánaða baráttu við illvígan sjúkdóm. Sorg og söknuður ríkti í hjörtum alls starfsfólks af mörgu þjóðerni og á ýmsum aldri sem átt hafði mislöng kynni við hana. Sumir í áratugi, aðrir skemur. Stutt bæna- og minningar- stund, upprifjun ýmissa atvika frá samskiptum við Eddu og ýmissa ein- kenna hennar einstöku persónu léttu nokkuð á sálarkreppum. Edda var glæsileg kona, greind, smekkvís og kraftmikil, jafnvel svo- lítill „töffari“, og einstaklega úrræða- góð. Sannkallaður kvenskörungur. Það gustaði af henni hvar sem hún fór. Hún hafði ríkt skap, var föst fyrir og ákveðin en ávallt tilbúin til að ræða málin af áhuga og sanngirni þótt aðilar væru henni ekki alltaf sammála. Áhuginn fyrir starfinu, velferð fé- lagsmiðstöðvarinnar, íbúa þjónustu- íbúðanna og starfsmanna var mjög áberandi í fari hennar. Hún var frá- bær yfirmaður, samstarfsmaður, fé- lagi og vinur. Það var ávallt hægt að leita til hennar með persónuleg eða starfstengd vandamál. Hún hafði alltaf tíma til að hlusta og gat oftast gefið góð ráð og leysti marga erfiða hnúta. Það lýsir Eddu vel að þegar hún kom til okkar daginn sem sjúkdóms- greiningin lá fyrir sagði hún: „Verum ekki með neitt væl, ég hef bara fengið nýtt verkefni til þess að takast á við og klára.“ Við kveðjum nú yfirmann, samstarfsmann og vinkonu okkar með þakklæti í huga, þakklæti fyrir að fá að starfa með henni og kynnast kostum hennar. Eddu verður sárt saknað á okkar vinnustað og víðar. Ættingjum hennar og öðrum ástvin- um sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum Guð að styðja þau öll í sorgum sínum. F.h. starfsmanna Félags- miðstöðvarinnar við Vitatorg, Pétur H. Björnsson. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta … Þetta voru orðin sem komu upp í hugann þegar fréttin barst norður um að baráttunni væri lokið. Og um leið flugu myndir minninganna yfir hugarhimininn bjartar og fagrar. Flestar myndirnar voru frá Sólheim- um þar sem Edda og Pétur hafa skap- að þá undraparadís, sem Sólheimar hafa orðið nú hin síðari ár. Myndir af sólbjörtu brosi þar sem innileiki og gleði yfir því að hittast skein úr tindr- andi augunum. Myndirnar voru víða að bæði erlendis og hérlendis, myndir frá því þegar þau komu í heimsókn til okkar til Bethel í ársbyrjun 1999, frá Lübeck og Kaupmannahöfn þar sem hún skartaði sinni perudönsku og frá ferð okkar í fyrra um Skotlandsheið- ar. Reisuleg er líka myndin af henni á vinnustað sínum á Vitatorgi þar sem hún hlúði að öllu með sínum einstaka kærleika. Innilegustu og einlægustu myndirnar sem við hjónin geymum í hjarta okkar eru frá heimsóknum þeirra hingað norður, frá stundum sem við höfum átt hér á Möðruvöllum og í sumarbústað okkar í Vaglaskógi. Aldrei var verið að ræða saman á yf- irborðskenndan hátt. Aldrei innan- tómt hjal. Edda vildi kafa djúpt ofan í öll mál og sýndi þeim sem hún talaði við áhuga. Henni var svo annt um hag barna okkar og barnabarns að það var næstum eins og þau væru hennar eigin fjölskylda. Eftir Skotlandsferðina í fyrra veiktist Edda af þeim sjúkdómi sem er búinn að marka líf hennar allt í heilt ár. Að fylgjast með baráttu hennar og trausti Péturs við hlið hennar er lærdómsríkt fyrir alla sem hafa áhuga á að lifa lífinu. Fyrirbænir streymdu til þeirra alls staðar að af landinu og þau voru svo móttækileg að bænirnar unnu sitt verk frá degi til dags og gerðu baráttuna bærilegri. Alltaf þegar stund var milli stríða var hún komin í paradísina sína fyrir austan og naut þar kyrrðar og vin- áttu. Þar áttum við sólríka stund sam- an í sumar. Þá mynd af Eddu munum við geyma um ókomin ár. Við þökkum Eddu samfylgdina og biðjum Pétri, sonum þeirra, tengda- dætrum og barnabörnum blessunar Guðs um ókomna tíma. Solveig Lára og Gylfi, Möðruvöllum.  Fleiri minningargreinar um Eddu Kristínu Aaris Hjaltested bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.                          ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og ástvinur, HJALTI GESTSSON ráðunautur og fyrrv. framkvæmdastjóri, Reynivöllum 10, Selfossi, sem lést þriðjudaginn 6. október, verður jarð- sunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 17. október kl. 13.30. Margrét Hjaltadóttir, Kristján H. Guðmundsson, Ólafur Hjaltason, Steinunn Ingvarsdóttir, Unnur Hjaltadóttir, Friðrik Páll Jónsson, Gestur Hjaltason, Sólveig R. Kristinsdóttir, Ástríður H. Andersen og fjölskyldur. ✝ Ástkær sambýliskona, móðir, tengdamóðir, amma, systir og mágkona, GUÐRÚN LÁRA KJARTANSDÓTTIR, Heiðarhjalla 29, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 8. október. Útförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 16. október kl. 13.00. Bjarni Sólbergsson, Jón Kjartan Kristinsson, Elsa Guðrún Jóhannesdóttir, Arnar Jónsson, Karítas Jónsdóttir, Kjartan Kjartansson, Halla Guðmundsdóttir, Kristín Kjartansdóttir. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUNNAR JAKOBSSON, Lerkilundi 18, Akureyri, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánudaginn 12. október. Útförin verður auglýst síðar. Guðrún Helgadóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. ✝ Elskulegur afi okkar, EINAR SIGVALDI BJARNASON, Höfðagötu 4, Stykkishólmi, lést á heimili sínu laugardaginn 10. október. Útförin fer fram frá Stykkishólmskirkju föstudaginn 16. október kl. 14.00. Linda Bergmannsdóttir, Brynhildur Inga Níelsdóttir, Einar Bergmann Daðason. ✝ Kær bróðir minn, HAUKUR INDRIÐASON, Reynimel 82, lést sunnudaginn 11. október. Fyrir hönd aðstandenda, Þórarinn Indriðason. ✝ Kær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR HAUKUR SIGURÐSSON kennari og vegamælingamaður, Eyktarási 21, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 12. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Guðrún Kristinsdóttir, Sigurður Þorri Sigurðsson, Guðrún Elva Arngrímsdóttir, Kristinn Rúnar Sigurðsson, Sigurveig Grímsdóttir, Trausti Sigurðsson, Ingibjörg Jónsdóttir og afabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTINN TORFASON vörubifreiðarstjóri, Miðvangi 23, Hafnarfirði, lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði fimmtudaginn 1. október. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegar þakkir til starfsfólks heimaþjónustu og St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Þökkum auðsýnda samúð. Sigurbjörg Vigfúsdóttir, Torfi Kristinn Kristinsson, Helga Eyberg Ketilsdóttir, Sigurður Kristinsson, Ingileif Kristinsdóttir, Sigurður Þórir Eggertsson, Hallgerður Kristinsdóttir, Símon Már Ólafsson, Vigfús Kristinsson, Kristinn Kristinsson, Stefanía Vilhjálmsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.