Morgunblaðið - 14.10.2009, Side 31

Morgunblaðið - 14.10.2009, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2009 MIKIÐ var látið með þessa bók á Spáni þegar hún kom út fyrir nokkr- um árum; seldist met- sölu og fékk fína dóma. Síðan var henni snarað á ensku, en þá ber svo við að erfitt er að átta sig á hvað það var sem svo hreif spænska lesendur. Bókin segir frá ónytjungnum Pablo „Baloo“ Miralles, en svo vill til að faðir hans er milljóner og bróðirinn vellauðugur viðskiptajöfur. Baloo er hlussufeitur, eins og nafnið gef- ur til kynna, kafloðinn, óþrifalegur dópisti, fyllibytta og nautnaseggur sem er að sama skapi með fremstu heimspekihugsuðum, sannkallað kvennagull og útsjónarsamur snillingur. Þeir sem trúa þessu geta eiginlega trúað hverju sem er og geta því væntanlega skemmt sér við lestur þessarar bókar, en aðrir eiga væntanlega erfitt með að fylgja söguhetjunni sveru þar sem hún étur, drekkur og ríður, dag eftir dag eftir dag (eftir lestur bókarinnar var ég eiginlega búinn að fá ógeð á áfengi, því ef Baloo er ekki að tala um vín þá er hann að drekka það). Söguþráðurinn er ævintýralegur í bók- inni, eiginlega gróteskur, og snýst meðal annars um eldgamalt leynifélag, einskonar heimspekileg frímúrarasamtök nautna- seggja, en það tekur höfundinn svo langan tíma að koma sér að efninu að fléttan varð eiginlega aukaatriði. Tusset kemst þó víða vel að orði og sumt í henni er skemmtilegt fyrir þá sem fara títt til Barcelona, en þó svo lítið að það borgar sig ekki að þræla sér í gegnum 500 síður af fylleríi og kvennafari til að finna það. Spænskur saurlífisseggur The Best Thing That Can Happen to a Croissant eftir Pablo Tusset. Canongate gefur út, 496 bls. Árni Matthíasson ERLENDAR BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. The Girl Who Kicked the Hornet’s Nest - Stieg Larsson 2. The Girl Who Played With Fire - Stieg Larsson 3. The Lost Symbol - Dan Brown 4. The Private Patient - P.D. James 5. Nation - Terry Pratchett 6. Meltdown Iceland - Roger Boyes 7. Cross Country - James Patter- son 8. The Girl with the Dragon Tattoo - Stieg Larsson 9. Why Iceland - Ásgeir Jónsson 10. Breaking Dawn - Stephenie Meyer Eymundsson 1. The Lost Symbol - Dan Brown 2. An Echo in the Bone - by Diana Gabaldon 3. Rough Country - John Sandford 4. The Last Song - Nicholas Sparks 5. The Help - Kathryn Stockett 6. Her Fearful Symmetry - Audrey Niffenegger 7. The Perfect Christmas - Debbie Macomber 8. South of Broad - Pat Conroy 9. Alex Cross’s ‘Trial -James Patterson og Richard DiLallo. 10. Hothouse Orchid - Stuart Woods. The New York Times 1. The Time Traveler’s Wife - Audrey Niffenegger 2. Heart and Soul - Maeve Binchy 3. A Most Wanted Man - John Le Carre 4. The Lost Symbol - Dan Brown 5. The Host - Stephenie Meyer 6. The Other Hand - Chris Cleave 7. My Sister’s Keeper - Jodi Picoult 8. American Wife - Curtis Sittenfeld 9.The Secret Scripture - Sebastian Barry 10. The Piano Teacher - Janice Y. K. Lee Waterstone’s Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is TÓNLISTARMAÐURINN Tucker Crowe er á hátindi frægð- arinnar þegar hann fer inn á bar í Minneapolis í miðri tónleikaferð. Sagan segir að hann hafi brugðið sér á klósettið, en enginn veit hvað gerðist þar inni, því Crowe gekk beina leið út og lagði tónlist- ina á hilluna fyrir fullt og allt. Ný bók Nick Hornby, Juliet, Naked, hefst þar sem Annie og Duncan eru stödd á viðkomandi bar enda vill svo til að Duncan er með maníu fyrir tónlistarmann- inum Tucker Crowe og einu sóló- skífu hans, Juliet. Fljótlega verð- ur lesandanum ljóst að þau Annie og Duncan eiga fátt sameiginlegt annað en að vera par; vaninn er það eina sem heldur þeim saman þar sem þau búa í sjávarþorpinu Gooleness. Það gefur því augaleið að þráhyggjan í Duncan hlýtur að verða til þess að stía þeim í sund- ur, enda hangir hann á netinu öll- um stundum að skiptast á gagns- lausum smáatriðum um Crowe við félaga sína sem eru sama sinnis. Það fer svo að þegar gefnar eru úr hráar hljóðversupptökur plöt- unnar, Juliet, Naked, að Annie skrifar umsögn á vefsetur safn- aranna og í kjölfarið verða vinslit með þeim Duncan. Í miðjum leið- indum berst Annie svo bréf frá manni sem segist vera hinn týndi dularfulli Tucker Crowe. Hornby leikur sér hér með minnið um misskilda snillinginn sem hverfur ungur, hvort sem það er inn í eilífðina eða í geðveikina, nú eða í smábæ í Bandaríkjunum. Slíkir listamenn, hvort sem það eru tónlistarmenn eins og í þessu tilviki eða iðkendur annarra list- greina, njóta þess á vissan hátt að vera „ókláraðir“ og að í sögu þeirra eru svo miklar eyður að hægt er að skálda í þær nánast hvað sem er. Þetta er áberandi í dægurtónlistinni með sinni af æskudýrkun og leit að djúpri merkingu þar sem ekkert er að finna. Sjá til að mynda þá Nick Drake, Syd Barrett og Jeff Buck- ley – hvaða orð færi af þeim ef þeir væru nú menn á miðjum aldri? Ástríðuhegðun er Hornby líka áleitin og hann hefur iðulega fjallað um hana í bókum sínum, aðallega þó fótboltaástríðu, en í Juliet, Naked er hann ekki síst að velta því upp hvernig netið setur allt slíkt í annað veldi; eitt er að skrifast á við einhverja rugludalla úti í heimi, en þegar svo er komið að maður getur verið í stöðugu sambandi við ámóta rugludalla og mann sjálfan allan sólarhringinn tekur steininn úr – verður slíkt ekki til að einangra þá enn frekar sem eru á grensunni? Hafa menn gott af því að kynnast öðrum með sama áhugamál, eða er kannski best að sætta sig við að það eru fæstir eins og fólk er flest? Forvitnilegar bækur: Hvað kom fyrir Tucker Crowe? Mögnuð þráhyggja AFPÁrátta Breski rithöfundurinn Nick Hornby. SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI 9 kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i.10 ára Bionicles kl. 4 LEYFÐ Guð blessi Ísland kl. 5:45 - 8 - 10:15 LEYFÐ The Ugly Truth kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i.14 ára Stúlkan sem lék sér að eld. kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.16 ára Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 3:45 LEYFÐ Stúlkan sem lék sér að eld. kl. 5:20 - 8 - 10:40 Lúxus HHH „Ef þú sást fyrstu myndina og fílaðir hana, þá máttu alls ekki sleppa þessari!“ T.V. – Kvikmyndir.is Mikil grimmd og logandi frásögn. Lisbeth Salander er orðin klassísk og ein eftirminnilegasta persóna glæpabókmenntana. F.E. Rás 2 „Frábær eins og sú fyrsta! Heldur athygli manns allan tímann! Maður getur eiginlega ekki beðið um meiri gæði!“ –H.K., Bylgjan HHH „Skylduáhorf fyrir alla aðdáendur Larssons, – sannarlega eldfim spennumynd.” MMJ – kvikmyndir.com HHHH „Öllu því svalasta, magnaðasta og flottasta úr þykkri spennusögu er þjappað saman í alveg hreint frábæra spennumynd.“ – ÞÞ, DV HHHH „Stúlkan sem lék sér að eldinum er ekki síðri en forveri hennar ... afar spennandi, takturinn betri... Michael Nykvist og Noomi Rapace eru frábær í hlutverkum sínum“ – VJV, FBL HHH „Stúlkan sem lék sér að eldinum er þrælgóð skemmtun og æsispennandi, grimm og harðvítug þegar kemur að uppgjörinu” –S.V., MBL 47.000 manns í aðsókn! SÝND Í SMÁRABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI 650kr. Íslens kt tal S Í S Í I Fyndnasta rómantíska gamanmynd ársins Sýnd m/ ísl. tali kl. 6 Sýnd kl. 6, 9 og 10:10 Sýnd kl. 8Sýnd kl. 10 650kr. Íslens kt tal HHH „Ef þú sást fyrstu myndina og fílaðir hana, þá máttu alls ekki sleppa þessari!“ T.V. – Kvikmyndir.is Mikil grimmd og logandi frásögn. Lisbeth Salander er orðin klassísk og ein eftirminnilegasta persóna glæpabókmenntana. F.E. Rás 2 HHH „Skylduáhorf fyrir alla aðdáendur Larssons, – sannarlega eldfim spennumynd.” MMJ – kvikmyndir.com HHHH „Öllu því svalasta, magnaðasta og flottasta úr þykkri spennusögu er þjappað saman í alveg hreint frábæra spennumynd.“ – ÞÞ, DV HHHH „Stúlkan sem lék sér að eldinum er ekki síðri en forveri hennar ... afar spennandi, takturinn betri... Michael Nykvist og Noomi Rapace eru frábær í hlutverkum sínum“ – VJV, FBL HHHH – S.V. MBL Sýnd kl. 6 og 8 HHH „9 er fyrirtaks samansuða af spennu, ævintýrum og óhugnaði í réttum hlutföllum” B.I. – kvikmyndir.com HHH „9 er með þeim frumlegri – og drungalegri – teiknimyndum sem ég hef séð í langan tíma. Grafíkin er augnakonfekt í orðsins fyllstu merkingu.” T.V. – Kvikmyndir.is ÞEGAR VERÖLD OKKAR LEIÐ UNDIR LOK – HÓFST ÞEIRRA SÝND Í REGNBOGANUM GAMANIÐ BYRJAR 16. OKTÓBER FORSALA HAFIN Á MIDI.IS NÝ ÍSLENSK GAMANMYND FRUMSÝND 16. OKTÓBER FORSALA HAFIN Á MIDI.IS HHH „Teikningarnar og tölvu- grafíkin ber vott um hugmyndaauðgi og er afar vönduð, sannkallað konfekt fyrir augað.” -S.V., MBL „9 er allt að því framandi verk í fábreytilegri kvikmyndaflórunni, mynd sem skilur við mann dálítið sleginn út af laginu og jákvæðan” -S.V., MBL Þú færð 5% endurgreitt í Smárabíó 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á -bara lúxus Sími 553 2075 Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.isðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.