Morgunblaðið - 14.10.2009, Side 35
Menning 35FÓLK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2009
KYNTRÖLLIÐ unga Robert Patt-
inson á erfitt með að fá stúlkur með
sér á stefnumót. Leikarinn hefur
notið mikilla vinsælda meðal ungra
stúlkna allt frá því hann sást fyrst á
hvíta tjaldinu í hlutverk vampírunar
Edward Cullen í kvikmyndinni Twi-
light. Hann segir stúlkur þó ekki
hafa áhuga á honum sem persónu.
„Stelpur öskra á Edward, ekki Ro-
bert. Ég á enn erfitt með að fá
stefnumót,“ segir hinn 23 ára leikari.
Þó hann eigi erfitt með að finna sér
kærustu viðurkennir Pattinson að
hann fái næga athygli frá kvenfólki.
„Ég fékk mér að borða um daginn.
Við vorum inni á veitingastað í
nokkra tíma og skyndilega voru um
400 manns á götunni fyrir utan. Það
var brjálað og þetta er svona öllum
stundum núna.“ Pattinson vonast til
að athyglin sem hann fær minnki
þegar næsta Twilight-mynd kemur
út því hann fer með minna hlutverk í
henni. „Ég er ekki í aðalhlutverki í
þessari mynd, Taylor Lautner er
það. Ég er frekar í aukahlutverki og
það veitir mér ákveðið frelsi,“ segir
Pattinson. Slúðurmiðlar halda því
fram að hann eigi í ástarsambandi
við móttleikkonu sína í Twilight,
Kristen Stewart. Ekkert hefur verið
staðfest í þeim efnum.
Á erfitt með að fá stefnumót Twilight-liðTaylor Laut-ner, Kristen
Stewart og
Robert Patt-
inson.
KRUFNING hefur leitt í ljós að
Boyzone-söngvarinn Stephen Ga-
tely lést af eðlilegum orsökum.
Dánarorsök er lungnabjúgur, þ.e.
vökvasöfnun í
lungum.
Gately lést
óvænt á Mal-
lorca á laug-
ardaginn var.
Þar sem komið
hefur í ljós að
hann lést af
náttúrulegum
orsökum og
ekkert bendir til
þess að um saknæmt athæfi sé að
ræða geta foreldrar hans og unn-
usti, Andy Cowles, gert ráðstafanir
til að fá líkið flutt til Bretlands.
Fjölskyldan er sannfærð um að
fíkniefnaneysla hafi ekki átt þátt í
andlátinu en eiturefnarannsóknum
á líkinu er ekki lokið. Enginn grun-
ur leikur á að um sjálfsvíg hafi ver-
ið að ræða.
Gately var aðeins 33 ára er hann
fannst látinn í sumarleyfishúsi sínu
á Spáni. Óhófleg áfengisneysla hef-
ur verið útilokuð sem dánarorsök
en hann og Cowles höfðu verið að
skemmta sér kvöldið áður.
Félagar hans í Boyzone ferð-
uðust strax til Mallorca er þeir
fengu andlátsfregnina en hafa nú
snúið aftur til Bretlands. Ekkert er
vitað um framtíð strákabandsins og
hefur talsmaður þess sagt lát Ga-
tely geta leitt til endaloka þess.
Annars er möguleiki á að þeir ljúki
við plötu sem þeir voru byrjaðir á
og tileinki hana minningu Gately.
Dánaror-
sök ljós
Boyzone-meðlimir Lynch, Keating og
Mikey þegar þeir mættu til Spánar.
Stephen Gately
ÞÝSKA fyrirsætan Heidi Klum og
breski tónlistarmaðurinn Seal eign-
uðust dóttur föstudaginn var. Er
þetta þriðja barn þeirra hjóna en
fyrir á Klum dóttur með Flavio
Briatore. Litla stúlkan hefur fengið
nafnið Lou Sulola.
Klum ritar á vefsíðu sína að
stúlkan sé fegurri en orð fá lýst og
að foreldrarnir séu alsælir og geti
ekki beðið þess að fylgjast með
henni vaxa úr grasi.
Í ágúst lét Klum hafa eftir sér að
það væri nóg að eiga fjögur börn og
hún viðurkennir að glæsilífið hafi
vikið til hliðar fyrir heimilisstörf-
unum eftir að börnin fæddust enda
hafi börnin þrjú, Leni 5 ára, Henry
3 ára og Johan 2 ára, tekið yfir á
heimilinu.
Dóttir fædd
Reuters
Foreldrar Heidi Klum og Seal á
Emmy-verðlaununum í september.
Stórtónleikar
Íslenska óperan
Miðvikudaginn 4. nóvember
Miðasala midi.is og í Íslensku óperunni
20 ÁRA