Morgunblaðið - 14.10.2009, Side 36

Morgunblaðið - 14.10.2009, Side 36
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 287. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana FÓLK Í FRÉTTUM» Heimild: Seðlabanki Íslands DOLLARI STERLINGSPUND KANADADOLLARI DÖNSK KRÓNA NORSK KRÓNA SÆNSK KRÓNA SVISSN. FRANKI JAPANSKT JEN SDR EVRA MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG 124,05 196,02 120,42 24,7 22,092 17,744 121,27 1,384 196,89 183,9 Gengisskráning 13. október 2009 124,35 196,5 120,77 24,772 22,157 17,796 121,61 1,388 197,48 184,41 236,0183 MiðKaup Sala 124,65 196,98 121,12 24,844 22,222 17,848 121,95 1,392 198,07 184,92 Heitast 13 °C | Kaldast 7 °C Víða rigning fyrri- partinn, s-vestlægari og skúrir um landið s- og vestanvert eftir há- degi, en annars þurrt að kalla. » 10 Það er gríðarlegur fengur fyrir Íslend- inga að geta séð beinar útsendingar frá Metropolitan- óperunni. »30 AF LISTUM» Gríðarlegur fengur FÓLK» Pattinson gengur illa að komast á stefnumót. »35 Hornby leikur sér hér með minnið um misskilda snillinginn sem hverfur ungur, í nýjustu bók sinni Juliet, Naked. »31 BÆKUR» Misskilinn snillingur MYNDLIST» Áður ósýnd verk Nínu Sæmundsson í Fold. »29 TÓNLIST» Carly Simon lögsækir Starbucks. »29 Menning VEÐUR» 1. Nektarmyndir ESPN vekja ... 2. Íslendingur alvarlega slasaður ... 3. Staðfesti lán til Íslands 4. Hærra verð á plastpokum ...  Íslenska krónan veiktist um 0,25% »MEST LESIÐ Á mbl.is  Það var í janúar á þessu ári sem Mugison og sveit hans fóru í hljóðver og léku inn á band nokkur lög sem höfðu breyst mjög mikið í meðförum hennar á tónleikum víða um heim. Plata með upptökunum kemur í búð- ir eftir tvær vikur og ber hún nafnið Ítrekun. Mugison ætlar svo í túr um landið í nóvember og mun leika á fimmtán tónleikum eða þar um bil. Með í för verður engin smáræðis kanóna, sjálf gítarhetjan Björgvin Gíslason. TÓNLIST Mugison gefur út nýja plötu eftir tvær vikur og túrar  Árni Þór Sig- urðsson hefur verið kjörinn vara- formaður þing- flokks Vinstri- hreyfingar- innar-græns framboðs í stað Álf- heiðar Ingadóttur, sem nú hefur tek- ið við embætti heilbrigðisráðherra. Þá tekur Ögmundur Jónasson, fyrr- verandi heilbrigðisráðherra, sæti í fjórum nefndum og Lilja Móses- dóttir tekur við formennsku í við- skiptanefnd af Álfheiði. STJÓRNMÁL Árni Þór kjörinn varafor- maður þingflokks VG  Veigar Páll Gunnarsson hef- ur ekki fengið mörg tækifæri hjá franska knatt- spyrnuliðinu Nancy síðan það keypti hann frá Stabæk í Noregi í lok síðasta árs. „Síðasta árið hefur reynst mér ansi erfitt hvað fótboltann varðar. Maður er í þessu sporti til að hafa gaman af þessu, skora mörk og spila vel svo þessi staða sem ég er í hjá Nancy fellur mér ekki í geð. Það get- ur því vel verið að ég fari aftur til Noregs,“ sagði Veigar Páll. FÓTBOLTI Árið í Frakklandi hefur reynst Veigari Páli erfitt Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is „ÞAÐ er langt síðan ég byrjaði, ætli það séu ekki komin 25 ár frá því ég fór að setja saman eitthvert smotterí. Ljóðaáhugann fékk ég fyrir löngu; byrjaði með Skólaljóðunum. Og þótt ég væri alinn upp með hefðbundna kveðskapnum, þar sem ekkert hefur gerst eftir Davíð [Stefánsson], þá fékk ég mikinn áhuga á nútímakveð- skap. Ég sökkti mér oní þetta og las heilmikið og skrifaði eitthvað svolítið, en síðustu þrjú ár hefur þetta aukist og komið meiri þungi í kveðskapinn.“ Svo mælir Eyþór Árnason leikari og einn þekktasti sviðsstjóri í ís- lensku sjónvarpi, en í gær hlaut hann Bókmenntaverðlaun Tómasar Guð- mundssonar fyrir ljóðabókina Hundgá úr annarri sveit, sem er hans fyrsta bók. Gaman að lesa ljóðabækur „Mér hefur alltaf fundist gaman að lesa ljóðabækur og grípa þær með upp í rúm. Það er svo þægilegt, því þá er maður ekki bundinn því að muna eitthvað sem maður sofnaði út frá kvöldinu áður. Þetta er að færast í þá átt að ég punkti eitthvað hjá mér á hverjum degi og setji hugmyndir á blað, en þó koma vikur þar sem ég yrki ekkert annað en vísur upp á grín til að skemmta mér og vinum mín- um.“ Eyþór segir að það hafi „dottið í sig“ í vor að senda ljóðin sín í Tómas- arkeppnina. „Það er ekki söluvæn- legur bissness að gefa út ljóðabók; ég henti handritinu inn og svona fór þetta og ég er rosalega glaður og auð- mjúkur um leið.“ Borgarstjórinn í Reykjavík, Hanna Birna Kristjánsdóttir, afhenti verð- launin. Alls bárust að þessu sinni 42 handrit. Í dómnefnd sátu Kolbrún Bergþórsdóttir formaður, Ingibjörg Haraldsdóttir og Jón Óttar Ragnars- son. Í umsögn dómnefndar segir m.a.: ,,Í bókinni streymir ljóðmálið fram, sterkt og hugmyndaríkt. Kímnin er aldrei langt undan og alls kyns furður gera vart við sig, eins og þegar rjúp- urnar hans Guðmundar í Miðdal sem gerðar eru úr gleri lifna við og láta sig hverfa. Í öðru ljóði leggja skip að bryggju bakvið mánann þar sem skuggalegir menn bíða með skjala- töskur. Og í enn öðru ljóði kemur Clint Eastwood ríðandi yfir Faxafló- ann. Það er gnægð af skemmtilegri hugsun og hugmyndum í þessari ljóðabók.“ Verðlaunaféð nemur 600 þúsund krónum. Útgáfuréttur verðlauna- handrits er í höndum höfundar eða þess forlags sem hann ákveður. Ljóðabókin Hundgá úr annarri sveit eftir Eyþór kom út á vegum bóka- forlagsins Uppheima um leið og verð- launaafhendingin fór fram. „Glaður og auðmjúkur“ Eyþór Árnason hlaut Bókmennta- verðlaun Tómasar Morgunblaðið/Kristinn Verðlaunaskáldið Eyþór Árnason tekur við verðlaununum úr hendi Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra. BUBBI Morthens hefur gert breytingar á þætti sínum Færibandinu, sem sendur er út á Rás 2 á mánudagskvöldum. Í stað þess að vera með viðtöl við þjóðþekkta einstaklinga og taka við símtölum frá hlust- endum er Bubbi byrjaður að rekja ævi sína í tón- list. „Mig langar til að taka fyrir tónlistarlega áhrifavalda í lífi mínu og sýna hvað varð þess valdandi að Bubbi Morthens varð til sem tón- listarmaður,“ segir Bubbi. Í síðasta þætti fjallaði hann um Bítlana og áhrif þeirra á sig og vini sína þegar þeir heyrðu tónlist þeirra fyrst, aðeins sjö ára gamlir. Næst hyggst Bubbi taka fyrir tónlistarmann- inn Donovan og svo mun röðin koma að Bob Dyl- an, sem er í miklu uppáhaldi. | 28 Bubbi snýr sér að áhrifavöldum ÍSLENSKA 21-árs landsliðið í fótbolta vann í gær Norður-Íra, 2:1, í Grindavík. Þetta er í fyrsta skipti sem íslenska landsliðið í þessum aldurs- flokki vinnur þrjá leiki í röð í Evrópukeppninni en það er nú á mikilli siglingu undir stjórn Eyjólfs Sverrissonar. Liðið hefur skorað 16 mörk í þrem- ur leikjum en hafði áður mest skorað 15 mörk í heilli keppni og er komið í baráttu við stórþjóð- irnar Þýskaland og Tékkland um toppsætin í riðl- inum. Þrír lykilmenn veiktust skömmu fyrir leik- inn og gátu ekki spilað með og tveir til viðbótar voru uppteknir með A-landsliðinu, sem sigraði síðan Suður-Afríku, 1:0, á Laugardalsvellinum í gærkvöld. | Íþróttir Strákarnir setja met  16 mörk í þremur leikj- um  Þrír sigrar í röð Morgunblaðið/Heiddi Fyrirliðinn Almarr Ormarsson horfir einbeittur á boltann í leiknum í Grindavík í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.