Morgunblaðið - 27.10.2009, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 27.10.2009, Qupperneq 25
Dagbók 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2009 Sudoku Frumstig 8 2 4 9 6 9 1 2 1 4 5 4 7 3 1 8 3 6 6 1 2 9 5 3 9 1 4 8 4 3 2 9 8 5 7 6 2 4 5 6 6 1 5 2 7 3 8 5 7 6 1 4 5 3 2 8 4 8 2 9 3 1 6 2 3 6 5 9 2 1 3 5 6 7 2 9 4 1 8 3 3 4 2 1 7 8 5 6 9 8 9 1 3 5 6 2 4 7 1 5 3 6 2 9 4 7 8 6 7 8 4 3 5 9 2 1 9 2 4 7 8 1 6 3 5 7 8 9 5 4 2 3 1 6 2 3 6 9 1 7 8 5 4 4 1 5 8 6 3 7 9 2 7 3 2 6 4 1 8 5 9 1 8 6 5 9 7 4 2 3 4 9 5 3 2 8 6 7 1 6 7 1 2 8 4 9 3 5 5 2 8 1 3 9 7 6 4 3 4 9 7 5 6 1 8 2 8 5 7 4 1 3 2 9 6 2 6 4 9 7 5 3 1 8 9 1 3 8 6 2 5 4 7 3 9 1 8 7 2 6 4 5 4 2 5 6 9 1 8 3 7 8 7 6 4 5 3 2 9 1 2 1 9 7 3 8 4 5 6 5 3 7 1 6 4 9 2 8 6 8 4 5 2 9 1 7 3 1 4 2 3 8 5 7 6 9 7 5 8 9 4 6 3 1 2 9 6 3 2 1 7 5 8 4 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er þriðjudagur 27. október, 300. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Daníel tók til máls og sagði: „Lofað verði nafn Guðs frá eilífð til eilífðar, því hans er viskan og mátturinn.“ (Daníel 2, 20.) Víkverji hefur yndi af ástríðu-fullum knattspyrnumönnum. Mönnum sem leika með hjartanu. Einn slíkur, Ítalinn Alessandro Diamanti, fór á kostum í leik West Ham United og Arsenal í ensku knattspyrnunni á sunnudag. Diam- anti, sem kom til West Ham í sumar frá ítalska félaginu Livorno, var raunar settur út úr liðinu fyrir Ars- enal-leikinn eftir dapra frammistöðu gegn Stoke City helgina áður en var skipt inn á eftir 56 mínútur. Sá ætl- aði aldeilis að nýta tækifærið. Stað- an var erfið, 2:0 fyrir Arsenal, en með tilkomu Diamantis snerist leik- urinn við. Skyndilega var Ítalinn allt í öllu. Sveiflaði eitruðum vinstri fæt- inum í allar áttir. x x x Þegar West Ham fékk dæmdaaukaspyrnu á 74. mínútu var okkar maður snöggur á vettvang og krafðist þess að fá að taka spyrnuna enda þótt hún lægi mun betur fyrir réttfættum leikmanni. „Það fer raunar eftir því hversu góður vinstri fóturinn er,“ sagði skeleggur lýsandi leiksins, Guðmundur Benediktsson. Hann átti kollgátuna, Diamanti náði góðu skoti út fyrir varnarvegginn sem landi hans í marki Arsenal, Vito Mannone, gat aðeins slegið út í teig- inn þar sem Carlton Cole kom aðvíf- andi og skallaði hann í autt markið. Líklega hefur Mannone slegið sig út úr liði Arsenal með þeim tilþrifum. x x x Ekki var allt búið. Sex mínútumsíðar var dæmd vítaspyrna á Arsenal. Langar leiðir sást hver ætl- aði að taka þá spyrnu – Alessandro Diamanti. Okkar maður ruddi öllum áskorendum sínum úr vegi, áður en hann stuggaði við Mannone, sem hugðist taka hann á taugum. Á því augnabliki minnti hann verulega á landa sinn, æringjann Paolo Di Can- io, sem einmitt gerði garðinn frægan hjá West Ham um árið. Ekki leiðum að líkjast enda þótt Diamanti mætti að ósekju sneiða hjá stjórnmála- skoðunum Di Canios. Hann er yf- irlýstur fasisti. Vitaskuld jafnaði Diamanti leikinn úr spyrnunni. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 kotið, 8 hund- ur, 9 blóðsugan, 10 fúadý, 11 hálfbráðinn snjór, 13 virðir, 15 bola, 18 hella, 21 spil, 22 hörkufrosti, 23 fim, 24 glímutök. Lóðrétt | : 2 margtyggja, 3 skil eftir, 4 líkamshlut- ann, 5 sakaruppgjöf, 6 saklaus, 7 röskur, 12 smávegis ýtni, 14 græn- meti, 15 pésa, 16 furða sig á, 17 verk, 18 til sölu, 19 rík, 20 skynfæri. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 gúlpa, 4 happs, 7 mæðan, 8 refil, 9 inn, 11 róar, 13 smár, 14 ástin, 15 koss, 17 æfar, 20 haf, 22 aumar, 23 urðin, 24 tjara, 25 dorma. Lóðrétt: 1 gumar, 2 lóðsa, 3 asni, 4 horn, 5 páfum, 6 sælar, 10 nötra, 12 rás, 13 snæ, 15 kjaft, 16 semja, 18 fóður, 19 ranga, 20 hráa, 21 fund. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 Rf6 4. e3 e6 5. Rf3 a6 6. Re5 Rbd7 7. f4 Be7 8. cxd5 Rxd5 9. Bd3 O-O 10. O-O Rxc3 11. bxc3 c5 12. Bd2 Rf6 13. Hf3 cxd4 14. cxd4 Dd5 15. Be1 b5 16. Bh4 g6 17. De1 He8 18. Hc1 Bb7 19. Hc7 Bd6 Staðan kom upp í Evrópukeppni taflfélaga sem lauk fyrir skömmu í Ohrid í Makedóníu. Rússneski stór- meistarinn Evgeny Bareev (2633) hafði hvítt gegn austurríska skák- manninum Bobin Bozinovic (2104). 20. Bxf6! Bxc7 21. Dh4! hvítur hótar nú 22. Dxh7+. 21…h5 22. Dg5 Bd8 23. Bxg6! Bxf6 24. Bxf7+ Kf8 25. Dxf6 og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Lauria og lögmálið. Norður ♠ – ♥ÁK96 ♦G10653 ♣KG105 Vestur Austur ♠ÁD7653 ♠10942 ♥3 ♥1042 ♦ÁD4 ♦7 ♣964 ♣ÁD872 Suður ♠KG8 ♥DG875 ♦K982 ♣3 Suður spilar 5♥ dobluð. Lögmálið um heildarfjölda slaga lá að baki góðri ákvörðun Lorenzo Lauria í spili dagsins, sem er frá úr- slitaleik Meistaradeildar Evrópu. „Lögmálið“ kveður á um að fjöldi trompa í lengsta lit beggja átta sé jafn heildarfjölda slaga. Norður vakti á tígli, suður svaraði á hjarta og Lauria í vestur stakk inn spaðasögn. Í framhaldinu sýndi austur fjórlit- arstuðning við spaðann og mótherj- arnir börðust í 5♥ yfir 4♠. Á hinu borðinu reyndi vestur 5♠ í svipaðri stöðu og var doblaður þar, einn niður. Lauria ákvað hins vegar að dobla 5♥. Hann vissi um 10 spaða í AV og reiknaði með 9 spila samlegu í hjarta í NS. Nítján tromp og þar með nítján slagir. Ef 5♠ vinnast (11 slagir), þá ættu 5♥ að fara þrjá niður samkvæmt lögmálinu (8 slagir). (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Ástarmálin eru eitthvað ruglings- leg í dag. Notaðu daginn til líkamlegrar áreynslu eða íþróttaiðkunar. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þótt þú lendir í einhverju mótlæti um skeið máttu ekki láta það á þig fá. Enda skaltu muna að þú kemur meiru í verk sértu úthvíldur og ánægður. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Láttu ekki hugmyndir þínar koma af stað leiðindum á heimilinu. Getur hugsast að vinkona þín eigi eitthvað inni hjá þér? (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú þarft að viða að þér miklum fróðleik til þess að geta hagað máli þínu svo að áheyrendur þínir snúist á sveif með þér. Sýndu nú dirfsku. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Svo virðist sem þú fáir tækifæri til þess að auka tekjur þínar eða bæta að- stæður á vinnustað. Gefðu þér tíma til að bæta úr áður en lengra er haldið. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Gættu þín sérstaklega í kringum börn í dag til að forðast slys. Reyndu að hafa þitt á hreinu hvað sem fyrir kann að koma. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú nýtur þess að eiga stund með sjálfum þér um þessar mundir. Treystu þínum gömlu vinum eftir sem áður. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú ert að ganga í gegnum mikið tilfinningaskeið nú um stundir sem slær þig eilítið út af laginu. Hugsaðu um alla sem þú hefur hitt vegna sambands við eina manneskju. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú átt ekki eftir að sjá eftir því að vinna bak við tjöldin. Reyndu að draga úr spennu með því að sýna þolinmæði og bíta á jaxlinn. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Mundu að þú getur ekki tekið öll vandamál fjölskyldunnar á þínar herðar því það er einfaldlega ekki á þínu valdi. Auðævi og bolmagn annarra kemur þér að góðum notum. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Skelltu ekki skollaeyrum við því sem vinir og vandamenn segja þér. Sjaldan veldur einn þá tveir deila, eins og þú veist. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Ekkert starf er betra eða verra en annað – það fer allt eftir hvernig maður nálgast það. Samt eru vissir hlutir sem maður vill alls ekki vera án í lífinu. Stjörnuspá 27. október 1955 Sænska akademían úthlutaði Halldóri Laxness rithöfundi bókmenntaverðlaunum Nób- els, fyrstum Íslendinga, „fyr- ir að endurnýja hina miklu íslensku frásagnarlist“. Hann veitti verðlaununum viðtöku í Stokkhólmi 10. des- ember. 27. október 1955 Gamanleikurinn „Kjarnorka og kvenhylli“ eftir Agnar Þórðarson var frumsýndur hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Leikritið naut mikilla vin- sælda og urðu sýningar yfir sjötíu, sem þá var met. 27. október 1958 Morgunleikfimin hófst í Út- varpinu. Valdimar Örnólfs- son og Magnús Pétursson sáu um þáttinn í aldarfjórð- ung, við miklar vinsældir. 27. október 2001 Halldór Ísak Gylfa- son hlaut 9,96 í aðal- einkunn á BS-prófi í tölvun- arfræði frá Háskóla Ís- lands. Það var hæsta einkunn í níutíu ára sögu skólans. 27. október 2008 Gassprenging varð í vinnu- skúr í Smáíbúðahverfi í Reykjavík. Sex drengir slös- uðust. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Aðalbjörg Anna Jónsdóttir og Hallur Jónasson áttu sextíu og fimm ára brúðkaupsafmæli í gær, mánudaginn 26. október. Brúðkaupsafmæli „ÉG ER við þokkalega heilsu,“ segir Ingólfur Guðnason, fyrrverandi bóndi á Eyjum í Kjós, sem fagnar 90 ára afmæli sínu í dag. Raunar hefur hann fleiru að fagna því á þessum degi árið 1949 opinberuðu Ingólfur og Helga Pálsdóttir eig- inkona hans heitin trúlofun sína. Þau kynntust fimm mánuðum áður í Kjósinni en Helga kom til Íslands frá Þýskalandi í atvinnu og ævintýraleit. Rétt rúmu ári eftir komuna gengu þau í hjóna- band. Þau hjónin lögðu stund á búskap á jörð sinni til ársins 1993. Þá byggðu þau sér hús í túnjaðrinum og nefndu Borgarhól. Þaðan fluttu þau í Kópavoginn eða árið 2005 og að síðustu á hjúkrunarheimilið Grund. Helga lést í febrúar á síðasta ári. Þrátt fyrir að vera bundinn við hjólastól, farinn að sjóndaprast og missa eilítið heyrn segist Ingólfur vera nokkuð hress. Vel fari um hann á hjúkrunarheimilinu og hafi hann það ágætt. Ingólfur segist ætla að bíða með veisluhöld fram á næstu helgi en þá verður hann með opið hús í Kjósinni, nánar tiltekið á Kaffi Kjós milli kl. 14-17. andri@mbl.is Ingólfur Guðnason fv. bóndi níræður í dag Býður til veislu í Kjósinni Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.