Morgunblaðið - 27.10.2009, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 27.10.2009, Qupperneq 31
Góð saman Ilmur, til hægri, í hlutverki Ástríðar með vinnufélögunum. Hún klikkar ekki, óheppnaunga konan sem passarilla inn í hópinn og kemur sér endalaust í vandræðalegar að- stæður með eigin aulagangi. Þessi manngerð hefur verið vinsælt um- fjöllunarefni í bókum, sjónvarps- þáttum og bíómyndum síðan hin breska Bridget Jones steig fram á sjónarsviðið. Konur tóku fagnandi þessari óheppnu kynsystur sinni sem var langt frá þeirri full- komnun sem vanalega birtist í skáldskap fyrir konur.    Íslenskir sjónvarpsáhorfendurhafa nú eignast sína Bridget. Í lok sumars hóf Stöð 2 sýningar á Ástríði, rómantískri gaman- þáttaröð sem á sér stað í íslensk- um veruleika. Ilmur Kristjáns- dóttir fer með hlutverk Ástríðar, ungrar konu sem er að hefja störf hjá fjármálafyrirtæki. Hún er svo- lítið utanveltu í þeim heimi; í klæðaburði, hegðun og hugsun. Ástin er henni hugleikin og geng- ur henni álíka illa að fóta sig í heimi hennar eins og í vinnunni. Ástríður er mjög venjuleg stelpa sem er óörugg í þessari veröld sem hún á ekki alveg heima í. Hún á auðvelt með að koma sér í vandræðalegar að- stæður sem eru oft á tíðum kostu- legar. Ilmur er fullkomin í þetta hlut- verk sætu en ekki of sætu stelp- unnar. Samleikur hennar og Kjartans Guðjónssonar í þáttunum er líka frábær. Kjartan fer með hlutverk Bjarna frænda Ástríðar sem vinnur á sama stað og hún. Hann er kvensamur útlitsdýrk- andi í aldursafneitun. Hann kallar allar konur elskur og telur hverja og eina óða í sig, slepjulegur en um leið lúði sem á allt of margar fyrirmyndir í íslenskum veruleika. Annars njóta allir leikararnir sín vel í þessum þáttum og persónu- sköpunin er sannfærandi.    Ástríður höfðar helst til kvennaí yngri kantinum, þeirra sem geta auðveldlega samsamað sig lífi hennar. Ég er í þeim hópi og skemmti mér konunglega yfir þessum þáttum. Þeir eru vel heppnaðir og fín afþreying. Eins og áður segir á Ástríður sér fyrirmyndir í stúlkum eins og Bridget Jones; óheppna konan í hinum fullkomna heimi sem nær ekki að uppfylla þær kröfur sem samfélagið gerir til kvenna. Verst er að þættir af þessari gerð eiga það til að gangast við þessum kröfum samfélagsins, helsta markmið aðalpersónanna verður að ná sér í maka, eignast húsið, börnin, falla inn í fullkomleikann í staðinn fyrir að lifa sátt í „ófull- komleikanum“.    Hvað sem segja má um formúl-una sem þættirnir um Ástr- íði eru gerðir eftir eru þeir mjög ánægjuleg viðbót í sjónvarpsflór- una, á tímum þegar leit út fyrir að glæpaþættir væru það eina sem Íslendingar gætu framleitt. ingveldur@mbl.is Hin íslenska Bridget Jones AF LISTUM Ingveldur Geirsdóttir » Ilmur er fullkomin í þetta hlutverk sætu en ekki of sætu stelpunnar. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2009 Zombieland kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i.16 ára 9 kl. 10:15 B.i.10 ára Zombieland kl. 4 - 6 - 8 - 10 Lúxus Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.16 ára Friðþjófur forvitni (ísl. tal) kl. 3:40 (650 kr.) LEYFÐ The Ugly Truth kl. 5:45 - 8 B.i.14 ára Jóhannes kl. 4 - 6 - 8 - 10 LEYFÐ Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 3:40 LEYFÐ Sýnd kl. 6, 8 og 10 Sýnd kl. 9Sýnd með ísl. tali kl. 6 ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR! 500 KR. Á ALLAR MYNDIR, NEMA ÍSLENSKAR MYNDIR! SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í REGNBOGANUM Sýnd kl. 5:40, 8 og 10:15 SUMIR DAGAR... NÝ ÍSLENSK GAMANMYND HHHHH A.K., Útvarpi Sögu HHHHH A.G., Bylgjan HHH – S.V., MBL 4 PÖR FARA SAMAN Í FERÐALAG TIL HITABELTISEYJU HVAÐ GÆTI MÖGULEGA FARIÐ ÚRSKEIÐIS? SPRENGHLÆGILEG GAMANMYND MEÐ FRÁBÆRUM LEIKURUM SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI SUMIR DAGAR... NÝ ÍSLENSK GAMANMYND HHH „Jóhannes er myndin hans Ladda, hún er röð af bráðfyndnum uppákomum sem hann og pottþétt aukaleikaralið koma frábærlega til skila svo úr verður ósvikin skemmtun. ...Sann- kölluð „feelgood”- mynd, ekki veitir af.” – S.V., MBL HHHHH „Þetta er alvöru tær snilld.” A.K., Útvarpi Sögu HHHHH „Æðisleg. Þetta er það besta síðan Sódóma Reykjavík“ A.G., Bylgjan VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI AÐRA VIKUNA Í RÖÐ! SIGURVEGARI KVIKMYNDAVERÐLAUNA NORÐURLANDARÁÐS 2009 SÝND Í REGNBOGANUM HHH „Tímamótamynd!” – Erpur Eyvindarson, DV HHH – Sæbjörn Valdimarsson, Mbl SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI Bíómynd fyrir alla krakka 500 k r. 600 kr . 600 kr . 600 kr . 600 kr . 600 kr . 500 k r. 500 k r. 17.500 MANNS FYRSTU 10 DAGANA! VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI AÐRA VIKUNA Í RÖÐ! 17.500 MANNS FYRSTU 10 DAGANA! Þú færð 5% endurgreitt í Smárabíó 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á -bara lúxus Sími 553 2075 Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.isáskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! IVANKA Trump, dóttir Donalds Trumps, gifti sig um liðna helgi. Sá heppni heitir Jared Kushner og er eigandi dagblaðsins The New York Ob- server. Brúð- kaupið fór fram á lúxusklúbbi föður brúðarinnar í New Jersey á sunnudaginn. Trump er 27 ára og erfingi mik- illa auðæfa. Til brúðkaupsins var boðið um fimm hundruð manns og stóð veislan frameftir nóttu. Kvöldinu fyrir brúðkaupið eyddi fyrirsætan í slökun með nánustu vinum sínum. Hún skrifaði á Twit- ter-síðu sína að hún hefði eytt kvöldinu með fimm vinkonum sín- um við að borða góðan mat og slaka á. Ivanka Trump klæddist brúðar- kjól frá Veru Wang. Stórbrúð- kaup Trump Ivanka Trump

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.