Morgunblaðið - 27.10.2009, Síða 10
Ögmundur Jónasson alþingismaður
Þegar ríkisstjórnin ákvað að geraekkert með samþykkt sjálfs Al-
þingis um fyrirvara við Icesave-
samningana var mörgum misboðið.
Þegar í ljós kom að jafnframthafði verið gerður leynisamn-
ingur við Ögmund Jónasson og lið
hans varð margur dapur.
Í sinn hlut fékk Ögmundur yfir-lýsingar um að afsögn hans hefði
styrkt samningsstöðu ríkisstjórn-
arinnar! Þeir sem héldu að þær yf-
irlýsingar væru gefnar til að gera
lítið úr Ögmundi og félögum virð-
ast hafa misskilið málið.
Því var sem sagt haldið fram í fúl-ustu alvöru að afsögn Ögmund-
ar hefði gefið Steingrími og Jó-
hönnu aukinn styrk til að hafa lög
frá Alþingi að engu. Samt hafa þau
ítrekað sýnt og sannað að uppgjöf
og afslátt á hagsmunum þjóð-
arinnar geta þau gefið hjálparlaust.
Páll Vilhjálmsson blaðamaðurgefur til kynna í pistli sínum að
látalæti Samfylkingar um hugs-
anlegt samstarf við Sjálfstæð-
isflokk að nýju hafi plægt þennan
jarðveg, en innan þess síðarnefnda
séu enn menn sem veikir séu fyrir
slíku.
Páll er glöggur og veit lengranefi sínu. En menn verða að
láta segja sér þetta þrem sinnum
áður en trúað er.
Afsagnarkenningin ekki grín
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2009
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 8 skýjað Lúxemborg 12 skýjað Algarve 25 heiðskírt
Bolungarvík 4 alskýjað Brussel 14 skýjað Madríd 23 heiðskírt
Akureyri 0 skýjað Dublin 13 skýjað Barcelona 21 léttskýjað
Egilsstaðir 0 léttskýjað Glasgow 12 skýjað Mallorca 22 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 5 súld London 16 skýjað Róm 20 heiðskírt
Nuuk 3 skúrir París 15 léttskýjað Aþena 17 léttskýjað
Þórshöfn 7 léttskýjað Amsterdam 13 skýjað Winnipeg 4 skýjað
Ósló 5 skýjað Hamborg 12 súld Montreal 5 skýjað
Kaupmannahöfn 11 skúrir Berlín 12 skýjað New York 13 heiðskírt
Stokkhólmur 9 skýjað Vín 12 skúrir Chicago 12 alskýjað
Helsinki 9 súld Moskva 4 þoka Orlando 27 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
27. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 0.51 2,7 7.01 1,7 13.37 3,0 20.10 1,6 8:56 17:28
ÍSAFJÖRÐUR 2.53 1,4 8.59 0,9 15.41 1,6 22.15 0,8 9:12 17:22
SIGLUFJÖRÐUR 5.19 1,0 11.15 0,7 17.30 1,1 8:55 17:05
DJÚPIVOGUR 3.36 0,9 10.18 1,5 16.59 0,9 23.02 1,4 8:28 16:55
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á miðvikudag
Austan- og norðaustanátt, víða
8-13 m/s, en 13-18 við SA-
ströndina. Hægari um kvöldið.
Rigning SA- og A-lands, en ann-
ars úrkomulítið og bjart með
köflum V-lands. Hiti 0 til 6 stig,
svalast fyrir norðan.
Á fimmtudag
Gengur í suðaustan 8-15 m/s
með rigningu eða súld S- og
V-lands, en hægari og léttir til
NA-til. Hlýnar í veðri.
Á föstudag
Suðaustan 8-13 m/s og súld
með köflum, en bjartviðri N- og
NA-lands. Hiti 5 til 10 stig.
Á laugardag
Stíf suðaustan- og sunnanátt
og vætusamt, einkum S- og
V-lands. Áfram milt í veðri.
Á sunnudag
Snýst í suðvestanátt með skúr-
um eða slydduéljum og kóln-
andi veðri, en léttir til NA-lands.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Austan og norðaustan 5-13
m/s, en 13-20 og rigning síð-
degis allra syðst. Hiti 0 til 8
stig, svalast fyrir norðan og
líkur á næturfrosti.
UNDIRRITAÐUR hefur verið
samningur um ígræðslu líffæra við
Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið í
Gautaborg. Þetta þýðir að líf-
færaígræðslur Íslendinga flytjast
frá Kaupmannahöfn til Gautaborg-
ar um áramótin.
Samningurinn var gerður að ósk
heilbrigðisráðuneytisins eftir ráð-
gjöf frá líffæraígræðslunefnd sem
lagði til að gengið yrði til samn-
inga við Sahlgrenska háskóla-
sjúkrahúsið í Gautaborg um líf-
færatöku og ígræðslu líffæra fyrir
íslenska sjúklinga. Fulltrúi Sjúkra-
tryggingastofnunar Íslands und-
irritaði samninginn fyrir hönd
heilbrigðisyfirvalda hér en af hálfu
háskólasjúkrahússins í Gautaborg
er það Sahlgrenska International
Care AB, og Sahlgrenska I.C. sem
formlega gera samninginn. Hann
er gerður að undangengnum
samningaviðræðum við helstu
sjúkrahús á Norðurlöndunum,
hann gildir til 2010 og er til eins
árs í senn, en framlengist sjálf-
krafa um ár sé honum ekki sagt
upp sex mánuðum áður en hann á
að renna úr gildi. Með samn-
ingnum er íslenskum sjúklingum
tryggður lágmarksbiðtími eftir
ígræðslu líffæra. Biðtími sam-
kvæmt honum er mun styttri en
var í fyrri samningi og kostnaður
við nýjan samning miðað við til-
teknar forsendur um þörf fyrir líf-
færi er rúmar sex hundruð millj-
ónir króna á ári. Gert er ráð fyrir
að samningurinn við Sahlgrenska
verði um 18% ódýrari en samning-
urinn sem nú er í gildi.
Líffæraígræðslur
færast til Gautaborgar
Samningur Steingrímur Ari Arason forstjóri Sjúkratrygginga, Álfheiður
Ingadóttir heilbrigðisráðherra og Marika Qvist að rita undir samninginn.
Slökkvibifreið til sölu
til afhendingar strax
Sigurjón Magnússon ehf.
Námuvegi 2 - 625 Ólafsfirði
www.smagnusson.is - s. 466-3939
MAN 8 / 153
nýbyggður ónotaður - árgerð 1996
Tankur: 1.600L - Dælugeta: hámark 2.000L
Farþegafjöldi: 9 - Reykköfunarstólar: 2 í ökuhúsi
160 hestöfl - beinskiptur - afturhjóladrifinn
Rafdrifin slöngurúlla - 60 m slanga með stút
Verð: 7 milljónir + vsk