Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.12.1933, Side 11

Skólablaðið - 01.12.1933, Side 11
-11-' Og Því vilja allir erindsrekar auövalds- ins, hvort sem Það eru social-demokratar, Jónas fra Hriflu, Palmi Hannesson eða aðrir, útrýma pólitík úr skólanum. Það er engin tilviljun að rektor lét Það í veðri vaka, í sambandi við útvarpsmálið í fyrra, að hann myndi fara að banna pólitík í skólanum. Og í skólasetningarræðu sinni í haust óskaði hann Þess að nemendur væru nú ekki með neina flokkadrætti og pólitískar erjur í vetur,' heldur samhug og eindrægni. Þetta eru alveg sömu orðatiltækin og “íslenzk Endurreisn" og "AlÞýðublaðið", ásamt öllum hinum borg- aralegu blöðunum, flagga með, svo að segja daglegaj Þ. e. stéttafrið og stéttasamvinnu. En Því er óhætt að lofa rektor P. Hannes- syni, að svo lengi sem nokkur sannur verk- lýðssinni er innan veggja Þessa skóla, Þá skal baráttunni vera haldið áfram, fyrlr sigri socialismans, gegn miðaldamyrkri og skoðanakúgun fasismans, í hvaða mynd sem er. Eymundur Magnússon. + — + —I-!--1-1-I— "I-♦“■'“+’—+■—+ —+—+—+—+—+—+—+ BðKAFREGN: í Austui’vegi eftir Halldór Kiljan Laxness, Svo að segja daglega birta borgarablöðin óhróðurssögur um Ráðstjórnarríkin. Astæðan fyrir Því er sú, að verkalýður Ráðstjórnar- ríkjanna, hefir afnumið eignarrétt borgaranna yfir framleiðsluöflunum, og sækir nú fram á öllum sviðum mannlífsins, Halldór K. Laxness dvaldi nokkurn tíma í Ráðstjórnarríkjunum, og hefir nú ritað bók imi dvöl sína Þar, Þar sem hann lýsir áhrif- um Þeim, er land og lýður hafði á hann. Bókin byrjar á samanburði á Því, sem ferða- menn fá að sjá í Ráðstjórnarríkjunum og auð- valdsheiminum. Byggir höfundurinn Þar á reynzlvi sinni, sem gamall ferðalangur. Þa er stutt ágrip yfir sögu byltingarinnar og 5 ára aætlunina. A eftir Því kemur kafli um bændur og landbúnaðinn. í Þeim kafla er merkilegt bréf frá rússneskum samyrkjubændiom til félaga Stalins. Hvar skyldi sannleikann um kjör rússnesku tændanna vera aðfinna, ef ekki í orðimi Þeirra sjalfra. Þar næst kemur ferða- sögubrot, fjörlegt og fróðlegt. Að síöustu er syo útvárpserindi Það, er höfundurinn flutti í Moskva og var endurvarpað hér heima. Olli Það óróa mörgum íhaldsmanninum, Þó að "yfir Þeim væri vakað". Um ritfærni höfundarins Þarf eigi að fjölyrða. Sóvétvinafélag íslands gaf bókina út, og er frágangur hennar hinn prýðilegasti. Eg rlðlegg öllum, sem kynnast vilja tvímælalaust Því merkilegasta, sem nú er að ske, að lesa Þessa bók. J. H. J. +-+-+-+ i--+-+-+-+-+-+-+-+-+ KOHUSTEINN. Við Jónmundur stöndum í klofháum gummí- stígvélum úti x Aíjóavatni og veiðum silung. Vornóttin er hin fegursta, sem við Þekkjum. Kyrrðin hér á öræfunum, og hrikalegir svip- ir fjallanna, gera okkur viðkvæma eins og böm. Hugir okkar sveima um allt milli him- ins og jarðar, en hvorugur mælir orð frá vörum, Silungsveiðin gengur tregt. Við höfum aðeins getað flutt með okkur ónóg áhöld, hina löngu leið um vegleysur, hingað fram til vatnsins. En loks detta Jónmundi hestarnir í hug. Annar okkar verður að athuga um Þá, og við metumst um Það hvor eigi að fara. Það er Jónmundur, sem verður til Þess, en ég lofa Því hátíðlega, að veiða ekki á meðan hann er í burtu, og vitja hestanna næst, Þegar Þess Þurfi. Ég horfi a hann vaða í land og fara úr stígvélunum. Svo hverfur hann bak við hæðina. Nú fyrst fæ ég tækifæri til Þess að lit- ast um. Ég hefi aldrei komið hér áður, en saga Þessa staðar er mér kunn. Tvennt er hér merkast; Uppgrónar bæjarrústir við austurenda vatnsins, og Konusteinn, stór og hrikalegur, uppi á hlum mel í suðurátt. Ég veð til lands og geng upp á grasivax- inn hólinn, Þar sem sést móta fyrir bæjar- rústunum, og sest Þar niöur, Þegar ég horfi I Konustein, lokkar hann fram í hugskot mitt sögu, sem hvert mannsbarn niðri í dalnum kann. Snjóinn er aö leysa af heiðunum og ár og lækir fara hamförum niður brattar hlíð- arnar. Nið Þeirra leggur inn um opna glugg- ana á bæjionum í dalnum, Þar sem fólkið sef i

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.