Organistablaðið - 01.08.1992, Síða 6

Organistablaðið - 01.08.1992, Síða 6
13. og 14. júní. Kaprí tók fallega á móti okkur næsta morgun og reyndist hinn mesti sælustaður þá tvo daga sent viö dvöldumst þar. Þar hvíldumst við vel eftir stranga dagskrá í París og erilsama ferð. Við reikuðum um þröngar götur, litum í glugga búðanna cða fengum okkur snarl. Farið var upp í Anaeapri cn vegurinn þangað er næsta hrikalegur, liggur utan í klettunum og bílstjórar ærið glannafengnir. Það er langt síðan maður hefur heyrt „flautað fyrir horn" af svo miklum móð. Síðan svifu menn misjafnlega tignarlega í stólalyftu upp á Solaro, hæsta tind eyjar- innar, og nutu útsýnis þaðan. Við skoðuðum að sjálfsögðu Bláa hellinn en ræðararnir sem skutu okkur inn í hann voru því miður næsta fégráðugir og framkoma þeirra óviðfeldin - og féll svo hellir þessi í skuggann. Á Kaprí áttum við ánægjulegar kvöldstundir í góðum og glöðum hópi sem var að vcrða prýðilega samstilltur. Einnig voru haldnar nokkrar söngæfingar til að undirbúa messuna í Péturskirkj- unni. Róm 15. júní. Við fórum frá Kaprí um morguninn, sigldum til Sorrento og ókum þaðan til Ponipei. Skoðuðum rústirnar frægu og reyndist þar sem oftast sjón sögu ríkari. Komum til Rómar síðdegis og komum okkur fyrir á Hótcl Nova Domus. 16. júní. Sunnudagur. Rómardvöl hófst með þátttöku í guðsþjónustu í Péturskirkj- unni. Kór okkar söng fjögur lög og komu þar átta manns við sögu sem stjórnendur og undirleikarar. Frú Guðrún Ellertsdóttir söng einsöng í Laudate Dominum eftir Mozart. Auk þessa fékk undirritaður það hlutvcrk að lesa pistil á ensku. Pessi guðs- þjónusta verður því mörgum okkar minnisstæð. Fjöldi kirkjuhöfðingja gekk í skrúðfylkingu til messunnar og frá. Péturskirkjunni cr gerð góð skil í „grænu bókinni" og ckki ástæða til að bæta miklu þar við. Mér eru einkum minnisstæðar þrjár höggmyndir: Pieta eftir Michelangelo, litla bronsstyttan af Pétri postula í hásæti og mynd Bernins af beinagrindinni með stundaglasið. Frá kirkjunni var haldið á Piazza Navona, eitt af höfuðtorgum Rómar, þar er hinn frægi gosbrunnur hinna fjögurra stórfljóta eftir Bernini. Á torginu er jafnan mannlíf mikið og fjölskrúðugt. Við stóðum stutt við í Pantheonhofinu því verið var að loka þegar okkur bar þar að. Húsið sjálft er hið mesta furðurverk en þar er einnig margt skoðunarvert innan dyra m. a. gröf Rafaels. Síðan voru skoðaðar kirkjur og cr mér minnisstæðust kirkja Ágústusar kirkjuföð- ur, San Agostino, en þar cr hin magnaða mynd Caravaggios af Madonnu pílagrím- anna. Síðdegis fórum við svo aftur í Péturskirkjuna og vorum þar við Vesper. 17. júní. Dagurinn hófst með heimsókn á Forunt Romanum þar sem var miðstöð hinnar fornu Rómar. Þarna er sagan ljóslifandi og einkennileg tilfinning að vera í námunda við staðinn þar sem Júlíus Cesar var myrtur. Loks var Colosseum skoðað og rifjuð upp sagan góða um Andrókles og ljónið. Síðar um daginn hófust kynni okkar af ítölsku bankakcrfi senr virðist með eindæm- um stirðbusalegt a. m k. gagnvart útlendingum með kreditkort. Einnig komurn við á Fcncyjatorgið. Við það stcndur Feneyjahöllin en af svölum hennar hélt Mussolini sínar frægustu ræður. Þarna eru líka veitingahús mörg og verslanir, m. a. ágæt nótnabúð. 6 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.