Organistablaðið - 01.08.1992, Page 7
Sitscm Landale við hljómborö 62 radda cavaille - Coll orgelsins frá 1890 í Rúðuborg.
Nokkrir félagar fylgjasl með kynningu hennar á orgelinu.
Um kvöldið var þjóðhátíðarí'agnaður á La Asterna í Transtevere (handan Tiber-
fljóts). Ólína Jónsdóttir flutti okkur hátíðarljóð klædd ísl. búningi og sr. Ólöf Ólafs-
dóttir flutti ræðu. Þarna var okkur skemmt með söng og hljóðfæraslætti og þjónar
höfðu í frammi skoplega tilburði en sjálf tókum við lagið á góðan íslenskan máta.
18. júní. Síðdegis skoðuðum við fyrst San Clemente sem er að hluta til elsta kirkja
í Róm en héldum síðan til Santa Francesca Rómana. Þar lck fyrir okkur á orgelið J.
E. Goettsche, organlcikari við Péturskirkjuna, verk eftir Bach o. l'l.
19. júní. ivlóttaka hjá páfa. Athöfn þcssi fór fram í nýlegum sal gríðarstórum og
þéttsetnum. I’ar var hrópað og klappað og þótti ýmsum óviðfelldið og líktu við knatt-
spyrnukappleik. Við nutum þarna forréttinda, sátum á besta stað, sungum fyrir
salinn, páfi lét taka af sér mydnir með okkur og loks var okkur hleypt út sérstaklega
svo að við losnuðum við troðning. Mér þótti athöfnin óneitanlega dálítið vélræn cnda
hefur páfi slíka móttöku vikulega og krefst hún í hvert sinn mikils umstangs og er
nákvæmlega skipulögð.
En augljóst var að páfi vildi sýna okkur allan sónta og varð svo stund þcssi sérstæð
og mjög minnisverð.
Síödegis skoðuðum við fyrst katakomburnar og kirkju heilags Sebastians en fórum
síðan til Pálskirkju utan múra, þar eru myndir af páfum öllum, garður glæsilegur,
höggmyndir góðar og súlur sterklegar.
20. júní Hópurinn fór í dagsferð til Palestrina og Tivoli en ekki kann ég frá þeirri
ferð að segja og sat heima.
Raunar sá ég þennan dag áhrifamikið dæmi um annað helsta tómstundagaman
Rómverja sem er í því fólgið að koma bíl sínum í stæði og ná honum út aftur. Sýna
þeir við iðju þcssa ótrúlega þolinmæði og cinstaka hugkvæmni.
ORGANISTABLAÐIÐ 7