Organistablaðið - 01.08.1992, Page 10
Sextugur:
Haukur Guðlaugsson
söngmálastjóri þjóðkirkjunnar
Haukur er fæddur 5. apríl 1931 á Eyra-
bakka. Haukur hóf nám í píanóleik við
Tónlistarskólann í Reykjavík 1945oglauk
þaðan burtfararprófi árið 1951, aðalkenn-
ari hans var Arni Kristjánsson. Hann
stundaði orgclnám við Staatliche Hochs-
chule fúr Musik í Hamborg 1955-1960,
kennari hans þar var prófessor Martin G.
Förstemann. Þá stundaði hann framhalds-
nám í orgelleik hjá Maestro Fernando
Germani við Conservatorio di Santa
Cecilia í Róm 1966, og einkatíma í orgel-
leik hjá sama kennara 1968 og 1972.
Haukur var kennari við Tónlistarskól-
ann á Siglufirði 1951-1955. Hann var
skólastjóri Tónlistarskólans á Akrancsi
1960-1974 og kennari við Tónlistarskóla
Borgarfjarðar 1971-1973. Haukur hefur
gegnt starfi söngmálastjóra þjóðkirkjunn-
ar frá 1974 og verið skólastjóri Tónskóla
þjóðkirkjunnar frá sama tíma.
Haukur var organisti við Akraneskirkju
1960-1982. Kirkjukór Akraness hefur haldið fjölda tónleika undir hans stjórn hér
innanlands og einnig farið í tvær utanlandsferðir, til ísraels, ttalíu og Þýskalands.
Kórinn kom einnig frarn bæði í útvarpi og sjónvarpi undir stjórn Hauks og gaf út tvær
hljómplötur. Meðal fjölmargra verka sem Kirkjukór Akraness flutti undir stjórn
Hauks má nefna Stabai Mater eftir Pergolesi, Requiem Op. 48. eftir Gabriel Fauré,
og frumfluttning verks Leifs Þórarinssonar, Rís ttpp, ó, Gitð, Kantötu fyrir kór, ein-
söngvara og orgel við texta úr 82. og 117. Davíðssalmi.
Haukur hefur haldið fjölda orgeltónleika bæði hér innanlands og crlcndis. t.d. í
Þýskalandi (t.d. Dómkirkjunni í Schleswig, Maríukirkjunni í Lubcck, Dóntkirkjunni
í Osnabrúck (tónleikarnir þar voru framlag fslands í Norrænni vináttuviku 1970) og
Bandaríkjunum, Svíþjóð og Noregi. Auk þess hefur Haukur leikið í útvarpi og á
hljómplötum.
Haukur var söngstjóri Karlakórsins Vísis á Siglufirði 1951-1955 og Karlakórsins
Svana á Akranesi 1960-1976.
Þá hefur Haukur verið formaður Tónmenntasjóðs kirkjunnar frá upphafi og var
formaður Kirkjukórasambands íslands 1978-1982. Hann var formaður Tónlistarfé-
lags Akraness um árabil og einnig hefur Haukur setið í stjórn FÍO og lcikið einleik
á orgel, sem fulltrúi íslands á norrænum kirkjutónlistarmótum í Lundi og Osló.
Eiginkona Hauks Guðlaugssonar er Grímhildur Bragadóttir. bókasafnsfræðingur
við Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi.
Loks má geta þess að Kirkjukórasamband Borgarfjarðarprófastsdæmis heiðraði
Hauk mcð samsöng í Akrancskirkju á afmælisdegi hans 5. apríl 1991.
Ritneínd óskar Hauki til hamingju með afmælið og óskar honum góðs gengis í
framtíðinni.
10 ORGANISTABLAÐIÐ