Organistablaðið - 01.08.1992, Blaðsíða 11
Sextugur:
Kristján Sigtryggsson
Þann 8. júní 1991 varð Kristján Sig-
trygsson, skólastjóri og organisti við
Áskirkju í Reykjavík og fyrrunt formaður
FÍO scxtugur.
Kristján er fæddur á Leiti í Dýrafirði 8
júní 1931. Hann lauk almennu kennara-
prófi árið 1952 og einnig kennaraprófi í
tónfræði og hljóðfæraleik sama ár.
Kristján hóf kennslu við Laugarnes-
skóla árið 1952 og var þar aðallega við
söngkennslu til ársins 1964. Yfirkennari
var hann skólaárið 1964-1965 við Álfta-
mýraskóla og einnig við Hvassaleitisskóla
1965-1966 og skólastjóri Hvassaleitisskóla
hefur Kristján verið frá árinu 1966.
Kristján hefur sótt ýmis námskeið er-
lcndis í sambandi við stærðfræðikennslu.
námsstjórn og skólastjórn o.fl. Einnig hef-
ur Kristján sótt námskeið vegna söng-
kennarastarfsins.
Kristján stundaði píanónám hjá Páli Kr.
Pálssyni árin 1952-1955. Árin 1958-1961
stundaði hann nám í orgelleik hjá dr. Páli ísólfssyni og Sigurði ísólfssyni og við Söng-
kcnnaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík. Þá hcfur Kristján og stundað framhalds-
nám í orgelleik hjá Prófessor Gerhard Dickel í Hamborg sumarið 1989.
Frá 1965 hefur Kristján verið organisti og kórstjóri við Áskirkju í Reykjavík.
Kristján hefur samið kennsluefni t.d. Ég reikna (ásamt Jónasi B. Jónssyni) 1964,
Reiknisbókin mín 1965, Reiknisbók Elíasar Bjarnasonar, endurs. 1966 og Við syngj-
wn og leikum (ásamt Guðrúnu Pálsdóttur) sem er vinnubók í tónlist fyrir 10-12 ára
börn, 1971. Einnig hefur Kristján ritað greinar í Organistablaðið.
Kristján hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum. Má þar nefna að hann var eftirlits-
kcnnari í stærðfræði við barnaskóla Reykjavíkur 1960-1965. Formaður Söngkenn-
arafélags íslands 1958-1961, Stéttarfél. barnakennara í Reykjavík 1959-1960. For-
maður Félags fsl. organleikara 1980-1985. 1 ritnefnd Organistablaðsins 1970-1975 og
svo afturl981-1985.
Eiginkona Kristjáns er Sigrún Guðmundsdóttir, kcnnari við Hvassaleitisskóla.
Ritncfnd óskar Kristjáni til hamingju með afmælið og óskar honum alls hins besta
í framtíðinni.
Átján tvíradda safnaðarlög
Blaðinu hefur borist nótnahefti með átján sálmalögum í tvíradda útsetningum eftir
Dr. Hallgrím Helgason. Heftið heitir „ÁTJÁN TVÍRADDA SAFNAÐARLÖG"
og er hér um að ræða raddsetningar á gömlum og nýjum sálmalögum sem flest eru
við texta úr sálmabókinni frá 1972.
ORGANISTABLAÐIÐ 11