Organistablaðið - 01.08.1992, Qupperneq 12
Steinn J. Stefánsson
— Minning —
Steinn Jósúa Stefánsson fæddist II júlí
1908 í Suðursveit í A. Skaftafellssýlsu.
Foreldrar hans voru Stcfán Jónsson bóndi
og hreppstjóri á Kálfafelli og kona hans
Kristín Eyjólfsdóttir. Fcim varð fimm
barna auðið.
Steinn ólst upp við öll alnienn bústörf í
Suðursveit. Kálfafell var menningar-
heimili að fornum og nýjum hætti. Fornar
sögur og nýjar frásagnir voru lesnar
vetrarlangt á vökunni. Húslestrar fóru
fram á helgum dögum og Passíusálmarnir
voru lesnir daglega á föstunni. Húsmóðir-
in hafði gengið í Kvennaskólann og einnig
al'lað sér tónmenntunar. Orgelharmonium
var á heimilinu, á það lærðu börnin og um-
hverfis það safnaðist fjölskyldan og söng.
Steinn lauk kennaraprófi frá Kennara-
skóla íslands árið 1931. Með K.í. stundaði
hann nám í orgelleik hjá Sigfúsi Einars-
syni. Steinn rcðist nú sem kcnnari til
Barnaskóla Seyðisfjarðar. Skólastjóri
varð hann árið 1945 og gegndi því til ársins 1975 er hann lét af störfum og flutti til
Reykjavíkur. Á Seyðisfirði kynntist liann Arnþrúði Ingólfsdóttur sem ættuð var frá
Vopnafiröi og gengu þau í hjónaband árið 1937. Arnþrúður lést árið 1964. Þeim
hjónum varð fimm barna auðið.
Steinn var frumkvöðull og driffjöður í tónlistarlffi Seyðfirðinga í áratugi og hélt við
gamalli tónlistarhefð þar eystra. Þannig fctaði hann í fótspor Lárusar S. Tómassonar,
skólastjóra, sonar lians Inga T. Lárussonar, tónskálds, Kristjáns læknis Kristjánsson-
ar og Jóns Vigfússonar. Hann söng í karlakórnum Braga og stjórnaði Samkórnum
Bjarma sem söng fyrst á lýðveldishátíðinni 1944. Þá var hann kirkjuorganisti við
Seyðisfjarðarkirkju 1955-1975. Steinn sá alla tíð um söngkennslu í skólanum og
stjórnaði barnakór skólans. Árið 1957-1958 fékk hann kennaraorlof og dvaldi þá
fyrst í Reykjavík í framhaldsnámi í orgelleik og raddbeitingu hjá Dr. Róbert Abra-
ham Ottóssyni, en fór síðan til Brctlands og Danmerkur til frekara tónlistarnáms
m.a. í orgclleik, kórstjórn og blokkflautulcik. Steinn sótti fjöldan allan af námskeið-
um bæði í kórstjórn og orgclleik.
Steinn fékkst allmikið við tónsmíðar og fjöldi raddsetninga liggur cftir hann. Áriö
1976 komu út „12 sönglög" sem sóknarnefnd Seyðisfjarðar gaf út og árið 1987 gaf
hann út Fjölskyldusöngva. Þar eru lög Steins ásamt nokkrum lögum eftir konu hans
Arnþrúði og börn hans, Heimi, Iðunni og Ingólf í raddsetningu Steins.
Það verk sem mun þó trúlega halda nafni Steins lengst á lofti er Skólasaga Seyð-
isfjarðar scm kom út áriö 1989. El'tir að Steinn fluttist til Reykjavíkur söng hann með
kirkjukór Árbæjarsóknar og Skaftfellingakórnum meðan hann hal'ði heilsu til. Allt
til hinsta dags settist Itann niður við gamla orgelið í stofunni sinni spilaði og söng.
Steinn andaðist 1. ágúst 1991.
12 ORGANISTABLAÐIÐ