Morgunblaðið - 22.12.2009, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 22.12.2009, Blaðsíða 23
Fréttir 23ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2009 Nánari upplýsingar um afgreiðslutíma er að finna á vinbudin.is Afgreiðslutími um hátíðirnar Mánudagur 21. des. kl. 11.00 - 18.00 nema Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl. 9.00 - 20.00 Þriðjudagur 22. des. kl. 11.00 - 20.00 nema Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl. 9.00 - 20.00 Miðvikudagur 23. des. kl. 11.00 - 22.00 nema Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl. 9.00 - 22.00 Fimmtudagur 24. des. kl. 10.00 - 13.00 nema Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl. 9.00 - 13.00 Laugardagur 26. des. Lokað Mánudagur 28. des. kl. 11.00 - 18.00 nema Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl. 9.00 - 20.00 Þriðjudagur 29. des. kl. 11.00 - 18.00 nema Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl. 9.00 - 20.00 Miðvikudagur 30. des. kl. 11.00 - 20.00 nema Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl. 9.00 - 20.00 Fimmtudagur 31. des. kl. 10.00 - 13.00 nema Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl. 9.00 - 13.00 Föstudagur 1. jan. Lokað Laugardagur 2. jan. kl. 11.00 - 18.00 nema Reykjanesbær og Selfoss kl. 11.00 - 16.00 Vínbúðirnar á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, í Reykjanesbæ og á Selfossi. VETRARHÖRKUR hafa kostað að minnsta kosti 80 manns lífið í Evrópu og valdið miklum töfum í lesta- og flugsamgöngum. Yfirvöld í Póllandi sögðu að 42 hefðu dáið á síðustu þremur dögum þar í landi af völdum 20 stiga frosts. Flestir þeirra sem dóu voru heimilislausir. Að minnsta kosti 27 létu lífið í Úkraínu. Í Þýskalandi fórust a.m.k. sex í slysum, sem rak- in voru til vetrarveðursins, og þrír í Austurríki. Að minnsta kosti tveir heimilislausir menn dóu úr kulda í Frakklandi. Tugir þúsunda manna komust ekki leiðar sinnar vegna þess að ferðum Eurostar-hraðlesta milli Parísar og London var aflýst. Áður höfðu fimm lestir stöðvast með um 2.000 farþega í Ermarsunds- göngunum vegna bilana sem taldar voru stafa af því að lestirnar þoldu ekki hitabrigðin sem urðu þegar þær komu úr kuldanum í hitann inni í göngunum. Hundruðum flugferða var aflýst í Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi og Spáni og þjóðvegir lokuðust víða í álfunni vegna fannfergis. Tugir manna hafa dáið úr kulda í Evrópu Reuters Fannfergi Snjó mokað af flugbraut á flugvellinum í Düsseldorf. Mörgum flugferðum var aflýst í Þýskalandi í gær. Stjórnlagadóm- stóll Lettlands úrskurðaði í gær að lækkun á greiðslum til elli- lífeyrisþega bryti í bága við landslög. Lækk- unin var liður í sparnaðar- aðgerðum stjórn- arinnar í tengslum við aðstoð Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins vegna efnahagshrunsins í landinu. Dómstóllinn sagði að ekki væri hægt að nota samninga við al- þjóðlega lánardrottna til að rétt- læta lífeyrisskerðingu sem bryti gegn grundvallarréttindum þegn- anna. Gunars Kutris, forseti rétt- arins, sagði að þingið þyrfti að setja ný lög til að afnema skerðinguna ekki síðar en í mars á næsta ári. Lækkun lífeyris- greiðslna úrskurðuð ólögleg í Lettlandi Gunars Kutris PÓLSKA lögreglan sagði í gær að frægt nasistaskilti með áletruninni „Arbeit macht Frei“ við inngang út- rýmingarbúðanna í Auschwitz hefði fundist í þrem hlutum eftir að því var stolið. Fimm menn á aldr- inum 20-39 ára hafa verið hand- teknir vegna gruns um að þeir hafi stolið skiltinu. Lögreglan sagði að ekkert benti til þess að mennirnir væru ný- nasistar. Mennirnir eru allir á saka- skrá fyrir þjófnaði og ofbeldi. Þeir eiga yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsisdóm verði þeir fundnir sekir um að hafa stolið skiltinu. Skiltið fannst í þremur hlutum Reuters Lögregluþjónn með hluta skiltisins. YFIRVÖLD í borginni Chongqing í Kína hafa skorið upp herör gegn pólitísku og ósiðlegu karókíi og krafist þess að lög með óæskilegum textum verði tekin af lagalistunum. Sérstakt tölvuforrit hefur verið tekið í notkun til að tryggja að ekki verði hægt að velja óæskileg lög á um 150 karókístöðum borgarinnar. Meðal þess sem fer fyrir brjóstið á yfirvöldum eru lög þar sem vikið er að kynlífsathöfnum. Sumir laga- textanna eru taldir grafa undan stjórnmálamönnum og aðrir álitnir móðgun við aðrar þjóðir, að sögn dagblaðsins Global Times sem er gefið út á ensku. Karókíbarir njóta mikilla vin- sælda í Kína. Banna ósiðlegt og pólitískt karókí

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.