Morgunblaðið - 22.12.2009, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 22.12.2009, Blaðsíða 45
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Blúsari Halldór Bragason. BLÚSFÉLAG Reykjavíkur stendur fyrir Jólablúsgjörningi Vina Dóra í kvöld, þriðjudagskvöld, í Hug- myndahúsi Háskólanna / Te & kaffi, á Grandagarði 2. Blúsgjörn- ingurinn hefst klukkan 21.00. Vinirnir eru þeir Halldór Bragason gítarleikari og söngvari, Guðmundur Pétursson gítarleik- ari, Ásgeir Óskarsson trommuleik- ari, Davíð Þór Jónssson á ham- mondorgel og Jón Ólafsson bassaleikari. Jólablúsinn er sagður kærleiks- boðskapur og gleðistund, einstakt tækifæri til að hvíla sig á verald- legu amstri aðventunnar. Jólablúsgjörningur Vina Dóra MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2009 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Gjafakort Borgarleikhússins – gjöf sem lifnar við Jesús litli HHHHH, JVJ, DV Fjölskyldan - ágúst í Osagesýslu (Stóra sviðið) Þri 29/12 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 19:00 Lau 30/1 kl. 19:00 Mið 30/12 kl. 19:00 Sun 17/1 kl. 19:00 Lau 6/2 kl. 19:00 Sun 3/1 kl. 19:00 Fim 21/1 kl. 19:00 Fös 8/1 kl. 19:00 Sun 24/1 kl. 19:00 Sýningin er þrír þættir, hver 1 klst að lengd. Hlé eftir 1. og 2. þátt. Söngvaseiður (Stóra sviðið) Sun 27/12 kl. 14:00 Sun 3/1 kl. 14:00 Sun 17/1 kl. 14:00 Sun 27/12 kl. 19:00 Sun 10/1 kl. 14:00 Sun 24/1 kl. 14:00 Vinsælasti söngleikur ársins - tryggðu þér miða strax Jesús litli (Litla svið) Þri 29/12 kl. 19:00 Mið 30/12 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 20:00 Þri 29/12 kl. 21:00 aukas Sun 3/1 kl. 20:00 Sun 10/1 kl. 20:00 Snarpur sýningartími. Síðasta sýning leikársins 10. janúar. Harry og Heimir (Litla sviðið) Sun 27/12 kl. 22:00 Lau 16/1 kl. 22:00 Sun 24/1 kl. 20:00 Mán 28/12 kl. 19:00 Sun 17/1 kl. 20:00 Fös 29/1 kl. 19:00 Fös 8/1 kl. 19:00 Fim 21/1 kl. 20:00 Lau 30/1 kl. 19:00 Fös 8/1 kl. 22:00 Fös 22/1 kl. 20:00 Lau 30/1 kl. 22:00 Fös 15/1 kl. 19:00 Lau 23/1 kl. 19:00 Sun 31/1 kl. 20:00 Lau 16/1 kl. 19:00 Lau 23/1 kl. 22:00 Rautt brennur fyrir (Nýja svið) Þri 29/12 kl. 20:00 síðasta sýn Ekki við hæfi barna. Síðasta sýning 29. des Djúpið (Litla svið/Nýja svið) Mið 30/12 kl. 21:00 síðasta sýn Síðustu sýningar! Sýningartími: 1 klst, ekkert hlé. GJAFAKORT ÞJÓÐLEIKHÚSSINS Einstakt tilboð til jóla ÞJÓÐLEIKHÚSI SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS Ð Brennuvargarnir (Stóra sviðið) Fös 8/1 kl. 20:00 Fim 21/1 kl. 20:00 Fös 15/1 kl. 20:00 Fös 22/1 kl. 20:00 Nýjar sýningar komnar í sölu! Oliver! (Stóra sviðið) Lau 26/12 kl. 20:00 Frums. Sun 3/1 kl. 20:00 6. K Lau 23/1 kl. 15:00 Sun 27/12 kl. 16:00 Aukas. Lau 9/1 kl. 16:00 Aukas. Fös 29/1 kl. 19:00 Sun 27/12 kl. 20:00 2. K Lau 9/1 kl. 20:00 7. K Lau 30/1 kl. 15:00 Þri 29/12 kl. 20:00 3. K Sun 10/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 30/1 kl. 19:00 Mið 30/12 kl. 20:00 4. K Sun 10/1 kl. 20:00 8. K Lau 6/2 kl. 15:00 Lau 2/1 kl. 16:00 Aukas. Fim 14/1 kl. 19:00 Lau 6/2 kl. 19:00 Lau 2/1 kl. 20:00 5. K Lau 16/1 kl. 15:00 Sun 3/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 16/1 kl. 19:00 Gjafakort á tilboðsverði til jóla! Sindri silfurfiskur (Kúlan) Sun 27/12 kl. 15:00 Þri 29/12 kl. 15:00 Mið 30/12 kl. 15:00 Miðaverð aðeins 1500 kr. Ókyrrð (Kassinn) Þri 29/12 kl. 20:00 Mið 30/12 kl. 20:00 Gestaleikur - aðeins þessar tvær sýningar! Leikfélag Akureyrar Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is 39 þrep (Samkomuhúsið) Fim 7/1 kl. 20:00 fors. Lau 16/1 kl. 19:00 6. k. Sun 24/1 kl. 20:00 11. k. Fös 8/1 kl. 20:00 frums. Sun 17/1 kl. 20:00 7. k. Fös 29/1 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 19:00 2. k Fim 21/1 kl. 20:00 8.k. Lau 30/1 kl. 19:00 Sun 10/1 kl. 20:00 3.k. Fös 22/1 kl. 19:00 9.k. Lau 30/1 kl. 22:00 Aukas Fim 14/1 kl. 20:00 4. k. Lau 23/1 kl. 19:00 10. k. Fös 5/2 kl. 19:00 Fös 15/1 kl. 19:00 5. k. Lau 23/1 kl. 22:00 Aukas Lau 6/2 kl. 19:00 Forsala er hafin Við Íslendingar höfum alltafhaft mikinn áhuga á per-sónufróðleik, sem stafarefalítið af fámenni, land- lægum ættfræðiáhuga, þéttriðnu tengslaneti og klíkumyndunum. Ævisagnahefð þjóðarinnar stendur því á aldagömlum merg en sjálfs- ævisagnahefðin er nokkru yngri. Hjartsláttur Hjálmars Jóns- sonar er dæmi- gerð íslensk sjálfsævisaga full af fróðleik um (karl)menn og málefni. Hún hefst í sveitinni þar sem kynlegir kvistir setja mark sitt á drenginn og eftir því sem hann eld- ist og þroskast eykst skilningur hans á aðstæðum foreldra sinna og forfeðra. Hann er í sumarvinnu til sjós og lands, leiðist í skólanum, leit- andi og efins yrkir hann ferskeytlur sem verða landfleygar, lærir til prests, eignast fjölskyldu og hefur prestskap, fyrst í Húnaþingi, þá á Sauðárkróki, og gerist loks dóm- kirkjuprestur. Fyrsti tveir hlutar bókarinnar heita Æska og uppruni og Séra Hjálmar, þriðji fjallar um setu Hjálmars á Alþingi (Verald- arvafstur) og síðasti hlutinn ber það skemmtilega heiti Séra Hjálmar snýr aftur. Bókinni lýkur með sátt og fyrirheiti um bjarta framtíð. Saga Hjálmars er ofin mörgum þráðum. Hún er ekki síst saga samferða- manna hans í námi og starfi og er undir áhrifum frá íslenskum sagna- þáttum með mannlýsingum, fyndn- um tilsvörum og viðeigandi snjöllum kveðskap. Þarna stíga fram mekt- arbændur og öðlingar eins og Jón Árni Jónsson sem var latínukennari í MA áratugum saman, guðfræðipró- fessorarnir dr. Þórir og dr. Björn, séra Sigurbjörn biskup, Þorsteinn Pálsson og Steingrímur Joð. Aldrei lætur Hjálmar hnjóðsyrði falla um nokkurn mann heldur dregur fram bestu hliðar hvers og eins. Þá fjallar ævisagan að stórum hluta um kristnihald, prestskap og hlutverk kirkjunnar en trúin er Hjálmari leið- arljós í gegnum lífið sem vonlegt er. Oft má vart á milli sjá hvor hefur orðið, presturinn eða maðurinn. Fyrst og fremst predikar Hjálmar auðmýkt og virðingu og eru það sannarlega orð í tíma töluð á vorum dögum. Lýsingar á reynslu hans af sjúkdómum, erfiðleikum og dauða eru líknandi og lífsskoðun hans yf- irleitt bæði jákvæð og heilbrigð. Stjórnmálaferillinn er afgreiddur snyrtilega, hann vildi frekar vera prestur en pólitíkus. Sjálfsævisaga Hjálmars er skemmtileg aflestrar, vel skrifuð á fallegu og kjarnyrtu máli, vísurnar eru snilld og kafla- heitin smellin. Myndir eru ekki margar og víða vantar tímasetningu á þær, í stað nafnaskrár hefði verið meiri fengur að myndaskrá. Ævi- saga sem þessi ljóstrar hvorki upp leyndarmálum né inniheldur freud- ískar játningar. Það er helst í sam- bandi við andlát föðurins sem glittir í beiskju eða eftirsjá í þönkum Hjálmars. Hér er lýst farsælu lífi með gleði og sorgum, trú og þakk- læti, húmorinn er mildur og mann- bætandi. „Við lifum lífi okkar í fé- lagsskap hvert annars. Sá sem segist ekki verða fyrir áhrifum og segist ekki hafa fyrirmyndir þarf ýmislegt að íhuga. Viðtekinn hugs- unarháttur, með dómum og for- dómum, er töluvert aðhaldssöm um- gerð lífsins. Samt hlýtur það að vera meginmarkmið að hefja sig yfir hið lága, leita sannleikans, greina hið rétta og fylgja því“ (150). Bók- arkápan er afar smekkleg og sýnir okkur sposkan sögumanninn, hann er íbygginn og örugglega að yrkja vísu þegar ljósmyndin er tekin. Sjálfsævisaga Hjartsláttur bbbmn eftir Hjálmar Jónsson. Ragnar Helgi Ólafsson hannaði bókarkápu. 256 bls. Veröld 2009. STEINUNN INGA ÓTTARSDÓTTIR BÆKUR Af presti „Hér er lýst farsælu lífi með gleði og sorgum, trú og þakklæti, húmorinn er mildur og mannbætandi,“ segir gagnrýnandi m.a. um sjálfs- ævisögu séra Hjálmars Jónssonar. Í för með presti Nú er ég orðinn 62 ára. Erþað ekki ágætur aldur?En þegar maður erkominn á þann aldur segir maður við sjálfan sig: Ég vil fá tuttugu ár í viðbót vegna þess að líf- ið er svo skemmtilegt.“ Svo sagði Jóhann G. Jóhannsson, listamaður með meiru og höf- undur margra af dáðustu dæg- urlögum Íslands- sögunnar, í sam- tali við Kolbrúnu Bergþórsdóttur sem birtist í þessu blaði um miðjan nóvember síðastliðinn. En þar kom og fram að Jóhann heyr nú hetjulega baráttu við krabbamein á eigin forsendum, ekki vestrænna læknavísinda, sem spá því að tími Jóhanns hér verði senn á þrotum. Platan inniheldur nýjar hljóðrit- anir á lögum eftir Jóhann frá ýms- um tímum sem hann syngur sjálfur en ekkert þeirra hefur heyrst op- inberlega áður. Elsta smíðin er t.a.m. frá 1963. Lífsaðstæður Jó- hanns nú útskýra hins vegar safn- plötubraginn sem yfir plötunni er; þar er að finna ítarlegt ferilsyfirlit eftir Jónatan Garðarsson svo og fjölda ljósmynda frá litríku ævi- skeiði. En að sjálfri tónlistinni. Platan er í mjúkum, höfugum gír og ósvikinn andblær frá áttunda áratugnum – þar sem Jóhann átti sitt tónlist- arlega blómaskeið – leika um sum þeirra. Hér er um að ræða hið áhlýðilegasta popp og mörg laganna eru nokkuð ballöðukennd. Í textum er snert rækilega á ástinni; en dauðinn og vangaveltur um ástand heimsins („Von um betri veröld“) koma og við sögu. Textarnir eru blátt áfram og einlægir, í „Þín söltu tár“ má lesa æðrulaus huggunarorð frá Jóhanni í garð einhvers sem hann elskar og í hinu bráðgóða opn- unarlagi,. „Taktu þér tíma“ er skot- ið á hraða nútímamannsins sem „frestar því að lifa“ vegna æðib- unugangs. Söngur Jóhanns er að sama skapi einlægur og sannur og um plötuna leikur eitthvað sem kalla mætti styrkjandi rósemd hins hugrakka manns sem tekur því sem að hönd- um ber með reisn. Mann grunar nefnilega að titill plötunnar, Á langri leið, sé ákveðin yfirlýsing frá Jóhanni; þ.e. að leiðin verði lengri en læknarnir spá fyrir um … Morgunblaðið/Golli Reisn „Um plötuna leikur eitthvað sem kalla mætti styrkjandi rósemd hins hug- rakka manns sem tekur því sem að höndum ber með reisn,“ segir m.a. í dómi. Jóhann G. – Á langri leið bbbbn ARNAR EGGERT THORODDSEN TÓNLIST Á krossgötum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.