Morgunblaðið - 22.12.2009, Blaðsíða 40
40 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
3 1 7
6
5 7 1 6
9 4
5 2 7
2
7 1 3
3 6
9 4 6 3 5 2
3 6
8 9 1 4
2 1
8 2
4 1 7 6
7 3 2 1
3 7
6
2 8 9
6 9
2 5 7
1 9
4
3 7 4 2
7 8
1 6
4 1 2
8 9 2 3
7 1 4 2 9 3 6 8 5
2 5 6 1 8 4 9 7 3
9 3 8 5 6 7 4 1 2
5 9 3 7 2 8 1 6 4
6 4 1 9 3 5 8 2 7
8 7 2 6 4 1 5 3 9
4 2 7 8 5 6 3 9 1
3 8 9 4 1 2 7 5 6
1 6 5 3 7 9 2 4 8
6 9 8 7 5 4 1 3 2
5 3 4 2 8 1 7 6 9
7 2 1 3 9 6 5 8 4
9 6 5 8 4 2 3 1 7
3 1 7 5 6 9 2 4 8
8 4 2 1 3 7 6 9 5
4 7 9 6 1 5 8 2 3
1 5 3 4 2 8 9 7 6
2 8 6 9 7 3 4 5 1
2 7 8 1 9 5 6 4 3
3 5 9 2 4 6 1 7 8
4 6 1 8 3 7 9 2 5
1 9 2 4 5 8 3 6 7
6 4 3 7 1 9 8 5 2
7 8 5 6 2 3 4 1 9
5 3 4 9 7 1 2 8 6
9 2 6 5 8 4 7 3 1
8 1 7 3 6 2 5 9 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 22. desember,
356. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Ég segi við Drottin: „Þú ert
Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig.“
(Sálm. 16, 2.)
Víkverji fór með bílinn í skoðunfyrir skemmstu. Hann reyndist
í góðu standi nema hvað annað fram-
ljósið var vitlaust stillt. Víkverji varð
því að aka á brott með grænan miða
til marks um bráðabirgðaskoðun.
Eins og löghlýðnum borgara
sæmir brást Víkverji skjótt við þess-
um hnökra. Renndi við hjá þúsund-
þjalasmiðunum á Max 1 uppi á
Höfða en í ljós kom að þar á bæ
bjóða menn ekki upp á þjónustu af
þessu tagi. Var Víkverja vísað á
Mazda-verkstæðið í næsta húsi enda
þótt hann aki ekki um á bifreið af því
tagi. Þar var honum vel tekið og
menn reiðubúnir að leysa vandann.
Víkverji spurði hvað ljósastillingin
tæki langan tíma og hvað hún myndi
kosta. „Hálftíma og svona sjö þús-
und krónur,“ var svarið.
Víkverji hafði ekki tíma til að bíða
í hálftíma, auk þess sem honum
fannst sjö þúsund krónur heldur
hátt verð fyrir framljósastillingu.
Þannig hann kvaðst mundu hugsa
málið.
Þá mundi Víkverji eftir Bílaverk-
stæði Auðuns í Grafarvoginum,
þangað sem hann hefur stundum
leitað gegnum árin – það var áður í
Kópavogi – og ákvað að koma við
þar. Og viti menn; hann fékk fram-
ljósastillingu á fimm mínútum sér að
kostnaðarlausu. Enn og aftur sann-
ast að ekki er sama hvert menn fara
með bíla sína á verkstæði.
Eftir þetta flaug bíllinn gegnum
endurskoðun og Víkverji gat notað
sjö þúsund krónurnar í annað.
x x x
Vill enginn vinna þessa deild?“spurði furðulostinn breskur
bloggari um helgina og átti þar við
ensku úrvalsdeildina í knattspyrnu.
Í fyrra töpuðu stórveldin fjögur, sem
undanfarin ár hafa raðað sér í efstu
sæti deildarinnar, samtals sautján
leikjum allt tímabilið. Eftir ósigra
Liverpool og United um helgina hafa
þau samtals lotið í gras í nítján leikj-
um – og mótið er ekki hálfnað. Er
nema von að aumingja maðurinn
spyrji?
Framundan í Englandi gæti verið
tvísýnasta mót í manna minnum. vík-
verji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 látlausa, 8
lygi, 9 bólgna, 10 keyri,
11 lofar, 13 byggja, 15
sjá eftir, 18 reika stefnu-
lítið, 21 ótta, 22 grand-
inn, 23 gyðja, 24 álappa-
legt.
Lóðrétt | 2 fram á leið, 3
auðugar, 4 hleypir, 5
sjúgi, 6 reykir, 7 karl-
fugls, 12 elska, 14 rengi,
15 skurn, 16 festi, 17
hægt, 18 mannsnafn, 19
dreggjar, 20 fífl.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 svört, 4 fussa, 7 Auður, 8 ólmur, 9 Týr, 11
kugg, 13 barð, 14 álfur, 15 þröm, 17 álfa, 20 hag, 22
fagna, 23 urmul, 24 nælan, 25 lúrir.
Lóðrétt: 1 svark, 2 örðug, 3 tært, 4 flór, 5 summa, 6 af-
ræð, 10 ýlfra, 12 gám, 13 brá, 15 þúfan, 16 öngul, 18
lemur, 19 allar, 20 hann, 21 gull.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c6 2. Rc3 d5 3. Rf3 a6 4. d4 Bg4
5. Be3 e6 6. Bd3 Rf6 7. h3 Bh5 8. a3
dxe4 9. Rxe4 Rbd7 10. De2 Rxe4 11.
Bxe4 Rf6 12. Bd3 Bd6 13. O-O-O Dc7
14. c4 O-O-O 15. Kb1 Hhe8 16. g4 Bg6
17. Bxg6 hxg6 18. Rg5 Hd7 19. Df3
Da5 20. Bd2 Dd8 21. Hhe1 Kb8 22.
Be3 Ka8 23. Hd3 Bb8 24. Hdd1 Ba7
25. De2 Hh8 26. f4 Da5 27. Hd3 Da4
28. Hc1 Da5 29. Rf3 Dc7 30. Re5
Hdd8 31. g5 Rh5 32. d5 Bxe3 33. Dxe3
exd5 34. cxd5 Hhe8 35. dxc6 Hxd3 36.
Dxd3 Rxf4
Staðan kom upp heimsbikarmóti
FIDE sem lauk fyrir skömmu í
Khanty-Mansiysk í Rússlandi. Þessi
keppni fór fram með útsláttarfyr-
irkomulagi og hafði Judit Polgar
(2680) hér hvítt gegn rúmenska stór-
meistaranum Liviu-Dieter Nisipeanu
(2677). 37. Dd7! og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Davíkurþraut I.
Norður
♠Á73
♥–
♦KDG108754
♣D8
Vestur Austur
♠– ♠KD1094
♥ÁDG875432 ♥K9
♦– ♦63
♣7642 ♣G1053
Suður
♠G8652
♥106
♦Á92
♣ÁK9
Suður spilar 4♠ doblaða.
Fjörið er á Dalvík. Í tvímenningi
fyrir skömmu vakti Stefán Jónsson í
suður á 1♠. Vestur stökk í 4♥ og
norður veðjaði á 4♠. Austur taldi sig
vel búinn í þeim leik og doblaði. Allir
pass, ♥Á út og trompað í borði.
„Ég klúðraði spilinu á auga-
bragði,“ skrifar Stefán í tölvupósti:
„Tók spaðaásinn í öðrum slag af
hræðslu við að fara niður í 4-1-
tromplegu. En það mátti ég ekki.“
Austur varðist reyndar vel. Tromp-
aði þriðja tígulinn smátt, þann fjórða
hátt síðar og beið svo með ♠K10-
gaffalinn eftir tveimur slögum í lok-
in. Einn niður reyndist vera 60%
skor í N-S, en Stefán var í ekki rónni
fyrr en hann hafði fundið vinnings-
leið á opnu borði. Hann fullyrðir að
hún sé til ef ♠Á er geymdur. Skoð-
um það á morgun.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ferskar hugmyndir og ný nálgun
munu koma þér að gagni í dag. Nýtt sam-
band er í pípunum. Einhver kemur þér á
óvart bráðlega.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Eitt af því besta í fari þínu er það að
þú æðir áfram óhrædd/ur inn í aðstæður
sem aðrir flýja úr. Lærðu að segja nei
þegar það á við.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Fegurð hlutanna er ekki fólgin í
stærð þeirra. Segðu álit þitt þegar þú ert
beðin/n um það, haltu annars aftur af þér.
Niðurstöður úr rannsókn lofa góðu.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ert skynsemin uppmáluð í dag.
Treystu á innsæið og láttu ekki efasemdir
annarra draga úr þér kjark. Grænn litur
kemur við sögu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú skalt ekki hika við að rétta hjálp-
arhönd ef þér finnst á annað borð að ein-
hver sé hjálparþurfi. Sýndu þolinmæði
gagnvart ættingjum.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú átt í miklum tilfinningalegum
átökum og mátt því ekki við miklu. Vertu
opin/n fyrir nýjum tækifærum. Gættu
þess að ganga ekki of langt í tilburðum
þínum til að vekja athygli annarra.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Allir hlutir þurfa sinn undirbúning.
Nærvera barna er endurnærandi og vek-
ur spurningar um hvað er mikilvægast í
lífinu.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það gengur ekki í augun á öll-
um að spreða fé á báða bóga. Einbeittu
þér að því að leggja inn á bankareikning
tilfinninganna hjá öðrum um jólin.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Nú þarftu að leggja grunninn
að nýjum verkefnum. Miklar tilfinningar
eru í samskiptum þínum við hitt kynið.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Vertu varkár í samtölum þínum
við ástvini í dag. Reyndu að finna jafn-
vægi því aðeins þá geturðu heyrt svar
hjarta þíns sem öllu skiptir.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Áhugasvið þitt er mjög vítt.
Notaðu næstu fjórar vikurnar til að rækta
nánustu sambönd þín og bæta það sem
betur má fara. Lærðu að slaka á.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú verður hugsanlega fyrir von-
brigðum því eitthvað sem þú ætlaðir að
kaupa fyrir heimilið er annaðhvort ekki til
eða allt of dýrt.
Stjörnuspá
22. desember 1966
Vélbáturinn Svanur fórst í
slæmu veðri við Vestfirði og
með honum sex manns. Sama
dag strandaði breski togarinn
Boston Wellvale við Ísafjarð-
ardjúp en áhöfninni var bjarg-
að.
22. desember 1987
Ný lögreglusamþykkt fyrir
Reykjavík var staðfest. Hún
kom í stað samþykktar sem
gilt hafði í meira en hálfa öld.
22. desember 1999
Tunglið var nær jörðu en ver-
ið hafði í 69 ár. Morgunblaðið
sagði að það hefði virst stærra
og bjartara en venjulega.
Næst gerist þetta árið 2052.
22. desember 2000
Halldór Laxness rithöfundur
var valinn maður aldarinnar,
samkvæmt aldamótakönnun
Gallup sem kynnt var í Kast-
ljósinu í Sjónvarpinu. Í sömu
könnun var Vigdís Finn-
bogadóttir valin kona ald-
arinnar og Davíð Oddsson
stjórnmálamaður aldarinnar.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Dagur Snær Heimisson og Andri
Már Rúnarsson gengu í hús og söfn-
uðu með því 623 krónum sem þeir
styrktu Rauða krossinn með.
Hlutavelta
ÁSLAUG Tóka Gunnlaugsdóttir, hönnuður og list-
greinakennari við Norðlingaskóla, segir ekkert
sérstakt standa til í tilefni afmælisdagsins. „Ætli
ég muni ekki bara nota daginn til að klára að
pakka og koma fjölskyldunni upp í sumarbústað í
nágrenni við Kirkjubæjarklaustur. Líklega stopp-
ar maður og fær sér eitthvert nesti í sjoppu á leið-
inni,“ segir Áslaug Tóka og tekur fram að þetta sé
í fyrsta skiptið sem hún prófi að eyða jólunum í
sumarbústað. Áslaug Tóka býr með Birni Inga
Guðjónssyni og þau eiga synina Leikni Loga sem
er fimm ára og Víking Viðar sem er tveggja ára.
Að sögn Áslaugar hlakkar hún til þess að slaka á í sumarbústaðnum
og njóta þess að föndra, baka og skreyta jólatréð með sonunum auk
þess sem gott verði að skella sér í pottinn. „Þetta er í fyrsta skiptið
sem ég hef verið búin að öllu í tengslum við jólaundirbúninginn fyrir
22. desember, því venjulega er maður að klára hlutina á aðfangadag.“
Eftirminnilegasti afmælisdagurinn í huga Áslaugar Tóku var þegar
hún varð fimm ára og jólasveinn, sem hugðist gleðja börnin á heim-
ilinu með nærveru sinni, festist í strompi hússins án þess þó að fara
sér að voða. silja@mbl.is
Áslaug Tóka Gunnlaugsdóttir 35 ára
Pakkar til að fara í bústað
Nýirborgarar
Reykjavík Victoría Sara
fæddist 26. mars kl. 23.25.
Hún vó 3.830 g og var 51
cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Ásta Salný Sigurð-
ardóttir og Viðar Snær
Sigurðsson.
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is