Morgunblaðið - 22.12.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.12.2009, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 2. D E S E M B E R 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 339. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is Gáttaþ efur ko minn Mmmm! Laufabrauð! PIPA R \ TBBW A • SÍA •• 9918 811 *Nánar um skilmála á flytjandi.is Rjómi allra landsmanna «DAGLEGTLÍF DISKURINN ER LAX OG HREINDÝR JULIOS «INGVARGEIRSSON Gamlar og nýjar plötur á Hverfisgötu 6  LIONEL Messi frá Argentínu er knattspyrnumaður ársins í heim- inum 2009, í fyrsta skipti, og Marta frá Brasilíu er knattspyrnukona ársins í heiminum 2009, í fjórða skipti í röð. Þetta var tilkynnt á stórhátíð FIFA, Alþjóðaknatt- spyrnusambandsins, í Zürich í Sviss í gærkvöld. Bæði unnu yfirburða- sigur í kjörinu. »Íþróttir Best Marta og Messi með verðlaun sín í Zürich í gærkvöld. Messi og Marta þau bestu í heiminum árið 2009  REYKJAVÍKURBORG greiðir á einu ári um 430 milljónir fyrir leigu á Egilshöll og nýju Laugardalshöll- inni. Leigan á Egilshöll er mun dýr- ari eða um 265 milljónir á ári en borgin greiðir ríflega 164 milljónir í leigu vegna Laugardalshallar. Kjartan Magnússon, formaður ÍTR, segir samninginn við Egilshöll slak- an. Langdýrasti samningurinn af þessu tagi sé þó vegna Tónlistar- og ráðstefnuhússins. »8 Borgin greiðir 430 milljónir í leigu fyrir tvær hallir SKATTKERFINU var gjörbreytt í gær þegar Alþingi samþykkti band- orm um ráðstafanir í skattamálum og tekjuöflun ríkisins. Helsta breyt- ingin er sú að virðisaukaskattur hækkar um áramótin úr 24,5% í 25,5%. Hvergi annars staðar á byggðu bóli er hlutfallið hærra. Betra að hækka úr 7% Fallið var frá hugmynd um að bæta við einu virðisaukaskattsþrepi með 14% skatthlutfalli á ýmsar vörur og á veitingahúsastarfsemi. Andrés Magnússon, fram- kvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, fagnar því að hætt var við 14% þrepið. Hann er hins vegar þeirrar skoðunar að betra hefði ver- ið að hækka lægra skattþrepið en hækka hið hærra. Breytingarnar leiði til meiri skattheimtu og þar leiðandi minni ráðstöfunartekna. Samtökin gjalda varhug við fjölþrepatekjuskattkerfinu sem samþykkt var og segja að með því sé verið að eyðileggja staðgreiðslu- kerfið. | 6 Skattabandormur gjörbreytir kerfinu HÆKKANDI SÓL OG HÆRRI SKATTAR OG GJÖLD Morgunblaðið/Kristinn Glætan Það léttir flestum lundina að vita að sólin er tekin að hækka á lofti. Það skyggir þó á gleði margra að með hækkandi sól taka lög um hækkanir skatta og gjalda gildi. Þau fela meðal annars í sér að bifreiðagjald hækkar um 10% og aukin gjöld leggjast á eldsneyti. Eftir Hlyn Orra Stefánsson og Önnu Sigríði Einarsdóttur SAMINGURINN um Icesave leyfir ekki að íslenska ríkið stofni nýjan innstæðutryggingasjóð á gildistíma hans, að því er segir í áliti lögmanns- stofunnar Mishcon de Reya. Hinn 30. nóvember sl. lagði efna- hags- og viðskiptaráðherra fram frumvarp um stofnun nýrrar inn- stæðudeildar í Tryggingarsjóði inni- stæðueigenda og fjárfesta. Ekki náðist í Gylfa Magnússon vegna málsins, en talsmenn stjórnar- andstöðunnar segja ljóst að ríkis- stjórnin verði að draga frumvarpið til baka ætli hún að standa við Ice- save-samninginn. Seint í gærkvöldi voru kynnt í fjárlaganefnd drög IFS-ráðgjar að áhættumati vegna Icesave-skuld- bindinganna. Í drögunum mun m.a. vera dregið í efa að það sé þjóðinni í hag að vextir á skuldbindingunum sé fastir. Endanlegt mat IFS á að liggja fyrir á Þorláksmessu, en til stendur að afgreiða Icesave-málið úr fjárlaganefnd í dag. Kristján Þór Júlíusson, þingmað- ur Sjálfstæðisflokks, segist túlka drög IFS á þann hátt að nauðsyn sé á gríðarlegri aukningu landsfram- leiðslu og útflutnings til að standa undir Icesave-skuldbindingum. Í áliti Mishcon de Reya segir að Icesave-samningurinn sé hvorki skýr né sanngjarn og að samkomu- lagið kunni að verða Íslendingum ofviða. Leggur stofan til að íslensk stjórnvöld taki aftur upp viðræður við ríkisstjórnir Breta og Hollend- inga. Nýr sjóður samningsbrot  Bjóða fram ráðgjöf í máli gegn breska ríkinu sem yrði „vandræðalegt“ fyrir Breta  Telja samninginn óskýran  Óskýr og ósanngjarn | 4 Í áliti Mishcon de Reya segir að málatilbúnaður í máli Kaupþings á hendur breska ríkinu hafi ekki verið vandaður. Segist lögmanns- stofan geta veitt ráðgjöf um hvað sé góður málatilbúnaður og að slíkt mál yrði „töluvert áhyggju- efni og vandræðalegt fyrir bresk stjórnvöld“. Skilanefnd Kaup- þings hefur sagt að hún sé sátt við niðurstöðu málsins enda hafi ætlunin einungis verið að draga fram á hvaða grundvelli aðgerðir breskra stjórnvalda gegn bank- anum voru byggðar. Málshöfðun möguleg?  TIL stendur að selja lífeyris- sjóðum ríkistryggð skuldabréf í skiptum fyrir evrur, ef samkomu- lag næst milli Seðlabanka Íslands og evrópskra yfirvalda. Með því er verið að skipta út ríkisskuldabréf- um fyrir aðra slíka pappíra nema hvað eftir skiptinguna eru skuld- bindingar í erlendum gjaldeyri. Takist að selja safnið í skiptum fyr- ir evrur verða skuldbindingar ríkis- ins gagnvart innlendum aðilum sem auðveldar úrlausn mála. »20 Lífeyrissjóðir kaupi ríkis- skuldabréf fyrir evrur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.