Morgunblaðið - 22.12.2009, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 22.12.2009, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2009 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ MargeirPét-ursson, helsti for- ráðamaður MP banka, ritar at- hyglisverða grein í Fréttablaðið í gær. Þar viðrar hann viðhorf varðandi tilurð nýju við- skiptabankanna þriggja, þ.e. þeirra sem reistir voru á rústum hinna föllnu. Svipar þeim til sjónarmiða sem fram komu í Reykja- víkurbréfi fyrir fáeinum vikum. Margeir Pétursson segir í grein sinni að eign- arhald tveggja af þremur nýju bönkunum samræmist ekki lögum um fjármála- fyrirtæki þar sem eigendur þeirra séu þrotabú. Síðan segir: „Mér er ekki kunn- ugt um nokkurt land þar sem þrotabúum er heimilt að fara með virkan eign- arhlut í fjármálafyrirtæki. Það mál verður vænt- anlega einnig leyst með kennitöluskiptum. Ímynd- arsérfræðingar nýju bank- anna túlka þetta sem eign- arhald erlendra aðila og stuðningsyfirlýsingu þeirra við bankana, þótt „eigend- urnir“ virðist að stórum hluta hrægamma- og vog- unarsjóðir í leit að skjót- fengnum gróða. Það hlýtur svo að vera að lagaflækju- og ímyndarmenn föllnu bankanna hafi haldið stöð- um sínum. Það er mjög slæmt ef sá stjórnmála- maður er farinn að trúa þeim, sem áður var í for- ystu efasemdarmanna. Þá er Bleik brugðið.“ Ráðherrann, sem Mar- geir Pétursson vísar til er Steingrímur J. Sigfússon, sem hafði talað um að þrír heilbrigðir bankar væru nú framkomnir. Þetta sárnar forsvarsmanni fjórða bank- ans, þess eina í þessum hópi, sem ekki hefur kost- að skattborgarana neitt. Sárindi hans eru skiljanleg og röksemdirnar sem vitn- að er til hafa ekki fengið þá málefnalegu skoðun sem staðan þó hrópar á. Stjórnun og eignarhald tveggja bankanna af þrem- ur er í skötulíki svo ekki sé kveðið fastara að orði. Ekki er vitað með vissu hverjir eigendur þeirra eru eða verða, og hvað fyrir þeim vakir með eign- arhaldi á þess- um bönkum. Ábendingar Margeirs og þær sem áður höfðu komið fram hér í blaðinu eru um það sem beinast virðist liggja við. Eigendurnir „virðast að stórum hluta hrægamma- og vogunar- sjóðir í leit að skjótfengn- um gróða“. Er það virki- lega svo að enginn í þeirri vinstristjórn, sem nú er við völd, hefur hinar minnstu áhyggjur af því? Menn hafa notfært sér að í umræðunni sem orðið hefur eftir hrun bankanna eiga menn auðveldan leik. Fullyrðingaflaumurinn er slíkur að ekki sér út úr augum. Við þær aðstæður treysta menn því að stað- reyndir séu eingöngu í hlutverki ómerkustu auka- leikara. Því er þannig blá- kalt haldið fram að það að færa íslenska bankaskipan í sama horf og gengur og gerist á Vesturlöndum eigi í raun sök á því hvernig fór. Einkavæðing bank- anna var opið gegnsætt ferli. Þar sátu allir við sama borð og allir vissu hverjir eignuðust bankana. Og ekki varð annað séð en að fáeinum árum síðar væru þeir aðilar vinsæl- ustu menn landsins og helstu viðhlæjendur þeirra hinir sömu og nú þykjast hafa séð allt fyrir en þögðu þá þunnu hljóði af enn óupplýstum ástæðum. En ef sú einkavæðing endaði illa, hvernig halda menn að sú sem nú hefur verið stofnað til fari? Nú veit enginn annað en að „hræ- gömmum“ hafi verið fengið forræði banka, sem hafa íslenskt atvinnulíf í hendi sér og eru með innistæðu- eigendur sem ríkið segist munu ábyrgjast. Eftir Ice- save hefur ríkið ekki styrk til að gefa út slíkar ótak- markaðar ábyrgðaryfirlýs- ingar. Og forræði bank- anna er á hendi þrotabúa, sem að lögum hafa ekki rétt á að fara þar með virkan eignarhlut, svo vitnað sé í orð Margeirs Péturssonar. Ekki hefur þess orðið vart að þjóð- þingið hafi tekið þessa aumu afstöðu til nokkurrar umræðu. „Hrægammar“ og þrotabú fara þvert á lög með forræði tveggja nýju bankanna.} Staða nýju bankanna verður að skýrast S ólin er tekin að hækka á lofti. Stysti dagur ársins er að baki sem er vel því vetrarmyrkrið hefur sjald- an verið eins dimmt og í snjóleysinu undanfarið. Það hefur líka verið óvenjudimmt yfir þjóðinni síðustu vikur og mánuði enda hefur svartagallsrausið í sam- félaginu sjaldan verið jafn yfirþyrmandi. Rökkrið hefur þann ókost að menn eiga það til að tapa áttum og þegar myrkrið verður alltumlykjandi verður skynsamasta fólk vart við hræðilegustu óvætti í hverjum stokk og stein. Eða eins og vinkona mín sagði við mig á dögunum: „Það versta gerist yfirleitt í hausnum á manni.“ Ég ætla þó ekki að halda því fram að áhyggjur landans af framtíð sinni séu ástæðulausar eða að erfiðleikar hans séu ímyndun ein – síður en svo. Vissulega takast Íslendingar þessa dag- ana á við mjög svo raunveruleg vandamál. En það er ekki laust við að framtíðarsýnin, sem misvitrir stjórn- málamenn keppast við að mála til hægri og vinstri, sé lituð af myrkrinu sem þeir virðast vera týndir í. Þetta er hvergi eins skýrt og í umræðum um Icesave- samkomulagið sem hafa verið allt of fyrirferðarmiklar allt þetta árið. Hvort heldur þeir vilja samþykkja eða hafna því virðast þeir allir telja að dómsdagur sé í nánd, verði leið þeirra ekki farin, og á það ekki síst við um stjórnarandstöðuna sem spáir hinu versta verði Icesave-samningarnir að veruleika. Það kann ekki góðri lukku að stýra að treysta á menn til leiðsagnar sem sjá ekki út úr augunum fyrir náttblindu og eru jafn týndir og margir stjórnmálamanna okkar virðast vera. Þess vegna vona ég að þeir fari bráðum að finna sjálfa sig – það væri ágætis byrjun, sérstaklega ef þeir í framhaldinu gætu kannski fundið einhverja ljóstíru til að leiða okkur út úr ógöngunum. Ég held reyndar að þjóðin sjálf sé komin langt með að finna sig að nýju. Vissulega var hún týnd, en þær villur urðu löngu fyrir bankahrunið margumrædda, eða þegar sjálfsmynd hennar hvarf í alþjóðavæðing- unni og tengslin við rætur okkar sem Ís- lendinga rofnuðu á einhvern undarlegan hátt. Einmitt þessar rætur urðu okkur hvað mest virði þegar við misstum fótanna sem endurspeglast meðal annars í því að við fórum að prjóna lopapeysur í gríð og erg og leituðum á ný í fjölskyldusamfélagið. Ég hef líka á tilfinningunni að við séum orðin flinkari í að huga að náunganum, að við séum duglegri við að að- stoða hvert annað þegar þörf er á. Og kannski erum við líka orðin leiknari í að þiggja slíka aðstoð. Með því að dusta rykið af gömlu gildunum held ég að við séum í óða önn að finna rætur okkar að nýju. Og ef við finnum okkur aftur sem þjóð getur fram- tíðin ekki verið annað en björt – við þurfum bara að sjá út úr myrkrinu. ben@mbl.is Bergþóra Njála Guðmundsdóttir Pistill Bjartara framundan STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Eftir Andra Karl andri@mbl.is E nn á ný skapaðist stór- hætta á götum höfuð- borgarsvæðisins þegar karlmaður flúði á stoln- um jeppa undan lög- reglu á sunnudag. Náðist að stöðva manninn áður en vegfarendur hlutu skaða af – tveir lögreglumenn hlutu þó minniháttar meiðsli – og munaði í þetta skipti afar litlu. Maðurinn var í gær úrskurðaður í vikulangt gæslu- varðhald með þeim rökum að af hon- um stafaði almannahætta. Lögregla heldur ekki tölfræði yfir það hversu oft hún þarf að veita öku- mönnum eftirför og því engar áreið- anlegar tölur til. Kristján Ó. Guðna- son, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins, segir þó af og frá að hægt sé að tala um fjölgun slíkra mála og eins að málin hafi ekki vaxið að umfangi. Hann seg- ir að á fyrri hluta ársins 2007 hafi það ítrekað gerst að lögregla þurfti að elta uppi ökuníðinga og endaði m.a. ein slík eftirför með alvarlegu slysi. Heldur dró úr ofsaakstri og eftir at- vikum eftirförum á árinu 2008 og í ár hafi verið fremur lítið um slík mál. Gengu yfir andartaki áður Þó svo að Kristján segi slíkum mál- um hafa fækkað koma allmörg upp í hugann á þessu ári, og dæmi um nokkur þeirra eru hér til hliðar. Fleiri má þó tína til. Mildi er að vegfar- endur hafi ekki slasast í eitthvert þeirra skipta á árinu sem ökumenn sýndu af sér svo vítavert gáleysi sem ofsaakstur innanbæjar er. Í máli mannsins sem sætir varð- haldi vegna atburðanna á sunnudag- inn má tala um ótrúlega mildi. Að sögn sjónarvotts mátti litlu muna þegar maðurinn ók á ofsahraða um Hlíðardalsveg í Kópavogi. Sjón- arvotturinn greindi blaðamanni frá því að um mínútu áður en maðurinn ók stolna jeppanum um, hafi þrjár ungar stúlkur með hund í bandi gengið um gangbraut sem liggur yfir götuna. Sírenur lögreglubílanna hafi á sama tíma ómað. Tíu bílar skemmdir á árinu Á sunnudag reyndu lögreglumenn að stöðva manninn með því að aka ut- an í jeppann og tókst það að endingu. Skemmdir urðu á þremur lög- reglubílum og þar af er einn óökufær. Hann hefur verið tekinn úr umferð á meðan viðgerð stendur yfir. Í hvert skipti sem lögregla veitir eftirför eru allmargir lögreglubílar notaðir, þótt það ráðist fyrst og fremst af því hversu lengi eftirförin stendur. Agnar Hannesson, sem er yfir rekstri lögreglubifreiða ríkislög- reglustjóra, segir að það sem af sé ári hafi tíu bílar verið teknir úr umferð vegna skemmda sem rekja megi til eftirfara. Þó svo að það sé í meira lagi bendir Agnar á að almennum tjónum á lögreglubílum hafi fækkað um helming frá fyrra ári. Það megi fyrst og fremst rekja til forgangsnám- skeiðs sem haldið hafi verið fyrir flesta lögreglumenn. Auk þess fari öflugur starfshópur á vegum ríkislög- reglustjóra yfir þau tjón sem verði. Eftirför lögreglu Lögregla kemur auga á bílinn í Hjallahrauni Fer beint yfir Fjarðar- hraun og niður litla gras- brekku yfir á Bæjarhraun Ekur á öfugum vegarhelmingi nokkur hundruð metra Fer inn í bílastæðahús, ekur á bíl þar og út strax aftur Ekur á bíl í hringtorginu Lögregla ekur utan í bílinn á Hlíðardalsvegi Bíllinn er stöðvaður R e y k ja n e s B R a u t F íFuHvammsveguR s m á R a H va m m sv . H a Fn a R Fj a R ð a Rv eg u R aRnaRnesveguR víFilsstaðaveguR Sjaldnar þurft að elta uppi ökumenn í ár Lögregla höfuðborgarsvæðisins þurfti frá föstudegi til sunnu- dags að veita tveimur ökumönn- um eftirför. Tilvikin eru orðin all- mörg það sem af er ári en þeim hefur þó fækkað. ANNASAMT ÁR Í EFTIRFÖRUM? Í mars sl. hóf lögregla eftirför vegna háska- legs aksturs manns á jeppa. Eftirförin hófst sunnan Hafnarfjarðar og ók maðurinn þrisvar utan í lög- reglubíla. Ökumaðurinn missti stjórn á jeppanum og lenti á brúar- stólpa Breiðholtsbrúar. Stórkostleg hætta skapaðist snemma í apríl þegar ökumaður á þrítugsaldri sinnti ekki stöðvunarmerkj- um lögreglu á Bústaðavegi. Fimm- tán mínútna eftirför sem í voru not- aðir sex til átta lögreglubílar lauk á Víkurvegi í Grafarvogi þegar bíll- inn var þvingaður af götunni. Ökuníðingur stal bif- reið á bensínstöð dag einn í júlí og sást til hennar í Breiðholti. Maðurinn flúði á ofsa- hraða undan lögreglu sem var á sex bílum og mótorhjólum og lauk eft- irförinni í Hvalfirði, við afleggj- arann inn í Svínadal.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.