SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Page 10

SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Page 10
10 27. júní 2010 Kolkrabbinn og véfréttin Paul spáir fyrir um úrslit leiks Þjóð- verjar og Englendinga í 16-liða úrslitum heimsmeistaramóts- ins. Paul valdi skelfisk úr keri með þýska fánanum fram yfir þann enska í sædýrasafni í borg- inni Oberhausen í Þýskalandi. Hann hefur þegar spáð rétt fyrir alla leiki Þjóðverja hingað til á mótinu svo veðbankaeigendur hljóta að fara að loka á veðmál. Veröldin Kolrétt spá Reuters É g hitti varla nokkurn mann sem talar um pólitík þessa dagana og svo hefur reyndar háttað til í nokkrar vikur. Samt eru báðir stjórnarflokkarnir og stærsti stjórnar- andstöðuflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn, með stóra fundi nú um helgina. Sjálfstæðisflokkurinn heldur 39. landsfund sinn; Samfylkingin heldur flokksstjórnarfund og Vinstrihreyf- ingin – grænt framboð heldur flokksráðsfund. Hvers vegna skyldi enginn ræða um pólitík, hvað bjátar hér á í okkar illa stadda þjóð- félagi, hvað má betur fara, hvernig eigi að vinna að úrbótum, hvernig eigi að ná samstöðu og sátt um úrbætur, sem stuðli að sátt, ekki sundrungu? Vissu- lega er rætt um hvaða afleið- ingar dómur Hæstaréttar um ólögmæti þess að gengistengja lánveitingar í íslenskum krón- um hafi, en þær umræður eru enn skammt á veg komnar og óþroskaðar. Vitanlega eru einhverjir að ræða pólitík og hvað sé til ráða, en það eru þá helst flokkshestar og innsti kjarni flokkanna. Við hin hvílum okkur flest á þeirri umræðu, sem hefur skilað afskaplega litlu hingað til. Ekkert heyrist í Steingrími J. og Jóhönnu, engin úrræði, ekkert, og enginn virðist sakna þess að heyra ekkert frá meintum leiðtogum þjóðarinnar. Hvað erum við hin þá að gera? Jú, við erum í tugþúsundatali, vægt áætlað, að skemmta okkur dag hvern yfir HM í fótbolta í Suður-Afríku. Að vísu fór mótið hægt af stað fyrir rúmum tveimur vikum, en það hefur svo sannarlega verið að sækja í sig veðrið og spennustigið í sumum leikjum hefur verið hátt og mikið af stórkostlegum tilþrifum hafa sést frá einstökum liðum í þessari viku. Í mínum augum var Dav- id Villa hreint stórkostlegur í leik Spánverja á móti Hondúras, þótt hann hafi klúðrað möguleikanum á sögulegri þrennu í leikn- um. Það verður að segjast RÚV til hróss að allur undirbúningur fyrir HM og dekkun á meðan á HM stendur er þeim sem þeirri miklu aðgerð stjórna til hreinnar fyrirmyndar. Ég tek undir með félaga mínum, Orra Páli Ormarssyni, sem hrósaði Þorsteini Joð í hástert í ljósvakapistli. Þorsteinn Joð hefur staðið sig hreint frábærlega, bæði í upphitunarþáttunum fjórum sem voru vikulega á dagskrá í heilan mánuð fyrir HM og svo í þáttunum HM-stofan og HM- kvöld sem hafa verið daglega á dagskrá frá því HM hófst, þann 11. júní sl. En ekki má gleyma því hverjir hafa verið gestir Þorsteins Joð í þessum skemmtilegu og fróðlegu spjallþáttum um knattspyrnu, stjörnurnar á HM, leikaðferðir, dómara, klíkuskap, fjölskyldu- tengsl, svarta sauði og ég veit ekki hvað og hvað. Með fullri virð- ingu fyrir öllum gestum þáttanna vil ég nefna tvo menn, sem hafa skarað fram úr og gert þættina að því sem þeir hafa verið, í góðri samvinnu við Þorstein Joð, en það eru þeir Hjörvar Hafliðason og Pétur Marteinsson. Ég fæ ekki betur séð en tvær fullskapaðar sjónvarpsstjörnur hafi litið dagsins ljós á skjánum undanfarnar vikur, þar sem þessir tveir eru. Þekking þeirra á umfjöllunarefn- inu er slík, að ég á vart orð, frásagnargáfa þeirra sömuleiðis, virð- ing fyrir umfjöllunarefninu, mannamálið sem þeir tala svo gjör- samlega auðskiljanlegt, en samt sem áður svo litríkt og oft fyndið, er til algjörrar fyrirmyndar og ástríðuþunginn í frásögnum og skoðanaskiptum þannig, að það þyrfti sljóleika af hæstu gráðu til þess að hrífast ekki með. Dæmi: Hjörvar sagði fyrr í vikunni að svissneska landsliðið væri eitt mest sexý lið keppninnar. „Þeir eru ungir, graðir, villtir, en svolítið heimskir.“ Og Pétur vandaði fýlupokalandsliði Frakka ekki kveðjurnar, eftir að allt fór í loft upp hjá því liði, hristi höfuðið fullur vandlætingar og sagði: „Þeir eru þvílíkar grenjuskjóður, prímadonnur og egóistar.“ Mættum við fá meira frá þessum tveimur að heyra! Ungir, graðir, villtir, heimskir! Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Hjörvar Hafliðason Pétur Marteinsson ’ Ég fæ ekki betur séð en tvær fullskapaðar sjónvarpsstjörnur hafi litið dagsins ljós á skjánum undan- farnar vikur, þar sem þessir tveir eru. Úlfar Jónsson starfar sem íþróttastjóri hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG), en kennir einnig al- mennum kylfingum að slá hvíta boltann. Að auki sinnir hann golflýsingum á Stöð 2 Sport. 7:15 Vakna og fer á fætur eftir eitt „snooze“. Allir fjöl- skyldumeðlimirnir eru komnir í sumarfrí, þ.m.t. eiginkonan, þannig að ég fer hljóðlega um. Fæ mér góðan morgunmat, múslí, skyr og eina ristaða brauðsneið og les blaðið í leið- inni. 8:15 Er kominn á vinnustað minn í golfskála GKG. Les og svara tölvupóstum, mestmegnis frá foreldrum barna og unglinga sem eru að æfa hjá GKG. Nú er vertíðin í algleymingi og ávallt bætast við krakkar í þennan stóra hóp sem æfir á sumrin. Það stefnir í að 200 börn og unglingar stundi æfingar, sem þýðir að grasrótin í GKG er firnasterk og framtíðin björt. Að auki eru 60-70 börn í hverri viku á barnanámskeiðum. Þetta þýðir mikið púsluspil að koma saman æfingatöflu og manna þjálfarastöður. 10:00 Tólf af fjórtán leið- beinendum úr hópi afrekskylf- inga eru að fara að keppa í mótaröð GSÍ á föstudag, þannig að þá kemur upp það skemmti- lega verkefni að fá afleysingar. Nokkrar æfingar þarf að fella niður en námskeiðahaldið mun ganga upp með góðri aðstoð. Hjá GKG er mikill fjársjóður góðra afrekskylfinga sem eru einnig ábyrgir einstaklingar sem sinna námskeiðum og æf- ingum vel. Það er því jákvætt vandamál að leysa þegar þau fara í stærstu mótin að keppa. 11:00 Þarf að klára sveiflu- greiningu á efnilegum kylfingi fyrir tímaritið Golf á Íslandi sem er að fara í prentun. Vind mér í það og tekst að klára það á klukkutíma ásamt því að taka símtöl og svara tölvupóstum. Fleiri foreldrar vilja koma börnum sínum á æfingar. 12:00 Fæ mér hádegismat. Nýr vert í golfskálanum. Því- líkur munur! Gott að borða og glaðlegt starfsfólk. Klára nokk- ur verkefni áður en einka- kennslan hefst. Eldri sonurinn, Aron, heilsar upp á pabba sinn áður en hann fer á golfæfingu. 13:30 Kenni áhugasömum kylfingum hverjum á fætur öðrum, yfirleitt 30 mínútur í senn. Vandamálin eru misjöfn, sumir slæsa, aðrir vilja slá lengra, og enn aðrir þurfa að fara yfir vippin hjá sér. Þetta er gefandi starf og maður gerir sitt besta til að hjálpa. Einn nem- andi hefur gleymt tímanum sínum þannig að ég get sest niður í áhaldahúsinu og fengið mér kaffi. Nota tækifærið og kíki á tölvupóstinn og svara nokkrum slíkum. 19:00 Kominn heim, og á hárréttum tíma því Helga hefur grillað þennan fína silung. Eftir kvöldmatinn er enginn mögu- leiki á afslöppun því yngri son- urinn, Hilmar Jón, vill æfa sig í tennis. Þegar það er búið förum við í karate-leik. 20:30 Það er frábært veður þannig að við förum í hjól- reiðatúr um Fossvogsdalinn og fáum okkur ís. 22:00 Páll Ketilsson, ritstjóri Golfs á Íslandi, hringir og vant- ar leiðbeiningar með að tengja textann minn við myndirnar sem fylgja sveiflugreiningunni. 23:30 Skemmtilegum degi lokið og maður leggst sáttur í rúmið. Dagur í lífi Úlfars Jónssonar, íþróttastjóra og golfkennara Morgunblaðið/Ernir Vertíð í algleymingi

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.