SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Blaðsíða 22
22 27. júní 2010
M
aría er með háskólagráðu í myndlist og listsögu og
var lengi vel með vinnustofu þar sem hún málaði
listaverk. Hún hefur nú einnig lokið MBA námi frá
Háskólanum í Reykjavík. Allt frá því að hún var
unglingur hafði hún þó einnig unnið með blóm og þegar María
fluttist um nokkura ára skeið til Noregs ákvað hún að taka sig til
og læra blómaskreytingar. Í náminu var hún svo heppin að
vinna hjá Thor Gunnarsen sem er einn af Evrópumeisturum í
blómaskreytingum og þekktur í sínu fagi. Hjá honum segist
María hafa fengið bakteríuna en hún stofnaði blómaverslunina
Blómahönnun við heimkomuna árið 2002 og hefur rekið hana
allar götur síðan.
Hefðbundin brúðarblóm
„Thor vann mikið út fyrir rammann og kenndi mér að horfa
frekar á form og liti heldur en að rós væri bara rós. Hann er mjög
virkur í sínu starfi og ferðast um allan heim þar sem hann heldur
sýningar og námskeið. Listabakgrunnurinn hjálpar mér mikið
við blómaskreytingarnar en um leið má líka ekki gleyma því að
þetta er iðngrein og því margar reglur sem ber að fylgja innan
fagsins. Þó er gott að hafa hitt með og það hjálpar manni að
nálgast hlutina öðruvísi. Það er mjög árstíðabundið hvaða blóm
og liti ég nota og fer líka eftir hverju verkefni. Ég hef skreytt
mikið fyrir árshátíðir, aðalfundi og ferðamenn sem koma hingað
með skemmtiferðaskipum og þessum verkefnum er oft tengt
mikið þema. Mér finnst líka gaman þegar ég skreyti fyrir brúð-
kaup hvað brúðir hafa skemmtilega skoðun á því hvernig til-
finningu þær vilja að blómin skapi og það er gaman að vinna
með fólki á þann hátt. Í dag eru brúðarblómin orðin hefðbundn-
ari en þau hafa verið hingað til. Það sem af er sumri hafa kúlu-
og dropalaga vendir verið vinsælir og dropalagið held ég að verði
mjög vinsælt núna eftir brúðkaupið en brúðarvöndurinn hennar
Viktoríu var þannig í laginu. Það hefur allt svona áhrif svo og
tískan, núna eru ljúfir litir vinsælir sem fylgja sumri og vori,
hvítt, bleikt og lillablátt en á haustin fer fólk aftur að velja dekkri
liti,“ segir María.
Konunglegt samstarf
Þegar María var beðin um að koma og sjá um blómaskreytingar í
brúðkaupi Viktoríu og Daniels segist hún fyrst hafa haldið að um
gabb væri að ræða. María hafði áður skreytt fyrir sænsku kon-
ungsfjölskylduna þegar hún kom hingað til lands í rík-
isheimsókn og bauð til kvöldverðar á Nordica hotel. Þar aðstoð-
aði hún Claes Carlsson, hirðblómaskreyti við sænsku hirðina,
við að skreyta veislusalinn en samkvæmt hefðinni kom konugs-
fjölskyldan með allt með sér sem til þurfti í veisluna. Viktoría
hreifst af skreytingunum og fyrir brúðkaupið hafði Claes, sem
þekkir til Thor Gunnarsen, samband við Maríu í gegnum hann.
Þannig kom það til að María slóst í hóp 45 blómaskreyta sem
unnu sleitulaust að undirbúningi fyrir brúðkaupið í heila viku.
Konunglega hirðin í Skandinavíu hjálpast að við undirbúning
brúðkaupa en hópurinn samanstóð meðal annars af blóma-
skreytum frá Noregi og Danmörku. Hópurinn sá um allar
skreytingar fyrir brúðkaupið, inni í kirkjunni utan og innan í
veislusalnum og hvar þar sem þurfti að skreyta.
Mikið sameiningartákn
„Vorlitir voru ríkjandi í skreytingum brúðkaupsins, bleikur,
hvítur, ljós appelsínugulur og húðlitaður en kirkjan var skreytt
með bláu og hvítu en bleikt við altarið eftir óskum Viktoríu.
Bleikar bóndarósir og hortensíur voru áberandi í borðskreyting-
um en einnig voru notaðar orkídeur og fleiri blóm í aðrar
skreytingar. Þau hjónakornin komu síðan reglulega og kíktu á
framkvæmdirnar. Þau spjölluðu við okkur og voru ósköp mann-
leg og almennileg. Svo vona ég bara að nú vilji sem flestir fá
brúðarvöndinn hennar Viktoríu þó það sé örugglega hægt að
velja aðeins ódýrari blóm með en í vendinum voru alls um 12
gerðir af blómum öll í hvítum lit. Vöndurinn var mjög hefð-
Þau Viktoría og Daniel
eru bæði konungleg á að
líta þó blátt blóð renni ei
um æðar hans.
Skreytti fyrir
brúðkaup
Viktoríu
María Másdóttir blómaskreytir er nýkomin frá
Stokkhólmi þar sem hún blómumskrýddi
Storkyrkan dómkirkjuna og veislusal í konungs-
höllinni í Stokkhólmi fyrir hið konunglega brúð-
kaup Viktoríu, krónprinsessu Svía, og Daniel
Westling.
María Ólafsdóttir maria@mbl.is
Morgunblaðið/Jakob Fannar
María Másdóttir blóma-
skreytir skreytti fyrir
Viktoríu krónprinsessu.
Viktoría krónprinsessa er 32 ára að aldri
en brúðgumi hennar, Daniel Westling, er
36 ára. Krónprinsessan nýtur talsverðra
vinsælda í Svíþjóð og er þekkt fyrir afslapp-
aða framkomu þó hún hafi einnig getið sér
orð fyrir að vera með bein í nefinu. Daniel
var lítt þekktur í Svíþjóð áður en hann trú-
lofaðist prinsessunni en hann rekur nokkr-
ar lúxuslíkamsræktarstöðvar. Þau Viktoría
hittust fyrst árið 2001 þegar hann varð
einkaþjálfari hennar en margir bundu litlar
vonir við sambandið til að byrja með. Fregn-
ir herma að faðir Viktoríu hafi verið sér-
staklega ósáttur við ráðahaginn en hún
hafi staðið fast á sínu og virðast ungu hjón-
in mjög ástfangin og hamingjusöm ef
marka má myndir sem birtast í fjölmiðlum.
Með bein í nefinu