SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Blaðsíða 33

SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Blaðsíða 33
27. júní 2010 33 Á þriðjudaginn er fólk hvatt til að taka þátt í átakinu „Til fyrirmyndar“ með því að skrifa bréf sem ber yf- irskriftina „Takk fyrir að vera til fyrirmyndar.“ Bréfið má senda til fjölskyldu, vina, vinnustaða, fé- lagasamtaka eða annarra sem bréfritarar telja hafa verið til fyrirmyndar á einn eða annan hátt. Bréfsefni verður dreift inn á heimili um allt land dagana 29. og 30. júní. Bréfin má setja ófrímerkt í póst. Jakobína veit ekki hvort henni eigi eftir að berast bréf en er ánægð með að átakið sé tileinkað Vigdísi Finnbogadóttur. „Hún stóð sig mjög vel sem forseti og var landi og þjóð til sóma. Við fáum sennilega aldrei forseta sem stendur henni á sporði.“ Þegar Jakobína er spurð hvað henni finnist um þær konur sem nú skipa sér í framvarðasveit sam- félagsins hugsar hún sig stundarkorn um. „Ég veit það ekki,“ byrjar hún svo. „Ég er hrædd um að sum- ar þeirra séu að gleypa of stóran bita. Konur hafa margt á sinni könnu sem ekki má hlaupa frá, svo sem að ala upp börnin sín og sjá um heimilið. Eða eins og sagt er: „Enginn er sem móðir og fár sem faðir.“ Karlmenn verða alltaf bara börn mæðra sinna og taka aldrei við því hlutverki sem konunni er eðli- legt. Þeir hafa ekki bein í það. Láttu mig vita það, maðurinn minn er einbirni.“ – Eins og ég! „Hjálpi mér! Ég þarf að kynnast konunni þinni.“ Og Jakobína er með ráð handa konum þegar karl- arnir fara að gerast þeim hvimleiðir. „Ég hitti unga konu um daginn sem sagðist alltaf vera að rífast við manninn sinn – um allt. Ég gaf henni sama ráð og öðrum konum. Það er afskaplega einfalt, segið bara: „já, elskan mín,“ þá dettur allt í dúnalogn. Það er algjört lyk- ilatriði ef samband á að ganga. Gildir þá einu hvort þið meinið það eða ekki,“ segir hún stríðnislega. „Það þarf tvo til að deila og fyrir vikið er brýnt að vera diplómatískur. Vera með krepptan hnefann öðrum megin en gullið í hinni hendinni.“ Karlmenn verða alltaf bara börn mæðra sinna sinn ábyrgan fyrir því. „Hann er svo hrifinn af kvenfólki.“ Spurð hvort hún eigi ljósmynd af öllum hópnum svar- ar hún neitandi, börn séu enn að fæðast. Nú galopnast eyrun á Trausta og munnurinn í kjölfarið. „Ekki hjá okk- ur samt. Ef það væri raunin yrðuð þið á augabragði heimsfrægir blaðamenn.“ Það er létt yfir Gable. Jakobína gerir ekki mikið úr sínum hlut í því að koma átta börnum til manns. „Þetta er bara eitthvað sem mað- ur fær upp í hendurnar og hættir ekkert við. Ég hef streist við það að börnin mín yrðu sjálfbjarga og stæðu við sitt. Það hefur gengið ágætlega,“ segir hún en viðurkennir að gengið hafi á ýmsum á stóru heimilinu. „Það gat verið fjör.“ Hjónin unnu um tíma á hóteli hjá Helga Benediktssyni, hinum góðkunna athafnamanni í Eyjum. Raunar fékk Jakobína vinnuna fyrir hreina tilviljun. „Danskur kokkur sem var að vinna á hótelinu á þessum tíma fór á fyllerí á þjóðhátíð og ég var fenginn til að leysa hann af á meðan. Eftir þjóðhátíð ákvað Helgi, sem var Þingeyingur, að halda mér en losa sig við Danann.“ Dó úr kleinuáti Hún starfaði á hótelinu uns Helgi lést. „Sumir segja að hann hafi dáið úr kleinuáti. Alltént þótti honum klein- urnar mínar mjög góðar, líklega illu heilli en hann var veill fyrir hjarta, blessaður,“ segir Jakobína en klein- urnar hennar eru löngu landsfrægar. Hún státar meira að segja af titlinum Kleinumeistari Íslands 2003. „Skessuhorn stóð fyrir þessari keppni og ég var beðin um að taka þátt. Og vann.“ Keppnin hefur verið haldin síðan, a.m.k. í tvígang, en Jakobína hefur verið fjarri góðu gamni. „Þegar maður er búinn að vinna er tilgangslaust að keppa aftur.“ Verðlaunakleinurnar eru á borðinu, bornar fram með rabbarbarasultu, vitaskuld heimalagaðri. „Annað er ekki notað hér.“ Kleinurnar standa algjörlega undir vænt- ingum – renna ljúflega niður í okkur Raxa. En hver er galdurinn? „Ég fór í húsmæðraskóla á Laugum en lærði ekki að baka kleinur þar. Þetta er bara eitthvað sem lífið kennir manni. Galdurinn er fyrst og fremst að nota rjóma í stað- inn fyrir smjör,“ upplýsir Jakobína. Hrærivél án rafmagns Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hún vinnur til verðlauna fyrir bakstur en fyrir margt löngu hlaut Jakobína önnur verðlaun í baksturskeppni O. Johnson og Kaaber fyrir forláta rúgmjölsköku. „Ég átti raunar að vinna,“ rifjar hún upp. „Konan sem lenti í fyrsta sæti hafði nefnilega atvinnu af bakstri en það stríddi gegn reglum keppn- innar.“ Verðlaunin voru ekki af verri endanum, full karfa af kaffi og hrærivél. Jakobína hafði raunar engin not fyrir hana enda ekkert rafmagn í sveitinni þar sem hún bjó á þeim tíma. Dóttir hennar fékk hrærivélina seinna. Ekki var heldur rennandi vatn í húsinu og Jakobína var vön að sækja það í kvísl nokkra í nágrenninu. „Ég áttaði mig ekki alltaf á því að það gætti flóðs og fjöru upp við tún og lenti jafnvel í því að brúsarnir hreinlega hurfu,“ rifjar hún upp hlæjandi. „Ég er búin að prófa margt um dagana. Lífið er ekki alltaf eins og rjómi úr skilvindu.“ Árið 1972 var Eyjamaðurinn Magnús B. Jónsson ráðinn skólameistari Bændaskólans á Hvanneyri og fékk Trausta með sér. „Hann vantaði félagsmálamann og bað mig að koma með sér en ég var æskulýðsfulltrúi í Eyjum á þess- um tíma, auk þess að vera menntaður búfræðingur. Upphaflega ætlaði ég bara að vera í eitt ár en hér er ég enn,“ segir hann. Jakobína varð eftir í Eyjum en kom til Hvanneyrar eftir gos. „Trausti losnar ekkert við mig.“ Þau seldu húsið sitt í Eyjum og settust að á Hvanneyri. „Hér hefur okkur liðið virkilega vel,“ segja þau einum rómi. Heimsókninni til þessara eldhressu heiðurshjóna lýkur á myndatöku í garðinum. „Sérðu, hérna gjóar hún aug- unum á þig,“ segir Raxi við Trausta þegar hann sýnir honum myndina. „Hvað ertu að segja, er hún byrjuð á því, blessunin? Það eru fyrstu merkin um elliglöp ...“ Morgunblaðið/RAX 4 stórir bollar hveiti 2 dl. rjómi 2 tsk. lyftiduft, venjulegt 1 tsk. hjartarsalt 2 egg vanillusykur 1 bolli strásykur 2 dl. súrmjólk 1 tsk. matarsódi 2 tsk. þurrger kardimommudropar tólg og pönnufeiti til helminga, til að steikja úr Öllu blandað saman. Hnoðað. Flatt út fremur þykkt. Skorið í 3 cm breiðar lengjur og á ská í 5 cm langa bita. Á miðju hvers bita er gerð rifa og kleinunni snúið við. Raðað á bakka. Feitin hit- uð í 200°C í potti, gjarnan rafmagnsdjúpsteiking- arpotti sem heldur jöfnum hita. (Fitan er heit þegar sýður í kring um eldspýtu.) Kleinurnar steiktar móbrún- ar báðum megin. Færðar upp á pappír, sem sýgur í sig fitu. Verðlaunagripurinn sem Jakobína fékk þegar hún varð Kleinumeistari Íslands. Verðlaunakleinur Jöggu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.