SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Blaðsíða 55

SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Blaðsíða 55
27. júní 2010 55 LISTASAFN ÍSLANDS Söfnin í landinu 26. júní - 22. ágúst 2010 Formlegt aðhald verk Eiríks Smith 1951–1957 Sunnudag 27. júní kl. 15 - Leiðsögn um sýninguna Opið 12-17, fimmtudaga 12-21, lokað þriðjudaga www.hafnarborg.is sími 585 5790 Aðgangur ókeypis AÐ ÞEKKJAST ÞEKKINGUNA 15 samtímalistamenn Leiðsögn og sýningarspjall sunnud. 27. júní kl.15 Kaffistofa leskró - barnahorn OPIÐ: alla daga. kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS www.listasafnarnesinga.is Hveragerði ÓNEFND KVIKMYNDASKOT, Cindy Sherman 16.5. - 5.9. 2010 Sunnudagsleiðsögn kl. 14 Hulda Hlín Magnúsdóttir listfræðingur ÁFANGAR, verk úr safneign 16.5. 2010 - 31.12. 2012 EDVARD MUNCH 16.5. - 5.9. 2010 HÁDEGISLEIÐSAGNIR þriðjudaga og föstudaga kl. 12.10-12.40 Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600 OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga. Allir velkomnir! www.listasafn.is SAFNAHÚSIÐ Á HÚSAVÍK NÝJAR SÝNINGAR! MANNLÍF OG NÁTTÚRA - 100 ár í Þingeyjarsýslum Á sýningunni er fjallað um margslungið samspil manns og náttúru á árabilinu 1850-1950. Ljósmyndir Silla - Sigurðar Péturs Björnssonar (1907-2007). Silli tók myndir í hálfa öld, sýnd dæmi úr merkilegu safni hans. Myndlistarsýning. Joris Rademaker er hollenskur listamaður sem býr á Akureyri og vinnur með náttúruleg efni og form. Sjóminjasýningin í pýramídanum er á sínum stað. Verslun/kaffi Opið alla daga 10-18. Sími 464 1860. www.husmus.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir. ÍSLAND::KVIKMYNDIR 1904-2009. Þróun kvikmyndagerðar á Íslandi. Um 100 íslenskar kvikmyndir, sem hægt er að skoða í fullri lengd. „Íslendingar“. Ljósmyndasýning Sigurgeirs Sigurjónssonar og Unnar Jökulsdóttur. Þjóðarsálin fönguð í myndum og texta. Þjóðin og náttúran. Íslensk dýralífsmynd fyrir börn og fullorðna. Mynd- gerð: Páll Steingrímsson. Í ljósi næsta dags. Sýning um þýðingarstörf, skáldverk og baráttumál Sigurðar A. Magnússonar, rithöfundar. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00 -17.00. www.thjodmenning.is Listasafn Reykjanesbæjar Efnaskipti/Metabolism: Anna Líndal, Guðrún Gunnars- dóttir, Hildur Bjarnadóttir, Hrafnhildur Arnardóttir, Rósa Sigrún Jónsdóttir. Byggðasafn Reykjanesbæjar Bátasafn Gríms Karlssonar Opið virka daga 11.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn VÍKINGAHEIMAR Skipið Íslendingur og sögusýning - Söguleg skemmtun VÍKINGABRAUT 1 - REYKJANESBÆ Opið alla daga frá 11:00 til 18:00 Sími 422 2000 www.vikingaheimar.com info@vikingaheimar.com „Úr hafi til hönnunar“ 27.5. - 5.9. 2010 Sýning á íslenskri og erlendri hönnun úr íslensku sjávarleðri. „Sýnishorn úr safneign“ Opið alla daga nema mánudaga kl. 12-17. Verslunin Kraum í anddyri og kaffiveitingar. Garðatorgi 1, Garðabær www.honnunarsafn.is LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR v/Hallgrímstorg og Freyjugötu Opnunartími safnsins 1. júní–15. sept.: 14:00-17:00 alla daga nema mánudaga. Aðgangur ókeypis á sunnudögum. Höggmyndagarðurinn við Freyjugötu alltaf opinn. Sími: 551 3797, netfang: skulptur@skulptur.is GEYSISSTOFA – MARGMIÐLUNARSÝNING Í nútímalegu margmiðlunar- safni á Geysi er að finna margskonar fróðleik um náttúru Íslands. OPIÐ: alla daga 10.00-17.00. AÐGANGSEYRIR: 1.000 KR. Afsláttur fyrir námsmenn, eldri borgara og hópa Geysir í Haukadal, sími 480 6800 www.geysircenter.is Verið velkomin ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Sögustaðir - Í fótspor W.G. Collingwoods Myndir Einar Fals Ingólfssonar og W.G. Collingwoods Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík Klippt og skorið – um skegg og rakstur Endurfundir – Fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna! Skemmtileg safnbúð og Kaffitár! Opið alla daga 10-17. Aðgangur ókeypis fyrir börn. www.thjodminjasafn.is – s. 530 2200 H lynur Hallsson og Jóna Hlíf Halldórs- dóttir leiða saman hesta sína á sýningu í Listasafni ASÍ, Freyjugötu, undir yfirskriftinni „Áfram með smjörlíkið!“ eins og krotað hefur verið utan á húsið. Undirtitill sýningarinnar er Innantóm slag- orð. Staðsetning sýningarinnar vísar til Ragnars Jónssonar iðn- rekanda og listaverkasafnara, sem kenndur var við smjörlík- isgerðina Smára, en árið 1961 færði Ragnar Alþýðusambandi Íslands listaverkasafn sitt að gjöf. Hlynur og Jóna Hlíf minna á stuðning Ragnars við listamenn með því að sýna 5 málverk úr stofngjöf hans til ASÍ. Um er að ræða verk þekktra listamanna sem lýsa sígildum viðfangsefnum listasögunnar: skipamynd eftir Kjarval, fjallamynd eftir Ásgrím, blómauppstillingu eftir Jón Stef- ánsson og sjálfsmynd Júlíönu Sveinsdóttur, auk afstrakt- málverks eftir Þorvald Skúlason. Valið á mynd Kjarvals af togar- anum Íslendingi, er vafalaust ekki tilviljun en myndin er frá fyrstu sýningu hans árið 1908 og tengist bjartsýni við upphaf tog- araútgerðar. Slík „útgerð“ fór að lokum fram úr sér og þjóðin situr nú í súpunni, um hundrað árum síðar, og veltir fyrir sér framtíð íslensks fullveldis. Skúlptúr Jónu Hlífar fyrir miðjum Ásmundarsal virðist lýsa nýafstaðinni veislu, heldur skuggalegri, þótt skraut sé í fánalitum. Sýningargestir geta búið sér til kórónu úr gylltum Ljóma- smjörlíkispappír og brugðið sér þannig í gervi „smjörlík- iskónga“, en smjörlíki virðist hugsað sem táknmynd gervi- gilda og gervipeninga. Spyrja má hvort hér sé einnig verið að gera gys að þætti í íslenskri sjálfs- mynd sem lýsir sér í oflæti og belgingi. Á sýningunni má jafn- framt greina ádeilu á valdafíkn og neyslugræðgi sem hér hefur viðgengist í seinni tíð, samanber mynd Jónu Hlífar af konu með kórónu, opinmynntri og blárri í kringum munninn. Ragnar í Smára setti Bláa borðann, sér- stakt vítamínsmjörlíki, á mark- aðinn og í myndbandi Jónu Hífar í Arinstofu sést hvar blámálaður, uppvísandi þumall hjakkar í Ljóma-smjörlíkispakka, sem minnir á gullstöng, eins og til að árétta að þarna sé ekki um smjör að ræða og gullið tálsýn ein. Í sameiginlegu verki þar sem gest- um er boðið að rita „hugmyndir fyrir nýja Ísland“ á smjörlík- ispappír og henda í ruslakörfu – gefa Hlynur og Jóna til kynna að tal um nýjan samfélagssáttmála sé fátt annað en innantóm slag- orð, og að hugsjónir séu liðnar undir lok í markaðs- og auglýs- ingavæddum heimi (og listin er í boði smjörlíkisgerðarinnar Ljóma). Paródían heldur áfram í stóru ljósmyndaverki Hlyns í Ásmundarsal. Þar stendur m.a. „við villumst ekki í Tókýó“ og annað innantómt tal, og svipað má segja um textasamsuðu sem hann hefur úðað á vegg þar hjá. Blái liturinn tengist vænt- anlega einnig gagnrýni lista- mannanna á markaðsöfl, kapít- alisma og ekki síst frjálshyggjuna. Með vísun í Ragnar í Smára, og listaverka- safn hans, í þessu samhengi beinist gagnrýnin óhjákvæmi- lega að honum, væntanlega sem kapítalískum velunnara list- arinnar. Tengsl listar og mark- aðar er hins vegar gömul saga, og hafa margir vildarmenn lagt hönd á plóginn í þeim efnum – það er því allt eins hægt að gefa vestrænum nútíma á baukinn sem og listasögunni allt aftur til upphafs endurreisnartímans. Hér fer lítið fyrir söknuði eftir liðnum tíma (sakleysis og smjörs?), heldur virðist innlend menningarsaga (listaverkin úr safni Ragnars og húsgögn frá 6. áratugnum í sama sal) sömuleiðis sitja föst í feni gervimennsku, tilgangsleysis og merking- arskorts. Og það er kannski til að „kóróna“ hjómið að gagnrýni sýningarinnar drukknar í þess- um sama pytti. Drýpur hvergi smjör? Myndlist Áfram með smjörlíkið! bbbnn Listasafn ASÍ Hlynur Hallsson og Jóna Hlíf Halldórs- dóttir. Til 4. júlí 2010. Opið þri. til su. kl. 13-17. Aðgangur ókeypis. Anna Jóa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.