SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Blaðsíða 29
27. júní 2010 29
virkar einfaldlega ekki að fara og mynda fólk með alnæmi brosandi í jakkafötum á
skrifstofu. Það myndi ekki safnast ein króna með þeim hætti. Raunveruleikinn
fyrir utan skrifstofugluggana var allt annar.
Fjölmiðlar heimsins hafa klikkað svolítið á því seinustu árin að sýna raunveru-
leikann í heiminum, lífið á jörðinni hjá venjulegu fólki. Í dag snýst allt um það að
sýna frægt fólk að fara buxnalaust á ball í glanstímaritum. Fólk sem varla veit
sjálft fyrir hvað það er frægt og hefur ekkert gert í raun og veru til að verðskulda
alla þá athygli sem að því beinist. Papparazzi-ljósmyndarar viðhalda frægð
þeirra. Það er eins með allt efni í blöðum og tímaritum, það fer allt í hring í tísku-
sveiflum, allt hefur sinn tíma um stund. Blöð og tímarit breytast með nýju fólki
og allir halda að þeir séu að finna upp hjólið. Það var bara óvart búið að finna það
upp áður. Það er kannski kominn tími á það í fjölmiðlaheiminum að skoða hvað
var í blöðum og tímaritum þegar þau voru stærst og snúa þeirri þróun við sem átt
hefur sér stað um allan heim.
Það var smá stapp að fá að fara inn í hverfið og mynda raunveruleikann eins og
hann var. Það var ekki fyrr en Þórir Guðmundsson hjá Rauða krossinum gerði
þeim í Afríku grein fyrir því að þannig yrði það að vera. Það verður að sýna fólkið
sem þjáist og fær litla hjálp, ekki einhvern í jakkafötum á skrifstofu.
Það var búið að vara mig við því að fara inn í hverfið, það gæti verið hættulegt,
ég fann ekki fyrir því, fólkið sýndi mér engan fjandskap. Þvert á móti. Mér var
meira að segja boðinn rakstur á rakarastofu með rakhníf, ég afþakkaði það, sagð-
ist vera að safna skeggi þó að enginn gæti séð það.
Það hefur mikið breyst frá því að við vorum í Afríku að mynda alnæmi, ný lyf
eru komin á markaðinn sem lengja líf fólks.
Nú er hátíð í Afríku, heimsmeistarakeppnin í fótbolta á fullu og lífsgleðin við
völd. Það má sjá í frábærri ljósmyndabók Páls Stefánssonar sem er nýkomin út og
sýnir litadýrð lífsins í Afríku, heimsálfu sem er engu lík.