Morgunblaðið - 05.01.2010, Síða 1

Morgunblaðið - 05.01.2010, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 5. J A N Ú A R 2 0 1 0 STOFNAÐ 1913 2. tölublað 98. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is Sérblað um skóla og námskeið fylgir Morgunblaðinu í dag «SÓLSTAFIR MUNU SPILA Á HÁTÍÐ MEÐ IRON MAIDEN «TÍSKAN 2010 Pönkaraskapur og rifnar buxur 6 Eftir Ívar Pál Jónsson ivarpall@mbl.is ERLEND staða þjóðarbúsins er sennilega hundruðum milljarða króna lakari en tölur Seðlabankans sýna. Tölur bankans yfir beina er- lenda fjármunaeign Íslendinga inni- fela að öllum líkindum eignir sem komnar eru til gömlu bankanna, Kaupþings og Glitnis, og eru því í raun í eigu erlendra kröfuhafa. Nýjustu tölur Seðlabankans um erlenda fjármunaeign hljóða upp á 888 milljarða króna, en inni í þeirri upphæð eru að öllum líkindum er- lendar eignir Baugs, Bakkavarar, Actavis, Promens og Eimskips, svo dæmi séu tekin. Talan gefur til kynna stöðuna í lok september á síð- asta ári, en hún er ekki sundurliðuð. Sundurliðað yfirlit yfir erlenda fjármunaeign um næstsíðustu ára- mót, 2008-9, er hins vegar að finna á vef Seðlabankans. Þá var eignin metin á 1.063 milljarða króna. Inni í þessari upphæð voru t.a.m. eignir í „textíl- og fataiðnaði“, „raftækjum og tæknivörum“ og „verslun“. Leiða má líkur að því að þessar erlendu eignir, sem nema alls um 230 millj- örðum króna, hafi að drjúgum hluta verið í eigu Baugs. Sem kunnugt er er Baugur gjaldþrota. Hafa ber þó þann fyrirvara á þessum tölum að Morgunblaðið hefur ekki nákvæma sundurliðun undir höndum. Seðla- bankinn sagðist ekki geta orðið við beiðni blaðsins um birtingu talnanna utan reglulegra birtingardaga. Erlendar eignir ýktar? Staða þjóðarbúsins er að líkindum hundruðum milljarða króna verri en opinberar tölur Seðlabankans segja til um  Erlend eign ofmetin? | 13 SÓL og snjór hefur löngum farið vel saman og þá flykkist fólk gjarnan út til að leika sér á einn eða annan hátt og svo var um pilta þessa sem æfðu sig í íshokkíi á Reykjavíkurtjörn í gær. Fólk nýtur þess að hlaupa á skautum, renna sér á skíðum eða fara út að ganga á fögrum vetrardögum. SÓLIN KYSSIR KIRKJUTURNINN Morgunblaðið/Árni Sæberg  TÖLUVERÐ samskipti voru milli Fram- sóknarflokksins og Bændaflokks- ins í A-Þýska- landi á tímum kalda stríðsins. Bændaflokk- urinn var að nafninu til sjálfstæður stjórnmála- flokkur, en starfaði í skjóli og undir stjórn austurþýska komm- únistaflokksins. Fulltrúi Fram- sóknarflokksins sótti m.a. flokks- þing Bændaflokksins í Berlín. Þetta kemur fram í skjölum sem Kjartan Ólafsson, fyrrverandi rit- stjóri og alþingismaður, safnaði saman í Berlín og afhenti Þjóð- skjalasafni Íslands. Verkalýðsfélög á Íslandi áttu í formlegum samskiptum við austurþýska kommúnistaflokkinn eftir að herir Varsjárbandalags- ríkjanna réðust inn í Tékkóslóv- akíu 1968. Innrásin varð til þess að Alþýðubandalagið markaði þá stefnu að slíta öll formleg tengsl við kommúnistaflokkana í A- Evrópu. »4 Framsókn í samskiptum við kommúnista í A-Berlín  ODDVITAR flokkanna sem eiga fulltrúa í sveitarstjórn Borgarbyggðar ræddu síðdegis í gær möguleika á að endurvekja samstjórn allra flokka. Samræð- urnar leiddu ekki til niðurstöðu, að sögn Björns Bjarka Þorsteins- sonar, forseta sveitarstjórnar, og framhaldið er óljóst. „Þjóðstjórn“ sprakk fyrir ára- mót vegna ágreinings um leiðir við sparnað í rekstri fræðslumála þar sem meðal annars var rætt um lokun Kleppjárnsreykjaskóla. Björn Bjarki tekur fram að þrátt fyrir ágreining séu málin rædd áfram og stjórn sveitarfélagsins haldist í sínum föstu skorðum á meðan. »12 Reynt að endurvekja „þjóðstjórn“ í Borgarbyggð Ef rétt reynist, að bein erlend fjármunaeign Íslendinga er hundruðum milljarða minni en opinberar tölur segja, þýðir það að staða þjóðarbúsins er verri sem því nemur. Þetta þýðir að gjaldeyris- tekjur af erlendum eignum verða minni en ella sem eykur aftur þrýsting á gengi íslensku krónunnar. Lægra gengi krón- unnar þýðir svo að erlendar skuldir aukast, mældar í íslensk- um krónum. Þrýstingur á krónu Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „ÞAÐ sem ég vil segja um þetta mál er að ég get bent á mitt atkvæði í þinginu, þar sem ég greiddi atkvæði með þjóðaratkvæðagreiðslu um málið,“ segir Guðfríður Lilja Grét- arsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna, sem telur það ekki mundu verða banabita ríkisstjórn- arinnar fari svo að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, synji Icesave-lögunum staðfestingar. „Ég hef alltaf talið fráleitt að binda líf ríkisstjórnarinnar við eina tiltekna niðurstöðu í Icesave. Þetta er mál þjóðarinnar allrar. Ríkisstjórnin hefur sjálf talað fyrir lýðræðisumbótum. Vinstrihreyf- ingin – grænt framboð hefur ítrekað talað fyrir því að fólk eigi að geta krafist þjóðaratkvæðagreiðslu,“ segir Guðfríður Lilja, sem telur þá töf sem orðið hefur á því að forsetinn taki afstöðu til laganna ekki hafa orðið til að skaða hagsmuni Íslands erlendis. Umræðan erlendis styður málstað Íslands „Öll umræða um Ísland og Icesave og að þetta sé okkur þungbært, sem það er, skaðar ekki málstað Ís- lands heldur frekar hjálpar honum. Það dregur athygl- ina að því hvað þetta er erfitt mál fyrir lítið land.“ Á ellefta tímanum í gærkvöldi höfðu ríflega 62.000 manns skorað á forsetann að synja lögunum staðfest- ingar á vef Indefence-hópsins, tala sem hún telur að „forseti sem og allir aðrir hljóti að íhuga alvarlega“. Spurður hvaða afleiðingar það hefði ef forsetinn synjaði lögunum staðfestingar segir Árni Þór Sigurðs- son, flokksbróðir Guðfríðar Lilju og formaður utan- ríkismálanefndar, að það mundi leiða til þess að „ný staða væri komin upp í íslenskum stjórnmálum sem rík- isstjórnarflokkarnir þyrftu að meta“. „Stjórnmálalífið allt þyrfti að velta stöðunni fyrir sér [...] vegna þess að þá er auðvitað að koma hér upp í ann- að skipti álitamál um það hvaða vald forsetinn hefur raunverulega samkvæmt stjórnarskránni.“ Spurður um hvaða afleiðingar það hefði fyrir stjórn- arsamstarfið að forsetinn neitaði að undirrita lögin kveðst Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylk- ingarinnar, „ekki ætla út í neinar vangaveltur um það“. „Mikilvægt sé að forsetinn taki af skarið.“ Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, segir í bloggi að ríkisstjórnin hafi ekkert leyfi til að fara frá vegna Icesave-málsins. Gert er ráð fyrir að Ólafur Ragnar geri grein fyrir ákvörðun sinni á blaðamannafundi klukkan 11 á Bessastöðum í dag. | 6 Synjun ekki banabiti stjórnvalda Ólafur Ragnar Grímsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.