Morgunblaðið - 05.01.2010, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór
Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
ÞEIR voru brosmildir félagarnir Jón Berg Reynisson
og Vilhelm Arason, á netabátnum Árna í Teigi, sem
landaði þorskaflanum í Grindavíkurhöfn í gær. Afla-
brögðin voru hins vegar dræm líkt og myndin ber með
sér og er það í takt við það sem verið hefur undanfarið
að sögn Sverris Vilbergssonar, hafnarstjóra í Grinda-
vík. Segir Sverrir netabáta hafa verið að ná einu til
tveimur tonnum af ufsa og þorski í róðri og litla línu-
báta allt að fimm tonnum af löngu.
Þorskurinn er nú sá fiskur sem menn bíða eftir, enda
fæst gott verð fyrir hann á mörkuðum um þessar
mundir. „Þeir slá ekki hendinni á móti þorskinum,“ seg-
ir Sverrir. Lítið af þorski hafi hins vegar verið í sjónum
utan við Grindavík, þó að hann sé ekki frá því að ein-
hver breyting hafi orðið þar á síðustu daga. „Við erum
farnir að verða varir við þorsk og ýsu sem varla hefur
sést. Verðum við ekki að segja að það sé betri tíð í
vændum?“
Bátsverjarnir á Árna í Teigi eru að minnsta kosti
bjartsýnir, jafnvel þó að róðrarnir milli jóla og nýárs
hafi gefið lítið af sér. „Þorskurinn er ekki byrjaður, en
það fer að koma mokið,“ segir Jón Berg. „Það er nefni-
lega nóg af fiski í sjónum. Það vantar bara að auka við
kvótana og bjarga þjóðarbúinu.“
Lítil sjósókn yfir hátíðarnar
Fáir bátar voru á sjó yfir jólahátíðina þrátt fyrir
miklar stillur.
Samkvæmt upplýsingum frá Vaktstöð siglinga var
einungis eitt skip á sjó á nýársdag, en auk þess var sjó-
sókn lítil milli jóla og nýárs. Menn virðast hins vegar
hafa flykkst út eftir áramótafögnuðinn, því í gær voru
230 skip á sjó víðs vegar umhverfis landið og voru 212
þeirra íslensk. Strekkingsvindur hafði áhrif á sjósókn út
undan Norðausturlandi og á Austfjörðum og voru flest
skipin því á Breiðafirði, Faxaflóa og út með Vestfjörð-
unum.
Nóg til af fiski til að
bjarga þjóðarbúinu
230 skip á veiðum í gær Eitt skip á sjó á nýársdag
Morgunblaðið/RAX
Aflinn Gott verð fæst fyrir þorskinn, sem skipverjarnir á Árna í Teigi eru bjartsýnir á að fari að láta sjá sig.
GREIÐSLUSTOFA Vinnumála-
stofnunar greiddi tæplega 23,9 millj-
arða króna í atvinnuleysisbætur á
síðasta ári. Er þetta langhæsta upp-
hæð sem greidd hefur verið í at-
vinnuleysisbætur á einu ári til þessa.
Enn er eftir að greiða út bætur
fyrir síðasta ár, en að sögn Líneyjar
Árnadóttur, framkvæmdastjóra
Greiðslustofu, mun upphæðin ekki
hækka umtalsvert.
Á gamlársdag greiddi Vinnumála-
stofnun tæplega 1,7 milljarða króna í
atvinnuleysistryggingar fyrir tíma-
bilið 20. nóvember til 19. desember.
Greitt var til tæplega 15 þúsund ein-
staklinga.
Heildargreiðslur fyrir nóvember
námu 2.012.489.544 kr. og var þá
greitt til 14.866 einstaklinga.
Í gær kom upp villa í birtingu
greiðsluseðla á netinu og olli það
vandræðum. Um leið og búið er að
greina vandamálið og lagfæra bil-
unina verða skilaboð þess efnis birt á
vefsíðu Vinnumálastofnunar.
Í gær voru 16.340 einstaklingar
skráðir án atvinnu hjá Vinnu-
málastofnun. sisi@mbl.is
Tæpir 24 millj-
arðar í bætur
Langhæsta upphæð atvinnuleysisbóta
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Bætur Atvinnuleysi er mjög mikið
í byggingariðnaðinum.
TÍÐARFAR var hagstætt í desem-
ber og óvenjuhlýtt var á landinu 11.
og 12. Nýtt hámarksdagsmet fyrir
landið var sett 12. desember er hiti
komst í 15,1 stig á sjálfvirku stöð-
inni á Skjaldþingsstöðum, eldra há-
mark þennan dag var 14,5 stig.
Dagsmet voru sett í Reykjavík
11. og 12. er hitinn fór í 11 og 11,5
stig. Dægurhámarksmet af þessu
tagi eru sett að meðaltali 2 til 4
sinnum á ári hverju í Reykjavík, en
4-7 sinnum á landinu í heild.
Úrkomusamt var norðanlands en
lengst af var úrkoma lítil sunnan-
lands og vestan. Kalt var fyrsta dag
mánaðarins en síðan var óvenju
hlýtt í veðri fram til þess 18. Það
sem eftir lifði mánaðarins ein-
kenndist af kulda og stillum. Þó var
illviðri og snjóflóðahætta um norð-
vestanvert landið á aðfangadag.
Foktjón varð austanlands og í Vest-
mannaeyjum dagana 19. og 20.
Hæsti hiti í mánuðinum mældist
15,5 stig á Siglufirði hinn 11.
Í byggð mældist lægsti hiti 28.
dag mánaðarins við Mývatn, mínus
24,0 stig.
Dagsmet í
desember
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
HAFRANNSÓKNASKIPIN Árni
Friðriksson RE 200 og Bjarni Sæ-
mundsson RE 30 halda bæði til loðnu-
leitar klukkan 14 í dag. Engin fiski-
skip taka þátt í loðnuleitinni að þessu
sinni eins og þau hafa oft gert. Í stað-
inn kosta útvegsmenn uppsjávar-
veiðiskipa loðnuleit Bjarna Sæ-
mundssonar RE.
Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri
nytjastofnasviðs Hafrannsóknastofn-
unarinnar, sagði að þeir hefðu reikn-
að með að einhver fiskiskip kæmu
með stofnuninni í loðnuleit. Þetta
væri þó ekki verri kostur, því annars
hefði Bjarni Sæmundsson RE legið í
höfn. „Þetta er ný vídd í þessari sam-
vinnu sem hefur skapast í kringum
leitina,“ sagði Þorsteinn.
Árni Friðriksson RE verður við
loðnuleitina eins og þörf krefur að
mati Hafrannsóknastofnunarinnar.
Reiknað er með að Bjarni Sæmunds-
son RE verði í viku til tíu daga í loðnu-
leitinni. Ákveðið hefur verið að Árni
Friðriksson RE byrji loðnuleitina við
Suðausturland og haldi síðan norður
með Austurlandi og svo vestur með
Norðurlandi. Bjarni Sæmundsson
RE fer vestur fyrir land og síðan
austur með Norðurlandi þar til skipin
mætast. Mikill ís er úti fyrir Vest-
fjörðum og óvíst hve mikið verður
hægt að athafna sig þar við loðnuleit-
ina.
Árni Friðriksson RE var við loðnu-
mælingar milli Íslands og Grænlands
og í Íslandshafi í nóvember og desem-
ber sl. Lítið mældist af loðnu í leið-
angrinum. „Þetta er í röð verstu ára,“
sagði Þorsteinn um niðurstöður
loðnumælinganna í fyrra. „Þetta er
búið að vera slæmt síðustu árin á
þessum árstíma.“
Ellefu útgerðir kosta loðnuleit
Ellefu útgerðir uppsjávarveiði-
skipa innan Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna (LÍÚ) munu
kosta loðnuleit Bjarna Sæmundsson-
ar RE að þessu sinni.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, sagði að útgerðir
uppsjávarskipa hefðu tekið þátt í
loðnuleit undanfarin ár. Þessi hópur
hefði hingað til yfirleitt kostað fiski-
skip til fiskileitar. „Það var lagt upp
með það fyrir jólin að fara þannig að
en síðan var Bjarni [Sæmundsson
RE] á lausu svo það þótti hentugast
að kosta hann til leitar,“ sagði Frið-
rik.
Hann sagði að útgerðir uppsjávar-
veiðiskipa hefðu stundað fiskileit, sér-
staklega loðnuleit, sleitulaust frá
árinu 2004. Yfirleitt hefðu fiskiskip,
eitt eða fleiri, stundað loðnuleitina í
samvinnu við hafrannsóknaskipin og
Hafrannsóknastofnunina.
Friðrik taldi víst að útgerðarmenn
hefðu áður tekið á sig kostnað af út-
gerð hafrannsóknaskips til fiskileitar.
Fyrirkomulagið á leit Bjarna Sæ-
mundssonar nú væri því ekki algjör
nýlunda.
Friðrik sagði að útgerðir uppsjáv-
arveiðiskipanna væru búnar að leggja
hundruð milljóna í loðnu- og síldar-
rannsóknir á undanförnum árum.
Einnig tóku þær þátt í makrílrann-
sóknum. Útgerðirnar greiða kostnað
við fiskileitina í hlutfalli við aflahlut-
deild sína í viðkomandi fisktegund.
Útgerðin kost-
ar loðnuleit
Bjarna Sæm.
Hafrannsóknaskip hefja loðnuleit í dag
Rólegt var yfir gulldepluveið-
unum í gær. Sjö skip voru þá
komin á miðin djúpt suður af
Reykjanesi: Sighvatur Bjarna-
son VE, Álsey VE, Ísleifur VE,
Bjarni Ólafsson AK, Ingunn AK,
Faxi RE og Hoffell SU.
Ólafur Einarsson, skipstjóri á
Álsey taldi útlitið frekar dapur-
legt. Skipin sem voru á miðun-
um í fyrradag hefðu bara leitað
og enginn kastað. Þau köstuðu í
gær en enginn var farinn að hífa
um kvöldmatarleytið.
Guðmundur VE og Aðalsteinn
Jónsson SU eru komnir á kol-
munnamiðin sunnan við Fær-
eyjar.
Rólegt í gulldeplu