Morgunblaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2010
FRÉTTASKÝRING
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
ÚTLIT er fyrir að pyngjan muni
léttast hjá bifreiðaeigendum á
árinu, sérstaklega hjá þeim sem
þurfa að aka lengri vegalengdir.
Þannig má ætla að lítraverð á 95
oktana bensíni og díselolíu verði um
og yfir 200 krónur í afgreiðslu þeg-
ar auknar álögur ríkisins koma inn í
verðið með nýjum birgðum.
Eins og rakið er á kortinu hér til
hliðar eru hækkanirnar þrískiptar í
bensíninu þar sem almennt vöru-
gjald hækkar og hærri virðisauka-
skattur leggst á það og sérstaka
vörugjaldið, ásamt því sem kolefnis-
gjald leggst á hvern seldan lítra.
Hækkunin er einfaldari í dísel-
olíunni en þar hækkar olíugjaldið á
meðan sérstaka vörugjaldið er
óbreytt en hærri virðisaukaskattur
leggst ofan á hvort tveggja, að við-
bættu kolefnisgjaldinu.
Við þetta bætist að búist er við að
heimsmarkaðsverð á olíu verði á
bilinu 75-80 dalir tunnan á árinu,
eða á svipuðu reiki og verið hefur.
Hækkar heimsmarkaðsverðið?
Það gæti þó breyst og verðið
hækkað ef gengi Bandaríkjadals
helst lágt og fjárfestar leita í olíuna,
að sögn Magnúsar Ásgeirssonar,
innkaupastjóra hjá N1.
Eins og reynsla síðustu ára vitn-
ar um hefur mörgum reynst hált á
svelli olíuverðsspádóma en rifja má
upp að verðið fór í rúma 147 dali
tunnan í júlí 2008 en hrapaði svo
niður í tæpa 50 dali tunnan í kjölfar
bankahrunsins. Verðið hefur síðan
hækkað hægt og sígandi frá því í
fyrrahaust í um 80 dali tunnan nú.
Fari svo að olíuverðið hækki er
einsýnt að verð á bensíni og dísel-
olíu muni fara yfir 200 krónur í
sjálfsafgreiðslu og hækka svo jafn-
vel enn meira ef olíutunnan klifrar
yfir 100 dali á ný. Reynist sú svarta
spá myndi það leiða til almennra
verðhækkana og þrýsta á verð-
bólguhækkun, enda yrðu vöruflutn-
ingar dýrari. Sú óheillaþróun myndi
ganga enn frekar á kaupmátt
almennings.
Tæpir þrír milljarðar á ári
Hækkanirnar sem hér um ræðir
munu skila ríkissjóði um 2.740 millj-
ónum króna í aukatekjur, að því
gefnu að bensínnotkunin verði um
210 milljónir lítra á árinu og notkun
á díselolíu til almennrar neyslu um
170 milljónir lítra og notkun litaðrar
olíu um 60 milljónir lítra á árinu.
Til samanburðar var bensínnotk-
unin á þensluárinu 2007 215 millj-
ónir lítra og samtals 221 milljón
lítrar í báðum flokkum díselolíunn-
ar, að sögn Magnúsar sem telur
óhætt að miðað við áðurnefndar töl-
ur.
Til að setja áðurnefnda upphæð,
2.740 milljónir króna, í samhengi
áætlaði Kristján Möller samgöngu-
ráðherra í maímánuði 2008 að
kostnaðurinn við lagningu Sunda-
brautar myndi hlaupa á bilinu 30 til
40 milljörðum króna eftir því hvaða
leið yrði valin og að teknu tilliti til
þeirra ytri efnahagsskilyrða sem þá
voru uppi.
Sé 30 milljörðum deilt í auknar
tekjur ríkissjóðs af eldsneyti kemur
í ljós að þær gætu greitt fyrir ódýr-
ari kostinn við lagningu Sunda-
brautar á 11 árum en fyrir dýrari
kostinn, um 40 milljarða króna, á 15
árum.
75% hækkun frá ágúst 2005
Til að setja eldsneytisverðið sem
nú stefnir í, þegar auknar álögur
leggjast á nýjar birgðir, í annað
samhengi kostaði díselolía og bens-
ín 163,8 krónur og 164,9 krónur hjá
N1 í maí á síðasta ári. Miðað við að
díselolían sé að hækka í 193,12
krónur á lítra nemur hækkunin
tæpum 18%. Í ágúst 2005 kostaði
dísellítri 110 kr. hjá Orkunni í
sjálfsafgreiðslu og var því 75%
ódýrara en útlit er fyrir nú.
Auknar álögur á eldsneyti frá og með áramótum gætu greitt fyrir Sundabraut á 11 árum
Olían hækkar
með nýjum
birgðum
Verðbreytingar á eldsneyti um áramótin
95 okt. bensín - lítraverð
Dísilolía - lítraverð
31. desember 2009 1. janúar 2010
Sjálfs-
afgr.
Afgr. Sjálfs-
afgr.
Afgr.
Sjálfs-
afgr.
Afgr. Sjálfs-
afgr.
Afgr.
31. desember 2009 1. janúar 2010
Vörugjald: 20,44 kr.
VSKávörugjald: 5,01 kr.
VSK: 24,5%
Sérst.vörugj.: 37,07 kr.
VSKásérst.vörugj.: 9,08 kr.
Innkaupsverð,álagningo.fl.
Gjöld ríkisins:
188,2
kr.
193,2
kr.
Vörugjald: 22,94 kr.
VSKávörugjald: 5,86 kr.
VSK: 25,5%
Sérst.vörugj.: 37,07 kr.
VSKásérst.vörugj.: 9,45 kr.
Innkaupsverð,álagningo.fl.
Gjöld ríkisins:
Kolefnisgjald: 2,6 kr.
VSKákolefnisgjald: 0,663 kr.
Samt.: 71,6 kr. Samt.: 78,58 kr.
Mismunur: 6,983 kr.*
195,2
kr.
200,2
kr.
Olíugjald: 51,12 kr.
VSKáolíugjald: 12,52 kr.
VSK: 24,5%
Innkaupsverð,álagningo.fl.
Gjöld ríkisins:
Olíugjald: 52,77 kr.
VSKávörugjald: 13,46 kr.
VSK: 25,5%
Innkaupsverð,álagningo.fl.
Kolefnisgjald: 2,9 kr.
VSKákolefnisgjald: 0,73 kr.
Samt.: 63,64 kr. Samt.: 69,86 kr.
Mismunur: 6,22 kr.**
186,9
kr.
191,9
kr.
Gjöld ríkisins:
193,12
kr.
198,12
kr.
* Árið 2008 seldust 210 milljónir lítra af bensíni.
Aukagjöld ríkisins, 6,983 kr. á lítra, væru því samtals: 1.466,43 milljónir króna.
** Árið 2008 seldust 170 milljónir lítra af dísilolíu.
Aukagjöld ríkisins, 6,22 kr. á lítra, væru því samtals: 1.057,4 milljónir króna.
Árið 2008 seldust 60 milljónir lítra af litaðri dísilolíu.
(Lituð olía er undanþegin olíugjaldi en ber kolefnisgjald.)
Aukagjöld ríkisins, 3,63 kr. á lítra, væru því samtals: 217,8 milljónir króna.
Miðað við svipaða sölu aukast tekjur ríkissjóðs því um2.741,63milljónir króna á ári.
Miðað er við algengt verð
Miðað er við algengt verð
Hærri gjöld á eldsneyti þýða að
verð á bensíni og díselolíu er
farið að nálgast 200 krónur í
sjálfsafgreiðslu. Hækki olíuverð
á heimsmarkaði mun verðið
rjúfa 200 króna múrinn á lítr-
ann.
www.noatun.is
FISKIBUFF
FISKIBOLLUR
PLOKKFISKUR
KR./KG
898
Ö
ll
ve
rð
er
u
bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
u
og
/e
ða
m
yn
da
br
en
gl
OG GOTT!
FLJÓTLEGT
MORGUNVE
RÐURGÓÐ
UR
CHEERIOS
397 G
399 KR./PK.
TILDA BASMATI
BRÚN HRÍSGRJÓN
SUÐUPOKAR
289KR./PK
MYLLAN
RÚGBRAUÐSKUBBUR
229 KR./STK.
Ódýrt og
gott í
Nóatúni
ÍM FERSKUR
KJÚKLINGUR
KR./KG698
798
F
ÚRFISKBOR
ÐI
ÚR
FISKBORÐI
ERSKIR
Í FISKI