Morgunblaðið - 05.01.2010, Side 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2010
Það er ekki gott að vita með vissuhverjir lesa hvaða vef. En á hinn
bóginn er vitað um nokkra sem ekki
lesa þennan vef og ekki heldur hinn.
Egill Helgason les til að myndaekki vefinn AMX. Bara alls ekki.
Hann veit hins vegar allt um þann
vef. Hann veit að þar fer um öfga-
armur úr Sjálfstæðisflokknum.
Hann hefur
að vísu ekki
útskýrt í
hverju öfg-
arnar felast.
Það gæti þó
hugsanlega
verið að sum-
ir sem þar
skrifa væru á
móti Icesave-málinu og væru þar í
hópi með 70 prósentum þjóðarinnar
og öðrum öfgasinnum af því tagi.
Skrifararnir á AMX gætu jafnvel
verið fremur andvígir aðildar-
umsókn að Evrópusambandinu, eins
og 65 prósent þjóðarinnar og aðrir
þess háttar öfgasinnar.
Og Egill hefur nákvæma talninguá því líka (og hefur birt hana)
hve oft hann hefur verið nefndur á
AMX með neikvæðum formerkjum.
Það flokkast sjálfsagt undir tölu-
verðar öfgar að vera ekki í aðdá-
endaklúbbi Egils Helgasonar. Stak-
steinar hafa ekkert á móti Agli
nema síður sé en eru samt öfgasinn-
ar samkvæmt ESB- og Icesave-
skilgreiningunni og eru þar í minni-
hluta með 65-70 prósent þjóð-
arinnar.
Og nú hefur Hallgrímur Helgason,sem ekki les AMX, frétt af því
að þar hafi verið sagt að skáldið telji
nú efst á baugi að Ólafur Ragnar
segi af sér. Hallgrímur segist hafa
sagt að sumir telji að Ólafur Ragnar
eigi að segja af sér. Ólafi Ragnari er
örugglega létt, nema hann velti fyrir
sér hver þessi „sumir“ sé, því ef á
daginn kemur að „sumir“ sé sá sem
þeir Ólafur og Hallgrímur hafa litið
mest upp til undanfarin ár er hætt
við að forsetanum þyki fokið í flest
skjól. Og hvað verður þá um mynd-
ina í merkinu?
Egill Helgason Hall-
grímur Helgason
Lesa ekki AMX
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík -5 heiðskírt Lúxemborg -6 heiðskírt Algarve 16 skýjað
Bolungarvík -6 heiðskírt Brussel -4 léttskýjað Madríd 8 þoka
Akureyri -5 alskýjað Dublin 0 léttskýjað Barcelona 11 skýjað
Egilsstaðir -6 skýjað Glasgow -3 léttskýjað Mallorca 15 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. -7 léttskýjað London -1 heiðskírt Róm 9 skýjað
Nuuk -1 léttskýjað París -2 léttskýjað Aþena 8 skýjað
Þórshöfn -2 snjókoma Amsterdam 0 þoka Winnipeg -17 skýjað
Ósló -16 léttskýjað Hamborg -4 skýjað Montreal -8 alskýjað
Kaupmannahöfn 0 skýjað Berlín -5 skýjað New York -5 léttskýjað
Stokkhólmur -3 skýjað Vín -1 skýjað Chicago -11 alskýjað
Helsinki -10 léttskýjað Moskva -15 snjókoma Orlando 7 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
5. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 0.03 3,2 6.16 1,3 12.28 3,1 18.50 1,2 11:15 15:53
ÍSAFJÖRÐUR 1.54 1,6 8.08 0,7 14.17 1,6 20.52 0,6 11:54 15:23
SIGLUFJÖRÐUR 4.44 1,0 10.47 0,3 17.07 1,0 23.14 0,3 11:39 15:04
DJÚPIVOGUR 3.17 0,6 9.17 1,5 15.39 0,5 22.04 1,6 10:52 15:14
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á miðvikudag
Vestan 3-10 m/s og dálítil snjó-
koma eða slydda á vestanverðu
landinu og með norðurströnd-
inni, en annars skýjað með köfl-
um. Hiti 0 til 4 stig við vest-
urströndina, annars frost 1 til
10 stig.
Á fimmtudag
Vestlæg átt og bjartviðri um
austanvert landið, annars skýj-
að og lítilsháttar slydda eða
snjókoma með köflum. Hiti
breytist lítið.
Á föstudag, laugardag
og sunnudag
Útlit fyrir suðlægar áttir. Bjart-
viðri á NA- og A-landi og frost 1
til 8 stig, en annars skýjað,
slydda eða rigning með köflum
og hiti 0 til 6 stig.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Norðan og norðaustan 3-13,
hvassast austanlands. Dálítil él
norðaustan til og við norður-
ströndina, en annars léttskýjað
að mestu. Frost 0 til 12 stig,
mildast við sjóinn. Víða hægt
og bjart veður í dag og herðir
frost.
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
EINS og er stendur ekki til að draga
til baka uppsagnir hjá Ölgerðinni
þótt ríkisstjórnin hafi hætt við nýtt
14% virðisaukaskattsþrep, sem m.a.
átt að leggja á sykraða drykki.
„Sykurskattur var settur á þann
1. september og hann hefur ekkert
breyst. Áfengisgjaldið hækkaði
núna um 10% og hefur hækkað um
42% á árinu og það hefur heldur
ekkert breyst,“ segir Andri Þór
Guðmundsson, forstjóri Ölgerðar-
innar.
Í lok nóvember tilkynnti Ölgerðin
að rúmlega þrjátíu starfsmönnum
yrði sagt upp hjá fyrirtækinu frá
mánaðarmótunum nóvember/
desember, og var þeim sem voru
með laun yfir 350 þúsund kónum
beðnir um að afsala sér kjarasamn-
ingsbundinni hækkun.
Ástæðurnar dregnar í efa
Í kjölfar frétta af uppsögnunum
ýjaði starfsmaður Ríkisskattstjóra
að því að ástæður uppsagnanna
lægju ekki í auknum sköttum og
opinberum gjöldum, eins og haldið
var fram í yfirlýsingu Ölgerðar-
innar, heldur því hversu skuldsett
fyrirtækið væri. Í frétt Morgun-
blaðsins í byrjun desember kom
fram að skuldir Ölgerðarinnar í lok
febrúar sl. voru 15,3 milljarðar.
Andri Þór vísaði málflutningi
starfsmanns Ríkisskattstjóra á bug,
og sagði í samtali við Eyjuna:
„Ástæður uppsagna okkar koma til
vegna bágs starfsumhverfis sem rík-
ið er að skapa með fleiri skatt-
þrepum og hærri skatti á okkar
vörur og einskis annars.“
Ánægjulegt er að fallið hafi verið
frá því að búa til nýtt virðisauka-
skattþrep, ítrekar Andri Þór. „En
nú bara bíðum við og sjáum hvernig
eftirspurnin þróast.“
Hann segir desember mánuð hafa
valdið vonbrigðum hvað eftirspurn
varðar. Eins og staðan er í dag sé
ekki útlit fyrir að hætt verði við upp-
sagnirnar.
„Það er klárt að bæði þær áfeng-
ishækkanir sem orðið hafa á árinu
og sykurskatturinn frá því í sept-
ember hefur dregið úr eftirspurn.
Enda var það ætlun ríkisstjórn-
arinnar með sykurskattinn. Þannig
að það má segja að það hafi tekist
hjá þeim.“
Velja íslenska framleiðslu
Andri Þór segir ánægjulegt að sjá
að neytendur standi við bakið á inn-
lendum framleiðendum á erfiðum
tímum, en eins og fram hefur komið
jók íslenskur bjór hlutdeild sína á
markaðnum árið 2009. Hann segir
þó að sökum þess hversu mikill al-
mennur samdráttur varð í eftir-
spurn í lok ársins, og sökum þess að
útlit sé fyrir enn frekari samdrátt,
sé þó ekki víst að aukin markaðs-
hlutdeild vegi upp samdráttinn í eft-
irspurn eftir áfengi.
Ölgerðin stend-
ur við uppsagnir
Ekki breyttar forsendur þótt hætt hafi
verið við nýtt þrep virðisaukaskatts
FJÁRLÖG ríkisstjórnarinnar voru
samþykkt rétt fyrir áramót og þá
varð endanlega ljóst að framlög til
sjúkrareksturs SÁÁ munu minnka
um 13% á 2 árum. Þetta mun þýða
að spara þarf um 70 milljónir króna
á árinu 2010. Slíkt verður ekki gert
nema með því að skerða þjónustuna
á Sjúkrahúsinu Vogi um mikinn
mun. Þetta kemur fram í frétt á
heimasíðu SÁÁ, saa.is.
Breytingar undirbúnar
Starfsfólk SÁÁ hefur þegar haf-
ist handa við að breyta starfsem-
inni. Meginbreytingarnar sem sjúk-
lingarnir munu finna er að biðlistar
munu lengjast og erfiðara verður
fyrir endurkomufólk að komast á
Vog.
Sjúklingar á Reykjavíkursvæð-
inu sem hafa verið á Vogi á árinu
2009 og 2008 eiga að snúa sér til
göngudeildar SÁÁ í Von við Efsta-
leiti til að fá aðstoð við að útbúa
beiðni um vistun en hinir til sinna
heilsugæslulækna.
Fólk sem er að leita sér með-
ferðar í fyrsta sinni eða var á
Sjúkrahúsinu Vogi fyrir meira en
tveimur árum á að snúa sér beint til
sjúkrahússins.
Þjónustan á Vogi minnkar