Morgunblaðið - 05.01.2010, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 05.01.2010, Qupperneq 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2010 FRÉTTASKÝRING Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is FULLTRÚAR í sveitarstjórn Borgarbyggðar reyna þessa dagana að endurvekja samstarf allra flokka um stjórnun bæjarfélagsins. Tillaga sem meirihluti virtist fyrir og gerir ráð fyrir að starfsemi Kleppjárns- reykjaskóla verði hætt komst ekki á dagskrá og mætir mikilli andstöðu í uppsveitum Borgarfjarðar. Tekjur Borgarbyggðar hafa minnkað og sveitarfélagið hefur orðið fyrir fjárhagslegum skakkaföllum. Gert er ráð fyrir niðurskurði á ýms- um sviðum í væntanlegri fjárhags- áætlun, meðal annars í fræðslu- málum. Fækkað um þrjá Í skýrslu um sparnað í rekstri grunnskóla sem kynnt var í haust voru nefndir tveir möguleikar. Ann- ars vegar að allir fimm skólar sveitar- félagsins yrðu reknir áfram en há- marksfjöldi í bekkjum aukinn og árgöngum í einhverjum tilvikum slegið saman. Hins vegar að starfs- stöðvum yrði fækkað um þrjár. Ekki yrði staðið að skólahaldi á Hvanneyri og Laugargerði og lokað annaðhvort á Kleppjárnsreykjum eða Varma- landi. Eftir yrðu skólar í Borgarnesi og einn stór sveitaskóli. Við úrvinnslu þessara hugmynda varð til tillaga sem gerir ráð fyrir því að Kleppjárnsreykjaskóli verði lagð- ur niður og hugsanlega einnig starfs- stöðin á Hvanneyri. Samið verður við Eyja- og Miklaholtshrepp um að taka yfir rekstur Laugargerðisskóla. Þessi tillaga átti að spara um 100 milljónir kr., sem er það mark sem sveit- arstjórnarmenn settu sér. Skiptar skoðanir voru meðal full- trúa en þegar boðaður var auka- fundur sveitarstjórnar til að afgreiða málið sl. miðvikudag var ekki annað vitað en oddvitar allra flokkanna styddu hana og meirihluti fulltrúa. Fyrir lá andstaða nokkurra fulltrúa sem búsettir eru á starfssvæði skól- ans sem leggja átti niður. Það virðist hafa komið oddvitum hinna flokkanna í opna skjöldu þegar Finnbogi Rögnvaldsson, oddviti Borgarlistans, sendi þeim tölvubréf kvöldið fyrir aukafundinn þar sem hann lýsti því yfir að hann gæti ekki stutt tillöguna. Finnbogi hafði stýrt vinnu við gerð sparnaðarskýrslunnar í haust. Fulltrúar Framsóknarflokks- ins og hluti fulltrúa Sjálfstæðis- flokksins sátu uppi með málið. Þeir treystu sér ekki til að bera einir ábyrgð á því við þessar aðstæður. Stutt er til kosninga og málið afar eldfimt í sveitarfélaginu. Fundinum var frestað og tillagan ekki lögð fram. Þetta þýddi jafnframt að „þjóð- stjórnin“ var sprungin. Tvær leiðir enn í umræðunni Finnbogi segir að málið sé erfitt en hafið yfir flokkslínur. Sjálfur sé hann ekki andvígur skipulagsbreytingum en óttast að ný vandamál og átök í samfélaginu komi í stað þeirra fjár- hagslegu vandamála sem leysa eigi með lokun skóla. Sveinbjörn Eyjólfsson, oddviti framsóknarmanna, segir að sú tillaga sem gangi lengst í sparnaðarátt hafi farið næst því að koma einhverju skikki á fjármál sveitarfélagsins og jafnframt að tryggja góða þjónustu við börnin. Hann viðurkennir að lok- un skóla hafi slæm áhrif á samfélagið í uppsveitum Borgarfjarðar. Hin leið- in, að halda öllum starfsstöðvum en stórauka samkennslu, er mun dýrari, að sögn Sveinbjörns, auk þess sem hann telur hana lakari fyrir börnin. Andstaða við lokun skóla Ljósmynd/Guðlaugur Óskarsson Grunnskólinn Skólahald á Kleppjárnsreykjum á sér yfir sextíu ára sögu. Núverandi húsnæði var byggt á árunum fyrir 1960. Þar eru liðlega 100 nemendur, flestir úr nágrenninu og frá Hvanneyri en einnig fimm úr Borgarnesi.  Samstarf allra flokka í sveitarstjórn Borgarbyggðar sprakk þegar samstaða rofnaði um tillögu um lokun skóla og sparnað í fræðslumálum  Fulltrúar skiptast meira eftir línum búsetu en flokka Í HNOTSKURN »Borgarbyggð á aðild að 5skólum, í Borgarnesi þar sem eru rúmlega 180 nem- endur, á Varmalandi 120, Kleppjárnsreykjum 105, Hvanneyri 40 og Laugargerði. »Ætlunin var að nemendurfrá Kleppjárnsreykjum og Hvanneyri færu í Varmaland og Borgarnes. »26 vinna við Kleppjárns-reykjaskóla og 2 við íþróttamiðstöð auk 8 bílstjóra. „Þjóðstjórnin“ í Borgarbyggð sprakk þegar oddviti Borgarlist- ans skildi fulltrúa hinna flokk- anna eftir með viðkvæma og um- deilda tillögu um lokun skóla og sparnað í fræðslumálum. „Það er ánægjulegt að íbúarnir geti sameinast,“ segir Hulda Hrönn Sigurðardóttir, kennari í Geirshlíð og foreldri þriggja barna í Kleppjárnsreykjaskóla. Fundur foreldra og íbúa sem boðaður var í skyndi í fyrradag leggst gegn lok- un skóla og skorar á fulltrúa í sveitarstjórn að leita annarra sparnaðarleiða. Þótt fundurinn í Logalandi hafi verið boðaður með stuttum fyrir- vara mættu 160 til 170 manns og 23 tóku til máls. Hulda segir að legið hafi á því þau vildu koma skoðunum sínum á framfæri áður en nýr meirihluti yrði myndaður. Í ályktun fundarins kemur fram að lokun skóla sé óafturkræf að- gerð og hafi verulega neikvæð áhrif á byggðaþróun og samfélagið allt. Hulda segir ljóst að það fólk sem missir vinnuna við lokun skól- ans muni ekki ganga að annarri vinnu vísri og margir þurfi að flytja úr sveitarfélaginu. „Við munum al- veg hvað gerðist þegar Reykholts- skóla var lokað,“ segir hún. Í ályktun fundarins er það rifjað upp að ein af forsendunum við sameiningu Borgarfjarðarsveitar og Borgarbyggðar hafi verið að ekki yrði hróflað við starfs- stöðvum grunnskólanna. Leitað verði annarra sparnaðarleiða Kosið verður til sveitarstjórna hér á landi í lok maí næstkomandi. Morgunblaðið mun þangað til birta reglulega fréttir sem tengjast framboðum, prófkjörum, kosningafundum o.fl. Kosningar árið 2010 RÓSA Guðbjarts- dóttir bæjar- fulltrúi gefur kost á sér í 1. sæti á lista Sjálfstæðis- flokksins í Hafnar- firði í prófkjöri 30. janúar n.k. Rósa hefur verið bæjarfulltrúi frá árinu 2006. Rósa sækist eftir fyrsta sætinu JÓHANN Páll Símonarson sjó- maður sækist eftir 7.8. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík. Hann hefur m.a. verið virkur félags- maður í Sjómannafélagi Reykjavík- ur, nú Sjómannafélag Íslands. Jóhann Páll sækist eftir 7.-8. sæti EMIL Örn Krist- jánsson gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins. Hann er vara- formaður Félags sjálfstæðismanna í Grafarvogi og hef- ur einnig verið varaformaður Íbúa- samtaka Grafarvogs um árabil. Emil Örn tekur þátt í prófkjöri D-lista ÞORLEIFUR Gunnlaugsson borgarfulltrúi gef- ur kost á sér í fyrsta sæti í for- vali Vinstri grænna í Reykja- vík fyrir borgar- stjórnarkosningarnar í vor en for- valið fer fram 6. febrúar nk. Þorleifur gefur kost á sér í 1. sæti KRISTJÁN Guðmundsson húsasmíðameistari býður sig fram í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem fer fram 23. janúar nk. Frá árinu 1998 hefur Kristján átt sæti sem varaborgarfulltrúi fyrir D-lista og í ýmsum nefndum og ráðum á vegum Reykjavíkurborgar. Kristján sækist eftir 4. sætinu MIKIÐ var grisjað í Stálpastaða- skógi í Skorradal í nóvember og desember og er afraksturinn 600 tonn af timbri. Skógarhöggsvélin sem var við störf í skóginum fyrir jólin var ræst á ný í gær og er gert ráð fyrir að hún verði á Stálpa- stöðum í þrjár vikur til viðbótar. Áætlað er að um 400 tonn af timbri muni bætast við á þeim tíma, að því er segir á vef Skógræktarinnar, skogur.is. Timbrið sem fellur til við grisjunina verður kurlað og flutt til járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga. Skógrækt ríkisins og Elkem Ísland skrifuðu síðasta sumar undir samning um eitt þús- und tonn af grisjunarviði úr ís- lenskum skógum í tilraunaverkefni þar sem ferskt viðarkurl er notað sem kolefnisgjafi í stað jarð- efnaeldsneytis. aij@mbl.is Skógarhöggsvél á Stálpastöðum í Skorradal Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.