Morgunblaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 13
Fréttir 13VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2010 AÐ SÖGN Bloomberg-fréttaveit- unar búast flestir sérfræðingar við að heimsmarkaðsverð á hrávörum muni hækka umtalsvert í ár og að fjárfesting í þeim muni skila meiri arði en kaup á verðbréfum á árinu. Samkvæmt skoðanakönnun frétta- veitunnar munu hrávörur á borð við olíu, korn, gull og palladín hækka um meira en 17% á árinu, en hins- vegar er aðeins 11% hækkun á S&P 500-vísitölunni spáð og að ávöxt- unarkrafan á tíu ára bandarísk rík- isskuldabréf verði 2,8%. Hækkunum er spáð meðal annars vegna hagvaxtar og eftirspurn- araukningar í Kína og skárri horfa í alþjóðahagkerfinu. Það ætti því einnig að styðja við heimsmark- aðsverð á áli. Horfur góðar Gull Sérfræðingar spá að heimsmarkaðsverð á gulli muni hækka um meira en 17% á árinu og að verð annarra hrávara muni einnig hækka. Sérfræðingar spá hækkunum á heims- markaðsverði á hrávörum í ár ● SÍÐAR í vikunni verður gengið frá kaupum Kaupfélags Skagfirðinga á hluta hlutafjár Mjólku ehf., sem fram- leiðir mjólkurvörur undir eigin vöru- merki. Ólafur Magnússon, aðaleigandi og framkvæmdastjóri Mjólku, segir við- ræður við KS á lokastigi og að vænt- anlega verði gengið frá samningum á fimmtudag eða föstudag. Segir hann að gert sé ráð fyrir því að KS komi inn sem hluthafi í Mjólku, en kaupi fyrirtækið ekki í heild sinni. Viðræður hafa staðið yfir í nokkra mánuði, en sagt var frá þeim í Morgunblaðinu í ágúst. Kaupfélag Skagfirðinga kaupir í Mjólku Morgunblaðið/Kristinn ÞETTA HELST ... ● Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,19 prósent í 5,46 milljarða króna viðskiptum í gær. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,18 prósent og sá óverðtryggði um 0,26 prósent. Velta á hlutabréfamarkaði nam að- eins rúmum níu milljónum króna í gær, öll með bréf Össurar, sem lækkuðu um 1,3 prósent. bjarni@mbl.is Skuldabréf lækka ● ENSKA knatt- spyrnufélagið Man- chester United hyggur á stórt skuldabréfaútboð til að endur- fjármagna skuldir sínar. Frá þessu var greint í enskum fjölmiðlum um helgina. Heildarskuldir félagsins nema um 520 milljónum punda, en í skuldabréfaútboðinu hyggst félagið sækja 600 milljónir. Helstu áhyggjur stjórnenda félagsins snúa að skuld gagnvart tveimur vogunarsjóðum upp á 175 milljónir, en inni í þeirri tölu eru ógreiddir vextir upp á 40 milljónir punda. thg@mbl.is United hyggur á skuldabréfaútboð ● DÓMSTÓLL í Finnlandi hefur dæmt Nordea Banka til að greiða til baka fé, sem viðskiptavinir töpuðu á fjárfestingu í Selekta skuldabréfasjóði bankans. Hjónin Åke og Leena Blomqvist lögðu andvirði um 350 milljóna íslenskra króna í sjóðinn um aldamótin síðustu, en um helmingur þess fjár hefur nú tap- ast vegna fjármálakreppunnar. Tók dómurinn undir með hjónunum að bankinn hefði ekki upplýst þau nægi- lega vel um þá áhættu sem fælist í því að leggja fé í skuldabréfasjóðinn, heldur hefði sölufulltrúi Nordea einungis lagt áherslu á mögulegan hagnað. Taldi dómurinn það engu skipta að Blomqvist hjónin hefðu skrifað undir plagg þess efnis að þau skildu þá áhættu sem fælist í fjárfestingunni, enda hefðu þau enga sérþekkingu í hlutabréfa- eða skuldabréfaviðskiptum. Bankanum hefur því verið falið að greiða hjónunum til baka sem nemur hinu tapaða fé. Í frétt finnska blaðsins Hufvudstads- bladet segir að dómurinn geti haft for- dæmisgildi fyrir svipuð mál í framtíð- inni. bjarni@mbl.is Nordea Banki gaf ófull- nægjandi upplýsingar FRÉTTASKÝRING Eftir Ívar Pál Jónsson ivarpall@mbl.is SEÐLABANKINN tjáir sig ekki um erlenda fjármunaeign Íslend- inga. Samkvæmt nýjustu tölum nemur hún 888 milljörðum króna, en þegar sundurliðun er skoðuð vakna spurningar um hvort hún sé ekki stórlega ofmetin, jafnvel um hundr- uð milljarða króna. Ef það er rétt er erlend staða þjóðarbúsins verri sem því nemur, en samkvæmt síðustu tölum er hún neikvæð um 524 millj- arða króna. Síðustu sundurliðuðu tölur Seðla- bankans yfir beina erlenda fjár- munaeign Íslendinga eru frá ára- mótunum 2008-9. Samkvæmt þeim er hún samtals 1.063 milljarðar króna. Nýjustu tölur eru hins vegar ósundurliðaðar frá því í lok sept- ember, þegar bein erlend fjárfesting var talin nema 888 milljörðum króna sem fyrr segir. Eignir gömlu bankanna ennþá inni? Þar sem sundurliðaðar tölur eru ekki tiltækar hjá Seðlabankanum, og þær varða þjóðina miklu, reynist nauðsynlegt að gera afar óvísinda- lega athugun á erlendu fjármuna- eigninni. Niðurstöður hennar eru þessar: Þegar litið er á sundurliðunina frá þarsíðustu áramótum kemur í ljós að þar eru að öllum líkindum taldar til eignir sem að miklu leyti eru í gömlu bönkunum og því í eigu erlendra lánardrottna þeirra. Þó ber að hafa í huga að hér er um að ræða stöðuna 31.12. 2008, þegar hún taldist vera 1.063 milljarðar króna, en nýjustu tölur eru 888 milljarðar. Til að mynda er eign Íslendinga í erlendri matvælaframleiðslu talin vera 89 milljarðar króna, en líklegt má telja að eignir móðurfélags Bakkavarar séu stór hluti hennar. Eignir Baugs eru allar komnar til gömlu bankanna, en telja má að þær séu meginstofninn í undirliðunum „textíl- og fataiðnaður“, „raftæki og tæknivörur“ og „verslun“. Samtals hljóðar eign Íslendinga í þessum undirflokkum upp á 230 milljarða. Þá nemur bein erlend fjármuna- eign í „efnaiðnaði, gúmmí- og plast- vöruframleiðslu“ upp á 330 milljarða króna, en ætla má að lánardrottnar stærstu fyrirtækjanna í þeim geira, Actavis og Promens, séu með tögl og hagldir í þeim. „Vörugeymsla og stoðstarfsemi fyrir flutninga“ er metin á 63 millj- arða króna. Þar er líklegt að Atlas Cold Store, frystigeymslufyrirtæki Eimskips, sé stærst. Eimskip hefur sem kunnugt er verið tekið til gjald- þrotaskipta. „Rekstur banka, sparisjóða og fleira“ er metinn á 251 milljarð króna, en megnið af starfsemi gömlu bankanna erlendis hefur verið selt eða yfirtekið. Hið sama gildir um „fjárvörslusjóði, sjóði og önnur sér- hæfð fjársýslufélög“, sem bókfærð eru á 68 milljarða króna. Af þessari upptalningu má sjá, að 1.063 milljarðar hljóta að vera ofmat, jafnvel svo hundruðum milljarða skiptir. Sem fyrr segir er hljóðar nýjasta matið upp á 888 milljarða króna, en fyrrgreindar forsendur má draga í efa, þótt hafa verði þann fyrirvara að Morgunblaðið hefur ekki sundurliðaðar upplýsingar. Reglulegir birtingardagar Talsmaður bankans segir að Seðlabankinn geti að jafnaði ekki orðið við beiðnum um birtingu upp- lýsinga sem þessara utan reglulegra birtingardaga, enda liggi upplýsing- ar oftast ekki fyrir, og oft þurfi mikla vinnu til að safna þeim saman og koma í birtingarhæft form. Sé hins vegar ástæða til að breyta birting- artíðni sé það skoðað hverju sinni. Þeirri reglu sé fylgt að birta ekki upplýsingar um einstök fyrirtæki, heldur samanteknar heildartölur og sé í því efni fylgt alþjóðlegum stöðl- um um birtingu upplýsinga. Erlend eign ofmetin?  Ekki verður betur séð en eignir gömlu bankanna séu inni í tölum Seðlabankans um erlenda fjármunaeign Íslendinga  Þar á meðal eru sennilega eignir Baugs Í HNOTSKURN »Bein erlend fjármunaeignÍslendinga nemur 888 milljörðum, samkvæmt nýj- ustu tölum Seðlabankans. »Þegar litið er á nýjustusundurliðun verður ekki betur séð en fjármunaeignin erlendis sé ofmetin. »Erlend staða þjóðarbúsins,og þar með geta þess til að standa við erlendar skuldbind- ingar, kann því að vera verri sem því nemur. »Hafa verður þó hugfast aðum óvísindalega athugun er að ræða. Erlend staða þjóðarbúsins er að líkindum ofmetin um hundruð milljarða króna. Seðlabankinn tjáir sig ekki við Morgunblaðið um beina erlenda fjármunaeign þjóðarinnar. Morgunblaðið/Ómar Þjóðarbúið Samkvæmt nýjustu tölum nemur bein erlend fjármunaeign 888 milljörðum króna, en þegar sundurliðun er skoðuð vakna spurningar um hvort hún sé ekki stórlega ofmetin, jafnvel um hundruð milljarða króna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.