Morgunblaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 20
20 Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2010 ✝ Inga HrefnaBúadóttir fædd- ist í Reykjavík 15. apríl 1928. Hún lést á líknardeild Landa- kotsspítala 22. des- ember 2009. For- eldrar Ingu voru Búi Ásgeirsson póstur og bóndi á Stað í Hrútafirði, síðar verslunarmaður í Borganesi og í Reykjavík, f. á Hlað- hömrum í Stranda- sýslu 23.7. 1872, d. 13.6. 1949, og Ingibjörg Teits- dóttir húsfreyja í Borgarnesi og í Reykjavík, f. á Ferjubakka í Borgarfirði 12.4. 1886, d. 26.1. 1974. Systkini Ingu eru Alfreð verkstjóri, f. 30.7. 1909, d. 29.11. 1995, Solveig handavinnukennari, f. 17.11. 1910, d. 14.3. 2004, Oddný Þórunn Bendtsen hús- móðir, f. 25.5. 1915, d. 27.10. 1964 og Ásgerður Búadóttir myndlistarmaður, f. 2.12. 1920. Maður Ingu er Hafsteinn Bjargmundsson, verkstjóri og stærðfræðingur, f. í Reykjavík 3.3. 1924. Foreldrar hans voru Bjargmundur Sveinsson, f. í Efri- Ey 30.8. 1883, d. 13.9. 1964, og Herdís Kristjánsdóttir, f. í Foss- seli í Reykjadal 11.4. 1886, d. 3.11. 1958. Giftist Heiðari Jóns- syni stýrimanni. Þau skildu. Börn þeirra eru Helga Maria, Gunnar Björn og Herdís Birna. Inga átti sex langömmubörn. Inga var yngst systkina sinna og sú eina sem fæddist í Reykja- vík, en ekki í Borgarnesi, eins og hin systkinin. Hún ólst upp í Grjótagötu og síðar í Þingholts- stæti í Reykjavík. Árið 1950 lauk hún námi í Hjúkrunarskóla Ís- lands. Hún bjó með eiginmanni sínum og börnum, fyrst á Lauf- ásvegi, síðar í Flatey á Breiða- firði, á Reykhólum í Barð- arstrandasýslu og í Greifswald í Austur-Þýskalandi, þar sem maður hennar var við nám. Þau fluttu aftur til Íslands 1962 og bjuggu þá í Sörlaskjóli. 1966 skyldu þau Inga og Einar og hóf hún þá aftur hjúkr- unarstörf. Á starfsævi sinni vann hún á lyflæknisdeild, göngudeild og lýtalækningardeild á Land- spítala, í Hjartavernd í fjölda ára, starfaði á öldrunarlækning- ardeildinni í Hátúni og að lokum á öldrunarlækningasviði á Landakotsspítala fram til sjötíu ára aldurs. Eftir skilnað þeirra Einars, flutti Inga í Lynghaga 14, þar sem að hún ól upp börn- in sín og bjó það sem eftir var ævinnar, síðustu 20 árin með Hafsteini. Útför Ingu fer fram frá Foss- vogskirkju í dag, 5. janúar kl 13. Meira: mbl.is/minningar 14.10. 1970. Fyrr- verandi eiginmaður Ingu var Einar Helgason læknir, f. í Reykjavík 13.6. 1925 d. 16.2. 1974. Þau skildu 1966. For- eldrar hans voru Helgi Þorkelsson klæðskeri, f. 16.12. 1886, d. 8.7. 1970 og Guðríður Sig- urbjörnsdóttir hús- freyja, f. 6.10. 1898, d. 3.1. 1983. Börn Ingu og Einars eru: 1) Ingibjörg Eir lífeðlisfræðingur, f. 4.3. 1951, gift Birni Þrándi Björnssyni, prófessor í lífeðl- isfræði við Gautarborgarháskóla. Áður gift Gunnari Ægissyni sjáv- arútvegsfræðingi. Börn þeirra eru Inga Hrefna og Atli. 2) Björn öldrunarlæknir, f. 11.9. 1952, kvæntur Sigurjónu Símonardótt- ur lögfræðingi, hún er látin. Börn þeirra eru Einar Teitur, Halldór Orri og Snædís. 3) Kjartan bygg- ingartæknifræðingur, f. 16.5. 1956, kvæntur Kristine Mörch smitsjúkdómalækni við Haukel- and Sykehus í Bergen. Synir þeirra eru Jóhannes og Björn. Áður kvæntur Ernu Agnars- dóttur sjúkraliða, dóttir þeirra er Sigrún. 4) Hrefna ljósmóðir, f. Það er 22. desember. Borgin okk- ar er ljósum prýdd og helgi jólanna í nánd. Á þessum vetrardegi kveður góð vinkona okkar þetta jarðneska líf. Við vorum 11 talsins sem hófum nám í hjúkrun árið 1947. Ég minn- ist dagsins sem við komum fyrst saman á Landspítalanum og horfð- um bjartsýnar fram á veg. Áhuga- vert nám og ábyrgðarmikil störf á heilbrigðissviði voru framundan. Mér er minnisstæð ein úr hópn- um, há grönn og glæsileg. Það var Inga Hrefna Búadóttir. Hún sinnti störfum sínum við hjúkrun af reisn og fagmennsku og í daglegu lífi var hún hjartahlý, glaðvær og elskuleg. Þessa eðliskosti þótti öllum vænt um sem kynntust henni. Snemma komst á sú venja að við námssyst- urnar hittumst reglulega og hélst sá siður alla tíð en nú er farið að fækka í hópnum. Í stað væntinga og eldmóðs okkar árið 1947 er kom- in löng reynsla og dýrmætur sjóður minninga. Ástvinir Ingu Hrefnu kveðja hana með sárum söknuði og hjartans þakklæti fyrir þá ást og umhyggju sem hún veitti þeim. Við hollsystur hennar og vinkonur þökkum langa samfylgd og allar ljúfu stundirnar sem við nutum í samvistum við hana. Nú hefur húmað að en birta minninganna lýsir þeim sem eftir lifa. Herdís, Theodóra og Kristrún. Inga Hrefna Búadóttir  Fleiri minningargreinar um Ástu Jónsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Ásta Jónsdóttirfæddist í Reykja- vík 11. júlí 1916. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Sól- túni 20. desember sl. Ásta var dóttir hjónanna Jóns Mey- vantssonar, sjómanns og verkamanns (1876-1956) og Guð- rúnar Stefánsdóttur húsmóður (1885- 1947). Ásta var fimmta barn foreldra sinna af 9 systkinum. Elstur var Ólafur, f. 1906, d. 1995. Annar var Mey- vant, fæddur og dáinn árið 1907. Þriðji í röðinni var Þórður, f. 1909, d. 1955. Meyvant Óskar, f. 1913, d. 1934. Jón Kristinn, f. 1918, d. 2001. Unnur er sjöunda í röðinni, f. 1922, og lifir systkini sín. Guðbjög, f. 1925, d. í janúar 2009, og Sigrún, f. 1928, og dáin það sama ár. Ásta giftist hinn 6. október 1934 Sigurði M. Þorsteinssyni stræt- isvagnabílstjóra, síðar aðstoðaryf- irlögregluþjóni í Reykjavík og for- manni Flugbjörgunarsveitarinnar, f. 25. febrúar 1913, d. 3. janúar Aflagranda 40 og þaðan flutti Ásta í hjúkrunarheimilið í Sóltúni að eiginmanni sínum gengnum. Ásta vann ekki mikið utan heim- ilis eftir að hún giftist en kom við á nokkrum stöðum þar sem kraft- ar hennar voru vel þegnir. Ásta Jónsdóttir var hógvær for- ingi í eðli sínu með sjálfsvitund í lagi og hennar sterkasta hlið var hæfileiki að umgangast alla af virðingu og fá fólk til samstarfs. Hún hafði mikið að gefa og auk fjölskyldu helgaði hún krafta sína kvenfélagi Laugarnessóknar og kvennadeild Flugbjörgunarsveit- arinnar þar sem hún var heið- ursfélagi og orlofsnefnd hús- mæðra fékk einnig að njóta krafta hennar. Ásta var afar frændrækin og þau Sigurður voru afar sam- rýnd hjón og heimilið stóð ávallt opið fyrir vinum og frændfólki. Söng hafði Ásta gaman af og kunni mikið af vísum sem hún deildi með öðrum. Og síðast en ekki síst naut hún sín vel í góðra vina hópi Ásta kom í Sóltúnið árið 2002 eins og fyrr greinir og naut þar ætíð virðingar, ástúðar og um- hyggju. Útför Ástu verður gerð frá Laugarneskirkju í dag, þriðjudag- inn 5. janúar, og hefst athöfnin kl. 15. Meira: mbl.is/minningar 1996. Ásta og Sigurður einuðust 5 börn og þau eru 1) Óskar, f. 11.10. 1935, kvæntur Brynju Kristjánsson, f. 29.5. 1941. 2) Hörður Sigurðsson, f. 22.3. 1937. Fyrri kona Sif Ingólfs- dóttir. Núverandi kona er Svala Birg- isdóttir, f. 19.9. 1950. 3) Gunnar, f. 3.5. 1946. Fyrri kona Ella Maja Tryggvadóttir, f. 2.8. 1948. Núverandi kona er Anne-Marie, f. 24.3. 1948. 4) Marta Guðrún, f. 18.4. 1948, gift Magnúsi Sigsteinssyni, f. 16.4. 1944. 5) Jón, f. 18.2. 1952, kvæntur Margréti Einarsdóttur, f. 31.12. 1953. Fyrir átti Sigurður soninn Sigurð, f. 6. júní 1929, d. 3. október 2003, hans kona var Guðbjörg Óskarsdóttir, f. 29.5. 1930, d. 17. maí 1994. Barna- börnin eru 17, barnabarnabörnin eru 28 og eitt er barnabarna- barnabarnið. Lengst af bjuggu þau Ásta og Sigurður á Laugarnesvegi 43 og fluttu þaðan í Goðheima 22. Síð- ustu árin sín saman bjuggu þau á Komið er að kveðjustund. Leiðir okkar Ástu lágu fyrst saman 1973 og síðan þá höfum við verið tengd- ar fjölskylduböndum, góðum fjöl- skylduböndum. Hún var tengda- móðir mín, tengdamóðir af bestu gerð. Aldrei afskiptasöm eða yf- irþyrmandi fyrir unga óreynda móður en alltaf til staðar ef á þurfti að halda. Við Ásta urðum mjög góðar vinkonur og áttum saman margar ánægjustundir þeg- ar þau Siggi komu norður eða við Nonni suður. Oftar en ekki sátum við tvær einar saman fram á nótt og spiluðum og spjölluðum eins og góðra vinkvenna er siður. Heimili þeirra Sigga var oftar en ekki vettvangur ýmissa tilefna þar sem þau voru bæði á kafi í fé- lagsmálum. Hún helgaði krafta sína ýmsum sjálfboðaliðastörfum svo sem fyrir Kvenfélag Laugar- nessóknar og Kvennadeild Flug- björgunarsveitarinnar og taldi hún ekki eftir sér að opna heimili sitt fyrir hvers konar móttökur og við- burði. Ógleymanlegar eru slátur- veislurnar sem þær systur, hún og Gugga, stóðu fyrir á hverju hausti um árabil og allt upp í 50 fjöl- skyldumeðlimir sóttu. Hún naut sín hvergi betur en umvafin stórum hópi vina og ættingja. Síð- ustu ár hefur Alzheimer-sjúkdóm- urinn gert tengdamóður minni lífið leitt en hún glataði þó aldrei hæfi- leikanum til að gleðjast og þegar við komum í heimsókn til hennar í Sóltúnið þá var hún yfirleitt hrók- ur alls fagnaðar og hélt uppi stuð- inu meðal heimilismanna og starfs- fólks. Ég vil sérstaklega þakka fyrir þá alúð og það ástríki sem hún fékk í Sóltúni. Blessuð sé minning Ástu. Nú er hún komin til hans Sigga síns sem hún saknaði svo. Margrét Einarsdóttir. Ásta Jónsdóttir✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengda- faðir, afi og langafi, KRISTINN S. ISAKSEN bifreiðarstjóri, Engjadal 2, Njarðvík, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 2. janúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 8. janúar kl. 11.00. Kristín Herbertsdóttir, Guðmundur G. Kristinsson, Svanhildur Jóhannesdóttir, Erla María Kristinsdóttir, Ómar Óskarsson, Helena Huld Isaksen, Ármann H. Kolbeinsson, Erika Lind Isaksen, Paul George, Þorsteinn Karlsson, Emebet Dibiwak, Ásgerður Karlsdóttir, Benedikt Sverrisson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir mín og amma, GUÐRÍÐUR ELÍSABET NÍELSDÓTTIR, Bebí, Helgugötu 4, Borgarnesi, andaðist á Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi fimmtudaginn 31. desember. Útförin verður gerð frá Borgarneskirkju laugardaginn 9. janúar kl. 11.00. Guðni Haraldsson, Hallgrímur Norðdahl Guðnason. ✝ Ástkær bróðir og frændi okkar, GUÐMUNDUR BERGMANN MAGNÚSSON, Vindhæli, Skagaströnd, sem lést á Heilbrigðisstofnuninni Blönduósi sunnudaginn 3. janúar, verður jarðsunginn frá Hólaneskirkju á Skagaströnd laugardaginn 9. janúar kl. 14.00. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Páll Bergmann Magnússon, Magnús Bergmann Guðmannsson. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSDÍS RAGNA GUÐMANNSDÓTTIR, Austurbergi 14, Reykjavík, sem lést á Landspítala Landakoti föstudaginn 1. janúar, verður jarðsungin frá Garðakirkju fimmtu- daginn 7. janúar kl. 13.00. Þórarinn Jónsson, Sigríður Þórarinsdóttir, Gunnar Ármann Þórarinsson, Ásta M. Margrétardóttir, Úlfhildur Jóna Þórarinsdóttir, Jón Þórarinsson og barnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGIBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR, Bárustíg 6, Sauðárkróki, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki laugardaginn 2. janúar. Útför hennar fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugar- daginn 9. janúar kl. 14.00. Sigurbjörg Guðjónsdóttir, Jón Sigurðsson, Birgir Guðjónsson, Soffía S. Daníelsdóttir, Svanborg Guðjónsdóttir, Sigurjón Gestsson, Ingimundur Kr. Guðjónsson, Agnes Hulda Agnarsdóttir, Ingibjörg Ólöf Guðjónsdóttir, Björn Sigurðsson, Sigurður Guðjónsson, Steinunn Sigurþórsdóttir, Hrönn Guðjónsdóttir, Sigurður Örn Ólafsson og öll ömmubörnin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.