Morgunblaðið - 05.01.2010, Side 26
26 Velvakandi
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
TIL HAMINGJU MEÐ
AFMÆLIÐ, GRETTIR!
HVAÐ ER
ÞETTA?
LASAGNA-LÖGUÐ KAKA
SEM LÍSA BAKAÐI
HLAUPSTU Á
BROTT MEÐ MÉR
SOLLA, ÞÚ
FERÐ Í SKÓLA
OG ÞÚ ÆTTIR
AÐ SÆTTA ÞIG
VIÐ ÞAÐ!
ÞAÐ ER RÉTT... ÉG VERÐ
AÐ GERA GOTT ÚR ÞESSU...
ÉG FER Í LEIKSKÓLANN,
LEIK VIÐ ALLA, HLÝÐI
REGLUNUM OG REYNI AÐ
ÞÓKNAST FÓLKINU...
EN ÉG ÆTLA
SKO EKKI AÐ
LÆRA LATÍNU!!
ÉG TRÚI ÞÉR EKKI! ÞÚ
HENDIR ALDREI NEINU! BÍDDU!
HVERT ERTU AÐ FARA MEÐ VASANN
SEM MAMMA GAF OKKUR?!?
...EKKERT NÝTT.
HANN SITUR
VIÐ LÖGREGLU-
TALSTÖÐINA
OG ÉG ÞRÍF
UPP ALLAN
KÓNGULÓAR-
VEFINN EFTIR
HANN
EF ÞETTA
VÆRU 100.000
kr. ÞÁ MYNDI ÉG
SKILA ÞEIM, EN
ÞETTA ER FIMM-
ÞÚSUNDKALL
SKIPTIR
UPPHÆÐIN
EINHVERJU
MÁLI?
EF ÉG MYNDI SKILA
HONUM ÞÁ TAKA
SUNDLAUGARVERÐIRNIR
HANN BARA Í STAÐINN
ALLT Í LAGI
ÉG ER EKKI MAMMA
ÞÍN. ÉG ÆTLA EKKI
AÐ SEGJA ÞÉR HVAÐ
ÞÚ ÁTT AÐ GERA
ÉG VEIT ALVEG
HVAÐ ÞÚ ERT
AÐ HUGSA
FLOTT ÚFF
MIG
SVIMAR
DÁLÍTIÐ
MIKIÐ ER GOTT AÐ
ÞÚ ERT AÐ RANKA
AÐEINS VIÐ ÞÉR
ÉG HLÝT AÐ HAFA
SOFNAÐ Í SMÁSTUND
SMÁSTUND?
Í MEIRA EN ÁTTA TÍMA!
Prjónadót óskast
Einstæð móðir óskar
eftir prjónadóti gefins
því hún hefur ekki efni
á að kaupa garn og
prjóna til að kenna
börnunum að prjóna.
Þeir sem eiga garn eða
prjónadót aukreitis og
geta veitt lið, vinsam-
lega hringið í síma 824-
6737.
Einstæð móðir í
Vesturbænum.
Ökuljós bifreiða
Ég ek að meðaltali 60
til 100 km á dag um
þjóðvegi landsins. Aðra leiðina í
björtu en að vetrinum til, bakaleið-
ina heim til mín, í myrkri.
Ég geri oft talningu þegar ég er á
ferðinni. Í þeirri síðustu voru fimm
ökutæki af fjörutíu með ólöglegan
ljósabúnað. Þrír alveg ljóslausir
bæði aftan og framan öðrum megin,
en tveir með dautt ökuljós öðrum
megin en með stöðuljós. Maður get-
ur ekki séð í fjarlægð hvort þessi
eineygðu ökutæki eru bifreiðar eða
mótorhjól og heldur ekki hvorum
megin ljós vantar. Tölfræðin segir
mér að þetta er, að
jafnaði, einn af hverj-
um 10. Ég er bílstjóri
með reynzlu. Ég hægi
samt alltaf á mér þegar
ég mæti eineygðu öku-
tæki.
Ég beini því til-
mælum til ökutækja-
eigenda um að hafa
ljósin í lagi.
Vegfarandi.
Nýárskveðja
Gleðilegt ár. Mikla og
góða þökk með árn-
aðaróskum viljum við
senda öllu því prýðis-
fólki sem hefur sungið
með okkur á liðnu ári. Við þökkum
einnig því ágæta starfsfólki í Stang-
arhylnum sem hefur greitt götu okk-
ar á allan hátt. Við óskum öllum
gleðilegs árs og gifturíkrar tíðar.
Megi árið verða okkar þjóð sem allra
farsælast á leið upp úr öldudalnum.
Hittumst heil þann 6. janúar, á
þrettándanum sjálfum.
Helgi Seljan og Sigurður Jónsson.
Ást er…
… bæn fyrir dátann þinn.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa opin frá kl.
9-16.30, vatnsleikfimi í Vesturbæjarlaug
kl. 10.50, postulínsmálun kl.13, lestr-
arhópur kl. 14.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handa-
vinna kl. 12.30-16.30, smíði/útskurður
kl. 9-16.30, leikfimi kl. 9, boccia kl. 9.45.
Bólstaðarhlíð 43 | Myndvefnaður,
handavinna, línudans kl. 13.30, kaffi/
dagblöð, böðun.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa opin kl.
8-16, vöfflukaffi frá kl. 14-15.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl.
9.05 og 9.55, jóga kl. 10.50, alkort kl.
13.30 og handavinnustofan opin. Kynn-
ing á fyrirhugaðri starfsemi á vormisseri
kl. 14. Þar kynna FEBK og ýmsir hópar
ferðir, námskeið og ýmsa möguleika
sem í boði eru, Þorleifur Friðriksson
mun kynna sögugönguferðir um Kópa-
vog.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður kl. 9, jóga og myndlist kl. 9.30,
ganga kl. 10. Á morgun kl. 14 er kynning
á fyrirhugaðri starfsemi í Gullsmára á
vormisseri. Þórarinn Eldjárn ljóðskáld og
rithöfundur verður gestahöfundur, les-
hópur FEBK kl. 20, jóga kl. 18.
Félagsstarf Gerðubergi | Opið kl. 9-
16.30, stafaganga kl. 10.30. Leiðsögn í
vinnustofum 11. jan. kynning á heilsuefl-
ingu á vegum félagsstarfs í Breiðholti
o.fl. 11. jan. kl. 13. Uppl. í s. 575-7720.
Grafarvogskirkja | Sameiginleg guðs-
þjónustu eldri borgara verður í Seltjarn-
arneskirkju í dag. Lagt verður af stað frá
Grafarvogskirkju kl. 13.30.
Hvassaleiti 56-58 | Bútasaumur kl. 9,
Sigrún, helgistund kl. 14 í umsjón sr.
Ólafs Jóhannssonar, söngstund á eftir.
Létt stólaleikfimi kl. 15. Böðun fyrir há-
degi, hársnyrting.
Korpúlfar Grafarvogi | Félagsvist Korp-
úlfa á Korpúlfsstöðum á morgun, mið-
vikudag, kl. 13.30. Allir velkomnir.
Leshópur FEBK Gullsmára | Þórarinn
Eldjárn ljóðskáld og rithöfundur, er
gestahöfundur á bókmenntakveldi Les-
hóps FEBK kl. 20. Enginn aðgangseyrir.
Norðurbrún 1 | Myndlistarnámskeið kl.
9-12, smíðastofa opin, leikfimi kl. 13,
postulínsnámskeið Hafdísar kl. 13-16.
Handavinna hjá Halldóru hefst 11. jan.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja,
bútasaumur kl. 9, morgunstund kl. 9.30,
leikfimi kl. 10.15, glerbræðsla kl. 9,
framh.saga kl. 12.30, handavinnustofa
opin frá kl. 13, félagsvist kl. 14.
Björn Ingólfsson sendi nýárs-kveðju á leirinn, póstlista hag-
yrðinga, þar sem hann rifjaði upp:
„Við lágum samtímis á Lands-
spítalanum í sumar tveir jafn-
aldrar, gamlir skólabræður og þess
vegna vinir í nær hálfa öld.
Ég læknaðist af krabbameini og
er heill orðinn, Hreiðar Karlsson
átti ekki afturkvæmt.
Þetta gerir mann svolítið hugs-
andi um áramótin og þess vegna
eru mínir þankar svona.“
Og með hugleiðingunni fylgdi
ljóð undir yfirskriftinni „Nýárs-
dagur 2010“:
Gefst mér að líta enn eitt ár
angur og gleði, bros og tár,
fannbreiður hlána,
fjallhnjúka blána,
fossandi ár,
heiðríkju sumars, hafið blátt,
hrímfax á stráum, silfurgrátt,
svalvinda nýja,
syngjandi hlýja
sunnanátt.
Enn má ég finna ilm úr jörð,
enn má ég líta tinda og skörð,
enn má ég ganga
gildrög og vanga
og gróinn svörð.
----
Afmörkuð stund er öllum hér.
Ætlaður lengdur tími er mér.
Vendi því héðan
varla á meðan
vært mér er.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af heiðríkju og ilmi úr jörð