Morgunblaðið - 05.01.2010, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 05.01.2010, Qupperneq 30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2010 Árið sem nú er runnið uppverður ár umræðunnar umnýja Tónlistarhúsið, Hörpu. Það mun taka á sig end- anlega mynd á árinu hvað útlit snertir, og tími kominn til að ræða í þaula þá dagskrá og þá starfsemi sem þar verður. Það er kannski táknrænt, að á vef Austurhafnar, einkahluta- félags ríkis og borgar um bygg- ingu Tónlistarhússins er engar upplýsingar að finna, þegar smellt er á liðinn: „Tímaáætlun“. Ef til vill vilja Austurhafnarmenn hafa vaðið fyrir neðan sig í ljósi árferð- isins í efnahagsmálum, en þó verð- ur maður að vona það besta og að áætlanir um opnun hússins tefjist ekki frekar.    Mér fannst Harpa gott nafn áhúsið. Ég heyrði þó engan nefna það sem mér þótti best við nafnið, og það er tilvísunin sem það hefur í íslenska tónlistarsögu. Fyrsti eiginlegi kórinn í íslenskri tónlistarsögu, var Söngfélagið Harpa, sem Jónas Helgason stór- músíkant og bróðir Helga Helga- sonar tónskálds stofnaði 1862. Auðvitað var sungið í kirkjum, og skólapiltar í Latínuskólanum efndu stundum til söngskemmt- ana, en Harpa var sjálfstæður kór sem þjónaði fyrst og fremst söng- listinni. Nafnið er því ekki bara gott vegna þess að það er „þjált í munni útlendinga“, heldur felur það líka í sér ákveðna viðurkenn- ingu á, og virðingu fyrir gríðar- miklu sönglífi Íslendinga allt til okkar daga. En hvað á að vera í húsinu?    Einn þekktasti og virtasti hljóm-sveitarstjóri heims, Gennadí Rostestvenskí, sagði í sumar, eftir magnaða tónleika með hljómsveit- inni á Listahátíð, að hann myndi af- lýsa hverju sem væri til að koma aftur til Íslands. Hann var svo hrif- inn af hljómsveitinni að sam- komulag varð um að hann yrði aðal- gestastjórnandi hljómsveitarinnar árið 2011, og jafnvel lengur. Það þarf ekki að fjölyrða lengur um þá verðleika Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands sem gera hana sjálfskipaða í öndvegi Hörpu; hljómsveit sem býr við þá velgengni að jafnvel hljóta aftur og aftur tilnefningar til Grammy-verðlaunanna fyrir plötur sínar getur ekki orðið annað en enn betri við bestu vinnuskilyrði. Listahátíð mun vafalítið gera sig heimakomna í Hörpu og það er gott. Pavarotti var auðvitað ógleymanlegur í Laugardalshöll á Listahátíð fyrir mörgum, mörgum árum, en nú verður hægt að bjóða listamönnum að koma fram við bestu aðstæður. Íslenska óperan á tvímælalaust eftir að njóta sín betur í Hörpu en í ónothæfri aðstöðu í Gamla bíói. Sinfóníuhljómsveitin, Óperan og Listahátíð eru vissulega nokkuð þekktar stærðir, en allar munu þær örugglega taka vaxtarkipp með til- komu Hörpu.    En eitthvað fleira hlýtur aðverða um að vera í húsinu. Stærsti vaxtarbroddurinn í tón- listarlífinu í dag er tónlistarhátíðir sem margar hverjar eru búnar að slíta barnsskónum og hafa sannað sig sem mikilvæga viðburði í tón- listarlífinu. Djasshátíð í Reykjavík, Blúshátíð í Reykjavík, Airvawes, svo nokkrar þær stærstu á höf- uðborgarsvæðinu séu nefndar, ættu allar að geta leitað í Hörpu, ef þeim finnst svo henta. Þessar hátíðir stækka hratt, bæði vegna vinsælda innanlands og ekki síður vegna þeirra erlendu gesta sem sækja þær. Það hlýtur að vera stórt verk- efni fyrir hátíðirnar að markaðs- setja sig erlendis, og í samvinnu við svo glæsilegt hús ætti sú vinna að verða auðveldari og öllum til hags- bóta. Það sama á við um fastar tón- leikaraðir okkar bestu tónlist- arhópa, Kammersveit Reykjavíkur og smærri hópa, sem ég sé vel fyrir mér í minni sal hússins. Harpa verður að hýsa allar teg- undir tónlistar. Það var óbærilegt í fyrra að þurfa að hlusta á Eric Clapton í Egilshöll – ég vona satt að segja að með tilkomu Hörpu verði slíkar martraðir á enda, þótt ein- hverjir kunni að sjá pening í því að bjóða tónleikagestum upp á slíka síldartunnuvist. Það má þó gera ráð fyrir því að fleiri sjái tækifæri í því að flytja inn erlendar stórstjörnur sem hæfðu Hörpu og ef til vill verða slíkir tón- leikar á vegum hússins sjálfs.    Ég geri mér engar grillur um aðtónleikahald leggist af annars staðar en í Hörpu. Það má að sjálf- sögðu ekki gerast. En draumur minn er samt sá, að í kringum hana skapist sú stemmning og það sam- félag að þangað verði bæði gott að koma og margt að sækja. Harpa þarf að geta sungið sitt eigið hörpu- ljóð á þann hátt að hún verði sannur griðastaður tónlistarinnar og laði að gesti. Það hlýtur að verða kostn- aðarsamt að reka tónlistarhús eins og Hörpu. Þeim mun meira finnst mér ríða á að vel takist til með að laða breiða sneið tónlistarlífsins að húsinu. Ef það tekst, kemur fólk að hlusta. begga@mbl.is Harpa syngur hörpuljóð »Harpa verður aðhýsa allar tegundir tónlistar. Það var óbæri- legt í fyrra að þurfa að hlusta á Eric Clapton í Egilshöll – ég vona satt að segja að með tilkomu Hörpu verði slíkar mar- traðir á enda, þótt ein- hverjir kunni að sjá pen- ing í því að bjóða tónleikagestum upp á slíka síldartunnuvist. Morgunblaðið/Kristinn Listahátíð Tígrisliljurnar hefðu sómt sér vel í Hörpu. AF LISTUM Bergþóra Jónsdóttir Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Sími 551 9000 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Taking Woodstock kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 14 ára Alvin and the Chipmunks (enskt tal) kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ Alvin og Íkornarnir (ísl tal) kl. 6 LEYFÐ Avatar 2D kl. 6:45 - 10:10 B.i.10 ára Julie and Julia kl. 8 - 10:35 LEYFÐ Mamma Gógó kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ Alvin og Íkornarnir kl. 6 LEYFÐ Avatar kl. 8 B.i. 10 ára Mamma Gógó kl. 4 - 6 - 8 - 10 LEYFÐ Alvin og Íkornarnir (ísl tal) kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ Avatar 3D kl. 4:30 - 8 - 11:15 B.i.10 ára Avatar 2D kl. 4:40 - 8 - 11:15 B.i.10 ára Whatever Works kl. 8 B.i.7 ára A Serious Man kl. 10:10 B.i.12 ára SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI Missið ekki af þessari byltingarkenndu stórmynd frá James Cameron leikstjóra Titanic. BÍÓUPPLIFUN ALDARINNAR! SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI TILNEFNINGAR TIL GO LDEN GL OBE VERÐLAUNA BESTA MYND - BESTI LEIKSTJÓRI - BESTA TÓNLIST - BESTA LAG HHHH+ -Ó.H.T., Rás 2 HHHHH -H.K., Bylgjan HHHHH -T.V., Kvikmyndir.is HHHHH -H.S., MBL HHHHH -V.J.V., FBL HHHH -Á.J., DVHHHH „Persónusköpun og leikur eru framúrskarandi, sjónræn umgjörð frábær og sagan áhugaverð.” - Hjördís Stefánsdóttir, Morgunblaðið HHHH „Vel heppnuð og grábrosleg, frábær- lega leikin og mjög „Friðriks Þórsleg”. - Dr. Gunni, Fréttablaðið 60.000 MANNS Á 14 DÖGUM 600 kr. Gildir ekki á 3D né í L úxus Þú færð 5% endurgreitt í Háskólabíó Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og HáATH. ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIÐ GILDIR EKKI Í BORGARBÍÓI, LÚXUS, 3-D MYNDIR OG ÍSLENSKAR MYNDIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.