Morgunblaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 32
Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is ÞÆR hörðustu eru þegar komnar með svarið við því hverju skal klæðast á nýju ári, enda má ekki vera skrefi á eftir, helst nokkrum á undan. Hinar eru að byrja að velta fyrir sér hvað verður nýtt og hvort það verði hægt að nýta það sama á þessu ári og var í tísku í fyrra. Þegar litið er yfir tískusýningarnar fyrir vetur, vor og sumar 2010 má sjá nokkuð sem verður einkennandi fyrir nýhafið ár. Vetur Eins og flestir vita tekur vetur við af hausti og því verður mikið það sama einkennandi fyrstu mánuði ársins og kom inn í haust. Það má áfram klæðast hnéháum stígvélum, slám og skikkjum. Leðrið eflist og það er ekki bara verið að tala um leðurjakka og buxur heldur allt settið; leðurnærföt, kjólar, leður- skyrtur, pils og húfur. Það er bara nánast allt leyfilegt í leðrinu, svo lengi sem það er töff, ekki fara í YMCA-gírinn og mundu að leður bætir alltaf á þig nokkrum fitulögum. Þó nán- ast allt sé leyfilegt í leðrinu þá hef ég aldrei séð leðurstuttbuxur, háar í mittið, fara nokkrum vel, þær komust í tísku í lok síðasta sumars og hörðustu horgrindur báru þær ekki einu sinni. Karlmannlegt útlit verður áfram; herraleg- ar dragtir og flatbotna skór en poppað upp með þunnri blússu með slaufu eða blómi í barminum. Ekki tína kvenleikanum, hann er alltaf í tísku. Stórar prjónaflíkur eru ávallt svalar þegar kalt er í veðri. Því stærri, því betra. Ekki láta sjá þig með lufsutrefil, trefillinn á a.m.k að ná þrjá hringi í kringum hálsinn og samt eiga endarnir að ná niður fyrir hné. Sumar Sumartískan verður svipuð og í fyrra, nema allt verður aðeins ýktara. Það var í tísku að vera í tættum gallabux- um og klóruðum í fyrrasumar en núna geng- ur það lengra. Rifnar gallabuxur, í orðsins fyllstu merkinu, verða málið. Þær eiga ekki að geta talist heilar og lærin eiga að sjást vel í gegn. Amma þín verður ekki ánægð, tekur líklega fram saumavélina og bætir buxurnar þegar þú sérð ekki til … sem verður allt í lagi, vittu til, því mjög bættar gallabuxur verða líka móðins. Við erum ekki að tala um búta- saum heldur tilviljunarkenndar bætur hér og þar, svona eins og þú sért að reyna að nýta buxurnar vel, halda þeim saman, en samt á að sjást í tætingslegar rifur hér og þar. Rifnar mjög stuttar gallastuttbuxur verða líka enn meðal vor og talandi um stuttbuxur þá verða þröngar og stuttar stuttbuxur í tísku í sumar, svolítið eins og gamaldags karl- mannsnærbuxur í laginu. Flott á leggjalöng- um. Samfestingarnir áttu góða endurkomu í fyrra og halda sér enn inn á vellinum á þessu ári. Samfestingar í öllum gerðum og stærðum sáust mikið á tískupöllunum þegar vor- og sumartískan 2010 var kynnt. Allt er saumað saman og oftast með belti í mittið enda er mittislínan eitt af atriðunum á þessu ári líka. Því hinn „gamaldags“ kvenleiki er ekki gleymdur og grafinn og verður áfram í tísku. Einnig eru hermanna- og pönkaraáhrif enn sterk. Margar gerðir af Blazer-jökkum, sem komust í tísku í fyrra, verða áfram nú, stuttir, þröngir, víðir og síðir, allt verður leyfilegt í þeim fyrir utan hallærislegir. Stór „Afríku“- mynstur verða mjög áber- andi í sumar á kjólum, blússum og samfest- ingum. Stórir skartgripir koma í stíl við þessi stóru mynstur. Pífur, púff og allskonar prjál eru á flestum flíkum, ekkert virðist vera einfalt. Þó axlir haldi áfram að vera stórar, gleymið þá axlap- úðum í anda níunda áratugarins, tískuhroll- vekja sem aldrei hefði átt að vera vakin upp og fór hún einhverjum vel? Annars er bara málið að klæða sig eftir vexti og persónuleika, þá er maður alltaf flottur. Heilgalli Samfestingar í allskonar myndum sjást mikið í sumar. Reuters Vetur og vor Gegnsæ efni og pönkaraskapur er málið í byrjun ársins. Hermannaáhrifa í hönnun gætir enn og svart er alltaf vinsæll litur. Stórt mynstur Klæðilegt í sumarhitanum á Spáni, tæpast á Íslandi. Einkennisfatnaður ársins Leður Victoria Beckham og Kate Moss klæðast leðri frá toppi til táar. Í tísku Fyrir- sætan Erin Was- son í rifnum gallabuxum og Blazer-jakka. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2010 FRÁ RAGNARI BRAGASYNI KEMUR EIN BESTA GAMANMYND ÁRSINS! SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI GEORG, ÓLAFUR RAGNAR OG DANÍEL ERU KOMNIR Í BÍÓ! FRÁBÆR MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA BJARNFREÐARSON HHHH MEINFYNDIN... – FRÉTTABLAÐIÐ/BERGSTEINN SIGURÐSSON HHHH ÞAÐ VAR LAGIÐ! – DV/DÓRI DNA VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG JOHN TRAVOLTA OG ROBIN WILL- IAMS FARA Á KOSTUM Í ÞESSARI SPRENGHLÆGILEGU MYND OldDogs SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG SELFOSSI FRÁBÆR SPENNUMYND Í ANDA SCREAM OG I KNOW WHAT YOU DID LAST SUMMER ÞÆR ÆTLA AÐ REYNA AÐ ÞAGA YFIR LEYNDARMÁLI DAUÐANS!SÝND Í ÁLFABAKKAOG AKUREYRI (AÐRA VIKUNA Í RÖÐ) / KRINGLUNNI BJARNFREÐARSON kl.3:20-5:40-8-9-10-10:20 L PRINSESSAN OG FROSKURINN m. ísl. tali kl.4:10-6 L OLD DOG kl.4 -8 L A CHRISTMAS CAROL m. ísl. tali kl.6:20 3D-DIGITAL 7 / ÁLFABAKKA BJARNFREÐARSON kl.4-5:40-6:20-8-9-10:20 L NINJAASSASSIN kl. 10:20 16 BJARNFREÐARSON kl. 5:40 - 8 - 10:20 VIP THETWILIGHT2NEWMOON kl. 8 - 10:30 12 PRINSESSANOGFROSKURINN m.ísl.tali kl.3:40-5:50 L A CHRISTMAS CAROL m. ísl. tali kl.3:40-5:50 7 OLDDOGS kl. 4 - 6 - 8 L A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl. 8 7 SORORITYROW kl. 10:30 16 GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.