Morgunblaðið - 05.01.2010, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 05.01.2010, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2010 Um þessar mundir eru 65ár síðan átakanlegastaog mannskæðasta árásÞjóðverja á landa okkar átti sér stað í síðari heimsstyrjöld- inni. Hún átti sér stað í nóvember, þjóðhátíðarárið 1944, uppi í land- steinum. Goðafoss varð fyrir tundurskeyti í innan við klukkustundarsiglingu frá Reykja- víkurhöfn, þýski kafbáturinn U-300 var að verki og sökk þetta flaggskip félagsins (Gullfoss var lokaður inni í Kaupmannahöfn öll stríðsárin) á ör- fáum mínútum. Með því fórust 42 menn, konur og börn. Árásin á Goðafoss er einn hörmu- legasti og mannskæðasti atburður aldarinnar sem var að líða, harm- leikur sem varð að gera skil af yfir- vegaðri fagmennsku í ystu æsar og gæta ýtrustu nákvæmni í stóru sem smáu við heimildasöfnun sem aðra vinnu. Kvikmyndagerðarmennirnir, með þá Björn B. Björnsson, Jón Ár- sæl Þórðarson og Þór Whitehead í fararbroddi, standa undir vænt- ingum og rúmlega það. Mér er til efs að jafn yfirgripsmikil og há- dramatísk heimildarmynd hafi áður verið gerð hérlendis og hún skipar sér í flokk með þeim bestu og minnisstæðustu. Fágaður bauta- steinn um þennan ömurlega hild- arleik sem átti sér stað svo nærri heimahöfn eftir tugþúsunda sjó- mílna siglingar á ógnvænlegu Norð- ur Atlantshafinu frá Ameríku til Ís- lands og meginlandsins, án þess að verða fyrir skakkaföllum eða mann- tjóni á eigin skipum. Þessar sigl- ingar voru hættuspil vegna kafbáta- hernaðar Þjóðverja og miklum fjölda skipa var sökkt í sæ. Skipa- lestirnar sigldu undir her- skipavernd sem veitti takmarkað öryggi. Eitt tundurskeyti batt endi á gifturíkan feril skips og skipverja og allmargra farþega, en Goðafoss var miðskipsbyggður með stóru far- þegaplássi líkt og altítt var í fragt- skipum fyrir tíma flugsins. Í fyrri hluta myndarinnar er lýst aðdraganda ferðarinnar frá New York, til Írlands og Reykjavíkur. Áhorfendur kynnast áhöfn og far- þegum, þ.á m. ungum lækn- ishjónum sem voru að halda heim að loknu námi með börn sín þrjú. Tvo unga drengi og litla dóttur. Fólk í óðaönn að búa sig undir sigl- inguna, sem síðar kom í ljós að átti eftir að verða sú síðasta hvað flesta snerti. Nokkur óhugur var í brjósti margra sem fóru í hinstu ferð Goða- foss, slíkar bábiljur töfðu að venju ekki för. Hér er stuðst við grúa heimildarmynda og skjala um hina örlagaríku ferð, við hverfum aftur í tímann, gefin er innsýn í vinnu um borð og í höfn, svo úr verður aðdá- unarverð lýsing á andrúmsloftinu sem ríkti, ekki sérstaklega válegu í New York en nærvera óvinarins sem beið í undirdjúpunum skammt undan, liggur í loftinu. Síðari þátturinn fjallar meira um eftirmálana, rætt er við þá sem komust af og afkomendur þeirra sem fórust. Í þessum þætti fara kvikmyndargerðarmenn á kostum. Óttinn, kuldinn, vosbúðin, skelfingin við að sjá á eftir félögum sínum hverfa í jökulkalt djúpið án þess að geta rönd við reist, illa búnir í ill- viðri og kröppum sjó. Mistökin sem urðu þegar hjálparskipin brunuðu áfram og sneru ekki við fyrr en seint og um síðir fyrir fjölda skips- brotsmanna sem svamlaði nær dauða en lífi á slysstað, auk þess sem þau grönduðu án vafa fjölda manns sem hékk á braki í sjóskorp- unni með gjörsamlega tilgangslausu djúpsprengjuregni. Þá halda höf- undar í merkilega ferð til Þýska- lands þar sem þeir hafa upp á skip- verjum af U-300, þar sem við fáum fróðlega sýn á þeirra hlið í þessum hildarleik. Því má bæta við að kvikmynda- gerðarmennirnir fjalla ýtarlega um þá miklu leit sem staðið hefur yfir að flakinu að Goðafossi, vot gröf þess hefur ekki fundist enn, þrátt fyrir marg ítrekaðar tilraunir og með bestu tækni sem völ er án. Megi það hvíla í friði. saebjorn@heimsnet.is Harmleikur við hafnarmynnið RUV Árásin á Goðafoss bbbbm Íslensk heimildarmynd. Leikstjóri: Björn B. Björnsson. Handritshöfundar: Jón Ársæll Þórðarson og Þór Whitehead. Tónlist: Tryggvi Baldursson. 2 x 60 mín. Reykjavík Films. RUV 2009/2010. SÆBJÖRN VALDIMARSSON KVIKMYND Goðafoss Kvikmyndagagnrýnandinn Sæbjörn Valdimarsson segir kvikmyndagerðarmennina standa undir væntingum og rúmlega það. Móðir mín, Guðmunda Júlíusdóttir, fæddi undirritaðan í heiminn síðla októ- bermánaðar 1944, á St. Franciskusspítalanum í Stykkishólmi. Væri slíkt ekki í frásögur færandi hér ef kafbáturinn illræmdi, U-300, hefði ekki komið að öllum líkindum við sögu. Slík er nánd þessara atburða. Vegamálin voru ekki burðugri en það á fæðingarári mínu að ökufært var að Búðum og þangað var móðir mín komin í nóvemberbyrjun með hvítvoð- unginn, vandlega pakkaðan inn í Frón-kexkassa, sem þá voru hinir ramm- byggilegustu, gerðir úr fjölum. Frá Búðum eru um 20 km að æskuheimilinu, Skjaldartröð á Hellnum og var ekki annað ráða en að biðja sómamanninn Bjarna Finnbogason á Ósakoti við Búðir að ferja okkur mæðginin síðasta kaflann. Hann var rösklega tveggja tíma sigling, en Bjarni gerði út trillubát ásamt búrekstri á Ósakoti. Það var auðsótt mál og haldið í hann vestur á kuldagráum vetrarmorgni. Bar fátt til tíðinda uns við vorum um það bil hálfnuð á leiðarenda, að þýskur kafbátur rak upp ófrýnilega sjónpípuna rétt við bátkrílið. Móður minni var brugðið. Bjarni, sem var m.a. útlærður brugg- ari frá þekktri, þýskri ölgerð, veifaði stríðstólinu en undirritaður ku hafa haldið ró sinni í kexkassanum. Til allrar guðslukku var ekki runnið morðæði á Húna þennan morguninn, það braust út tveim, þrem dögum síðar, sunnar í flóanum, við Garðskaga. Þeim hildarleik lauk að vissu leyti í lítilli vík sem nefnist Skollabrunnur og er austast í Hellnahrauni, þar sem gatan er tæpust. Þar rak litlu drengina, syni læknishjónanna sem fórust áamt börnum sínum í árásinni á Goðafoss. Þeir voru bornir í hús í Skjaldartröð þar sem ömmusystir mín, kvenskörung- urinn Jakobína Þorvarðardóttir, Bína í Melabúð, var beðin þess að snyrta lík- in, og Kristinn heitinn Kristjánsson lýsir svo skilmerkilega, þökk sé um 10 ára heimildarvinnu höfunda hinnar minnisstæðu Árásarinnar á Goðafoss. Stríðið kemur vestur undir Jökul Stórkostleg teiknimynd þar sem Laddi fer á kostum í hlutverki ljósflugunnar Ray Valin mynd ársins af TIME MAGAZIN Tilnefnd til Golden Globe verðlauna sem best teiknaða myndin. Selma Björnsdóttir - Rúnar Freyr Gíslason Magnús Jónsson - Laddi – Egill Ólafsson SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI Sýnd með íslensku og ensku tali JÓLAMYNDIN Í ÁR JIM CARREY fer gersamlega á kostum SÝND Í ÁLFABAKKA BYGGT Á HINNI GRÍÐARLEGU VINSÆLU BÓKASERÍU STEPHENIE MEYER ÞRIÐJA STÆRSTA FRUMSÝNINGARHELGI ALLRA TÍMA Í USA VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI, 2 VIKUR Í RÖÐ! SÝND Í ÁLFABAKKA EINHVER FLOTTUSTU BARDAGAATRIÐI SEM SÉST HAFA Í LAAANGAN TÍMA! „AFÞREYING MEÐ HRÖÐUM HASAR, SJÓNRÆNUM NAUTNUM... SEM HALDA ATHYGLI ÁHORFANDANS.“ *** H.S.-MBL HÖRKU HASARMYND SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI / AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI BJARNFREÐARSON kl. 5:45 - 8 -10:20 L PRINSESSAN OG FROSKURINN m. ísl. tali kl. 6 L OLD DOGS kl. 8 L NINJA ASSASSIN kl. 10:20 16 BJARNFREÐARSON kl. 5:45 - 8 - 8:30 - 10:20 L PRINSESSAN OG FROSKURINN m. ísl. tali kl. 6 L SORORITY ROW kl. 10:40 16 BJARNFREÐARSON kl. 5:45 - 8 - 10:20 L PRINSESSAN OG FROSKURINN m. ísl. tali kl. 6 L AVATAR kl. 8 - 11 10 GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIR 02.01.2010 2 17 18 19 29 2 1 5 2 6 7 0 5 7 6 14 30.12.2009 15 18 22 26 32 43 2519 27

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.