Monitor - 22.04.2010, Qupperneq 15
„Þessi sýning hefur verið að gerj-
ast í hausnum á mér í þrjú ár,“ segir
Gísli Örn Garðarsson sem leikstýrir
Faust sem sýnt er í Borgarleikhús-
inu um þessar mundir. „Það var
mjög snúið og flókið mál að takast á
við þetta stykki og mikil vinna sem
liggur þarna að baki. Það er kannski
eðlilegt að maður vandi sig við þetta
verk og taki góðan tíma í það enda
tók það Göthe 60 ár að skrifa það,“
segir Gísli og bætir við:
„Markmiðið er að fólk sem sér
sýninguna í fyrsta skipti fái bragðið
af Faust og öðlist skilning á verkinu
auk þess að eiga góða leikhúsupp-
lifun. Mér finnst það hafa tekist
mjög vel,“ segir Gísli sem hefur
vakið athygli fyrir hlutverk sitt í
stórmyndinni Prince of Persia sem
verður frumsýnd í maí. „Ég er nú
bara í aukahlutverki í þeirri mynd.
Ég mun líklega fara á frumsýning-
una úti og hérna heima
en þar með held ég að
mínu hlutverki sé bara
lokið,“ segir Gísli, hógvær
að vanda.
Flókið að fást
við Faust
FAUST
Borgarleikhúsið
20:00
fílófaxið
sunnudagur
SKOPPA OG SKRÍTLA
Á TÍMAFLAKKI
Borgarleikhúsið, litli salur
12:00 og 14:00. Tilvalin sýning tilað fara með krakka á enda
hafa Skoppa og Skrítla verið eftirlæti ungra
leikhús- og bíógesta undanfarin ár.
FÍASÓL
Þjóðleikhúsið, Kúlan
13:00 og 15:00 Fíasól í Hosiló ersprellfjörug sýning fyrir alla
fjölskylduna byggð á hinum geysivinsælu
og margverðlaunuðu bókum Kristínar Helgu
Gunnarsdóttur. Sýningunni er leikstýrt af
Vigdísi Jakobsdóttur.
ÓLÍVER!
Þjóðleikhúsið
15:00 og 19:00. Eftir tuttugu árahlé gefst Íslendingum aftur
færi á að slást í för með götustráknum Ólíver
Twist sem lendir í ýmsum ævintýrum og
hindrunum í lífsbaráttu sinni. Ólíver!, byggð-
ur á ódauðlegri sögu Charles Dickens, er einn
vinsælasti söngleikur allra tíma. Leikstjórn er
í höndum Selmu Björnsdóttur.
ÚRSLITARIMMA Í
HANDBOLTA KVENNA
Framheimilið
16:00 Úrslitin gætu ráðist hjástelpunum í handboltanum.
Þessi leikur fer einungis fram ef Framstúlkur
ná að knýja fram sigur í föstudagsleiknum, að
öðrum kosti eru Valsstúlkur Íslandsmeistarar.
TVEIR FÁTÆKIR PÓLSKU-
MÆLANDI RÚMENAR
Norðurpóllinn
20:00 Fátæka leikhúsið spreytir sigá þessu víðförla og umtalaða
verki, en höfundur þess, Dorota Maslowska,
er einn fremsti ungi rithöfundur Pólverja.
Leikstjóri er Heiðar Sumarliðason.
FAUST
Borgarleikhúsið
20:00 Fjörutíu ár eru liðin síðanFaust var síðast sett á svið
á Íslandi en nú gefst áhugasömum tækifæri
til að berja sýninguna augum í Borgarleik-
húsinu. Í þetta skiptið er leikstjórn í höndum
Gísla Arnar Garðarssonar en það er enginn
annar en Nick Cave sem sér um tónlistina í
sýningunni ásamt Warren Ellis.
TÓNLEIKAR
Kaffi Rósenberg
22:00 Rósenberg býður upp átónleika alla helgina. Í þetta
skiptið stígur hljómsveitin Dægurflugurnar á
svið og leikur fyrir gesti.
KJARTAN TRÚBADOR
English Pub
22:00 Kjartan tekur gítarinn meðsér og er aldrei að vita
nema hann spili nokkur vel valin lög ef rétta
stemmningin myndast.
ÞYNNKUBÍÓ Á PRIKINU
Prikið
22:00 Prikið býður landsmenn semþjást af timburmönnum sér-
staklega velkomna á bíósýningu í notalegu og
hlýlegu umhverfi. Að þessu sinni verður hið
geysivinsæla léttmeti Clueless á boðstólum.
TÓNLEIKAR PENTA
Hressó
22:00 Hljómsveitin Penta leikurfyrir dansi í Hressingarskál-
anum. Tilvalið fyrir þá sem vilja sýna lipra
takta á dansgólfinu.
LIFANDI TÓNLIST
Dubliner
22:30 Boðið verður upp á trúba-dorastemningu fyrir gesti og
gangandi. Tilvalið að fara með félögunum og
detta í tvo til þrjá kalda og njóta tónlistar-
innar.
#
$
ıwww.itr.is sími 411 5000
Sundsamlega gott!
Heilsulindir í Reykjavík
25
apríl