Morgunblaðið - 31.03.2010, Qupperneq 8
8 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2010
Stjórnmálamönnum er mjög mis-jafnlega raðað á vinsældalista
„fréttaskýrenda“.
Ótrúlega mörgum vestrænumfréttaskýrendum þykir ekkert
að því að vel sjáist í lítt dulbúna að-
dáun þeirra á Fídel Kastró Kúbu-
leiðtoga. Er ferill hans þó blóði
drifinn og fréttamenn eiga sérlega
dapra daga í ríki
hans. Og er þá
ekki verið að tala
eingöngu um þá
sem hann hefur
látið fangelsa og
pynta.
Silvio Berlus-coni er á hinn
bóginn talinn illa
spilltur, algjör rati í femínisma og
með fleira af því tagi á samvisk-
unni. Ítalir héldu sveitarstjórn-
arkosningar á dögunum. Því var
mjög haldið á lofti af „fréttaskýr-
endum“ að talið væri ljóst að í þeim
kosningum yrði forsætisráð-
herranum þunglega refsað að verð-
leikum.
Á kjördag bárust fréttir af lélegrikjörsókn og vísað var í heim-
ildir frá „fréttaskýrendum“ þar
sem talið væri að í henni fælist aug-
ljós andúð á Berlusconi og fyrirboði
um það sem koma skyldi. Síðan
hafa færri fréttir borist og augljóst
að á „fréttaskýrendur“ hafa hlaðist
aðrir atburðir, sem taka allan
þeirra tíma. Því hefur þeim ekki
gefist tóm til að greina frá að for-
sætisráðherrann og flokkur hans
náðu fjórum stórum sveit-
arstjórnum úr höndum andstæð-
inga sinna, þar með talið höf-
uðborginni Rómaborg.
En í raun er þetta svo sem enginfrétt þegar hafðir eru í huga
aðrir kosningasigrar, svo sem eins
og Kastrós í fjóra áratugi, sem allt-
af fékk nærri 100% atkvæðanna.
Geri aðrir betur. Þá þurfti ekki að
hafa áhyggjur af kjörsókninni.
Silvio Berlusconi
Fréttaskýrendur komnir í annað
Veður víða um heim 29.3., kl. 18.00
Reykjavík 1 heiðskírt
Bolungarvík -5 skýjað
Akureyri -4 skýjað
Egilsstaðir -5 skýjað
Kirkjubæjarkl. 1 skýjað
Nuuk 2 skýjað
Þórshöfn 3 skýjað
Ósló 2 skýjað
Kaupmannahöfn 7 skýjað
Stokkhólmur 4 súld
Helsinki 2 skúrir
Lúxemborg 13 léttskýjað
Brussel 14 léttskýjað
Dublin 8 skýjað
Glasgow 5 skýjað
London 12 skúrir
París 18 skýjað
Amsterdam 12 skýjað
Hamborg 10 skýjað
Berlín 10 skýjað
Vín 18 skýjað
Moskva 7 skýjað
Algarve 18 skýjað
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 14 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 16 léttskýjað
Aþena 17 léttskýjað
Winnipeg 8 skýjað
Montreal 4 skúrir
New York 11 skúrir
Chicago 4 skýjað
Orlando 19 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
31. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:49 20:16
ÍSAFJÖRÐUR 6:50 20:25
SIGLUFJÖRÐUR 6:33 20:08
DJÚPIVOGUR 6:18 19:46
„ÉG bara sofnaði
eða datt út á
versta stað og
tíma. Það var
andstyggilegt að
vakna upp við
þessar að-
stæður,“ segir
Sæmundur Óla-
son, skipstjóri í
Grímsey, en hann
var við annan
mann um borð í línubátnum Lágey
sem strandaði við Héðinshöfða að-
faranótt sl. föstudags, um þrjár sjó-
mílur norður af Húsavík. Hvorki
Sæmund né skipsfélaga hans sakaði
en eftir árangurslausar tilraunir við
að draga bátinn af strandstað gengu
þeir á land um ellefuleytið á föstu-
dagsmorgun.
Sæmundur segist ekki gera sér
grein fyrir hve lengi hann hafi dott-
að við stýrið en nóg samt til að reka
af leið og upp undir fjöru. Vaknaði
hann við hávaðann frá skrúfunni er
hún var að hreinsa blöðin af sér á
stórgrýtisklöpp.
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu og á mbl.is gekk erfiðlega
að ná bátnum af strandstað á föstu-
deginum. Ekki var til nógu sterkt
dráttartóg og svo fór að björgunar-
menn biðu færis þar til sl. laugardag
að fjarað hafði nægilega frá til að
lyfta bátnum upp á vörubílspall, með
aðstoð stórvirkra vinnuvéla. Var þá
búið að bjarga öllu lauslegu úr bátn-
um, eins og veiðarfærum, afla og ol-
íu.
Skipstjóri í afleysingu
Sæmundur var á leið frá Kópa-
skeri til Húsavíkur er óhappið varð,
til að skila bátnum af sér eftir afleys-
ingu sem skipstjóri Lágeyjar í rúm-
an hálfan mánuð. Hafði hann skilið
eftir helming áhafnarinnar á Kópa-
skeri. Hann segist á sínum langa sjó-
mannsferli hafa lent í ýmsum hrakn-
ingnum, m.a. fallið útbyrðis á unga
aldri á sjó með föður sínum, en ekk-
ert jafnist á við þetta atvik.
„Í sjálfu sér bjargaðist þetta og
skiptir mestu að ekki varð mann-
skaði eða slys á fólki. Tilfinningin er
heldur ekki góð að þetta gerist á báti
sem maður á ekkert í en ég hef mætt
góðum skilningi og viðmóti eig-
endanna og annarra sem að málinu
hafa komið,“ segir Sæmundur en
hann óttast að báturinn sé mjög illa
farinn og jafnvel ónýtur þó að vélin
sé óskemmd. Það verði síðan trygg-
ingarfélagsins að meta hvað gert
verði við bátinn.
Þakklátur öllum
Sæmundur telur að á meðan Lág-
ey sat föst hafi hún færst til um eina
500 metra á skerinu og skemmst enn
meira við það. Var gerður vegarslóði
að bátnum landleiðina og honum lyft
upp á stóran og kraftmikinn bíl með
vöruflutningapalli, sem fyrr segir.
Þaðan var Lágey ekið til Húsavíkur.
„Ég vil endilega koma á framfæri
þökkum til allra sem aðstoðuðu okk-
ur, bæði meðan á strandinu stóð og
við það að koma bátnum á þurrt
land,“ segir Sæmundur en hann tek-
ur aftur við sínum eigin báti á
Grímsey og fer á grásleppuveiðar.
„Það þýðir ekkert að gefast upp á
sjónum, lífið heldur áfram,“ segir
hann að endingu. bjb@mbl.is
„Sofnaði á versta
stað og tíma“
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Björgun Notast var við stórvirkar vinnuvélar til að ná Lágey af strandstað.
Sæmundur
Ólason
Sæmundur skipstjóri ekki lent í öðru eins
Í HNOTSKURN
»Lágey strandaði við Héð-inshöfða um tvöleytið að-
faranótt föstudagsins 26.
mars. Leki var kominn að
bátnum um sexleytið.
»Nærstaddir línubátar,Karólína og Háey II, voru
kallaðir til aðstoðar auk
Landsbjargar á Húsavík.
»Ekkert gekk að toga bát-inn af strandstað og var
hann hífður á land síðdegis á
laugardag.
Gleðilega páska
Ungnau
ta pipa
rsteik1899
kr.
kg
verð áð
ur 349
8
45%afslátturÍslensk
t
nautakj
öt