Morgunblaðið - 31.03.2010, Síða 16

Morgunblaðið - 31.03.2010, Síða 16
16 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2010 ÞÚ TALDIR RÉTT: 2 MILLJARÐAR OG 400 MILLJÓNIR KRÓNA F í t o n / S Í A AT HU GI Ð AÐ SÖ LU LÝ KU R NÚ KL . 1 6 Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „HIN nýja og glæsilega sundlaug er ekki aðeins mikil bylting fyrir sundkennsluna og fyrir unga sem aldna íbúa á Hofsósi, heldur er ég þess fullviss að laugin muni vekja athygli ferðamanna, sem nú þegar sækja Hofsós heim í þúsundatali vegna Vesturfarasetursins,“ segir Áskell Heiðar Ásgeirsson, sviðs- stjóri markaðs- og þróunarsviðs sveitarfélagsins Skagafjarðar, sem annaðist opnun sundlaugarinnar á Hofsósi um helgina. Talið er að um 500 manns hafi verið við vígsluna og síðan í kaffisamsæti í félags- heimilinu Höfðaborg í boði sveitar- félagsins. Frítt var í laugina um helgina, sem á fjórða hundrað manns nýtti sér. Að sögn Áskels Heiðars verður það að teljast gott þar sem íbúar Hofsóss eru tæplega 200 talsins. Sundlaugin, sem hefur verið tæp tvö ár í byggingu, er gjöf þeirra Lilju Pálmadóttur á Hofi og Stein- unnar Jónsdóttur í Bæ til íbúa Skagafjarðar, en báðar eiga þær ættir að rekja til héraðsins austan vatna, eins og sagt er. Nýja laugin er 25 metra löng og 10,5 m á breidd og við hana er heit- ur pottur og vaðlaug. Aðstöðuhúsið er um 380 fermetrar að grunnfleti og fellur sundlaugin einkar vel inn í umhverfið. Hún er niðri á sjávar- bakka sunnarlega á Hofsósi, ofan við svonefnda Staðarbjargarvík. Er laugin þannig frágengin að þegar synt er frá suðri til norðurs rennur vatnsflöturinn saman við hafflötinn neðan hennar með beina stefnu á Drangey. „Sundlaugin er afar glæsilegt mannvirki og hugmyndin um að skapa ákveðna upplifun með þessari staðsetningu á sjávarbakk- anum, með samspili laugarinnar og ólgandi Atlantshafsins, hefur tekist fullkomlega. Fyrir vikið er það mikil upplifun að fara núna í sund á Hofsósi,“ segir Áskell Heiðar en yf- ir páskana verður sundlaugin opin á skírdag, laugardag og páskadag, en lokuð föstudaginn langa og ann- an í páskum. Langþráður draumur Við vígluathöfnina sagði Þórdís Friðbjörnsdóttir, formaður byggð- arráðs Skagafjarðar, að ræst hefði langþráður draumur allra Hofós- inga og nærsveitamanna. Sagði hún það sennilega vera einsdæmi að sveitarfélagi eða íbúum þess væri færð gjöf af þessari stærðargráðu, að því er segir í tilkynningu frá sveitarfélaginu. Sagði Þórdís enn- fremur að með sinni einstöku gjöf hefðu Lilja og Steinunn sýnt í verki hug sinn og vinarþel í garð íbú- anna, sem hún fyrir hönd sveitarfé- lagsins þakkaði þeim af heilum hug. Synt í beinni stefnu á Drangey  Ný sundlaug vígð á Hofsósi  Gjöf þeirra Steinunnar Jónsdóttur og Lilju Pálmadóttur til íbúa Skagafjarðar  Bylting í sundkennslu grunnskólabarna og kærkomin viðbót fyrir ferðamenn Ljósmyndir/Rafn Sig.-Verkís Vígsla Um 500 gestir voru við vígslu sundlaugarinnar. Að henni lokinni var öllum boðið í kaffi í Höfðaborg. Fyrst til að stinga sér í laugina voru krakkar frá Hofsósi og hin hálfskagfirska sunddrottning Ragnheiður Ragnarsdóttir. Gjöf Steinunn Jónsdóttir og Lilja Pálmadóttir við vígsluna með hnaus frá fyrstu skóflustungunni. Í HNOTSKURN »Nú eru komnar sundlaug-ar í öllum þéttbýlis- kjörnum í Skagafirði. »Auk Hofsóss eru sund-laugar á Sauðárkróki, Hólum, Steinsstöðum, í Varmahlíð og að Sólgörðum í Fljótum. »Sigríður Sigþórsdóttirarkitekt hannaði sund- laugina, Verkís sá um burð- arvirki og lagnahönnun og aðalverktaki var Sveinbjörn Sigurðsson hf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.