Morgunblaðið - 31.03.2010, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 31.03.2010, Qupperneq 27
Minningar 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2010 ✝ Áslaug Haf-berg fæddist í Reykjavík 12. maí 1921. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Eir 17. mars 2010. Foreldrar henn- ar voru Bjarney Anna Hafberg, húsmóðir, f. 26.7. 1895 að Hrauni í Keldudal í Dýra- firði, d. 20.2. 1938, og Helgi Sigurgeir Hafberg, kaup- maður, f. 2.11. 1896 að Grænhól á Álfanesi, d. 6.6. 1948. Áslaug var yngst þriggja systkina, stúlkubarn f. 7.10. 1918, lést 3 mánaða gömul, síðan Ingólfur Einar Jens, kaupmaður, f. 7.1. 1920, d. 24.9. 1996. Áslaug átti einn uppeldisbróður Alfreð, f. 30.4. 1918, d. 6.5. 1926. Áslaug ólst upp á Berg- þórugötu 11 í Reykjavík. Það var margt um manninn á heimilinu, meðal annars Ingibjörg, föð- uramma hennar, sem ól upp son- arson sinn, Þórarin Hafberg. Nokkur sumur var hún í vist að Hrepphólum í Hrunamanna- hrepp og Hraungerði í Hraun- gerðishrepp. Á þessum árum kynnist hún Árna Elíassyni skipasmiði frá Hólshúsum í Gaul- verjabæjarhreppi f. 11.4. 1917, d. 6.5. 1995. Foreldrar hans voru Guðrún Þórðardóttir, húsmóðir, og Elías Árnason, bóndi að Hóls- húsum í Gaulverjabæjarhr. Árni átti 8 systkini sem öll eru látin. Áslaugu, sambýlismaður Magnús Arason, börn þeirra eru Svan- fríður Harpa og Ari Þór. b) Jón Má, sambýliskona Áslaug Jós- epsdóttir, börn þeirra eru Ólafur Freyr og Bjarndís Lind, áður átti Jón Már Þorgeir Má, sambýlis- kona Anna Katrín Arnfinnsd., móðir Þorgeirs er Elín Þor- geirsd. 4) Bjarney Anna, f. 18.1. 1955, gift Friðfinni Halldórss., þau eiga þrjá dætur a) Verna Kristín, gift Gísla Guðjóni Ólafss., dóttir þeirra Gabríela Þórunn, áður átti Gísli soninn Elvar Örn, móðir hans er Una Björk Kristófersd. b) Áslaug Guðfinna, sambýlismaður henn- ar er Benedikt Þór Jakobsson, börn þeirra eru Brynja Katrín og Arnar Kári. c) Maríanna Valdís. Afkomendur barna Áslaugar eru 32. Áslaug gekk í barnaskóla Austurbæjar, hún var virkur fé- lagi í KFUM og KFUK frá unga aldri, var hún mörg ár í bas- arnefnd þar sem hún var meðal annars um tíma formaður bas- arnefndar. Árið 1941-42 fór hún í Kvennaskólann á Blönduósi. Ár- ið 1955 stofnaði Áslaug ásamt Margréti Sigurðardóttur barna- fataverslunina Vögguna á Laugavegi 12a í Reykjavík, í sama húsi og fjölskyldan bjó í. Síðustu 14 árin bjó Áslaug á Vesturgötu 7 í Reykjavík og tók virkan þátt í félagsstarfi sem þar var í boði. Áslaug var mikil hann- yrðarkona, meðal annars saum- aði hún öll jólakortin fyrir síð- ustu jól. Útför Áslaugar fer fram frá Dómkirkunni í Reykjavík í dag, 31. mars 2010, og hefst athöfnin kl. 13. Áslaug og Árni giftu sig 3.7. 1943 og eignuðust þau 4 börn. 1) Elías, f. 25.12. 1943, kvænt- ur Jette Svövu Jak- obsd., eiga þau þrjú börn a) Elín Svava, gift Jóni Bjarna Steingrímss., börn þeirra eru Dag- björt Svava, sam- býlismaður Þor- geir Jónsson, börn þeirra eru Hjörtur Logi og Aldís Una. Steingrímur Elías, sonur hans er Elías Snær, móðir hans er Erla Lind Gunnarsd. Jette Magnea, sambýlismaður Eiríkur S. Arn- dal. Ásta María, unnusti Haukur Ó. Snorrason. b) Árni kvæntur Veru Kalashnikova, dóttir þeirra er Katrín Skuld, áður átti Árni Þórunni Meredith, móðir hennar er Serina Meredith, c) Ásta Bjarney. 2) Helgi Sigurgeir, f. 9.9. 1946, d. 19.9. 1994, var kvæntur Guðlaugu Björgu Björnsd., dóttir þeirra er Áslaug, sambýlismaður hennar er Jó- hann Páll Sigurðars., synir þeirra eru Kristján Helgi og Hrafn Hákon, áður átti Áslaug börnin Guðlaug Helgu og Sig- trygg, faðir þeirra er Ellert Sig- tryggss. 3) Gunnar Viðar, f. 18.3. 1951, sambýliskona hans er Bjarnveig Valdimarsd., dóttir þeirra er Katrín Hrönn, sam- býlismaður hennar er Snorri Marteinsson, áður átti Bjarnveig með Jóni Má Gestssyni börnin a) Elsku besta amma, nú ertu farin! Það er rosalega erfitt að sjá á eftir þér en mikil huggun er að vita með hverjum þú ert núna; afa, Helga, Ingólfi og öllum hinu. Minningar tengdar Laugavegi 12a eru margar og eru næturgistingarnar ofarlega í hugum okkar, við vorum svo montnar að amma og afi áttu heima á Laugaveginum. Það var svo margt spennandi við að koma í heimsókn til ykkar enda var mikið líf og fjör hjá ykkur. Þú varst ró- lyndismanneskja og leið okkur svo vel hjá þér. Þú tókst öllum uppá- tækjum okkar með stökustu ró, sama hver þau voru. Eftir að afi dó fluttir þú á Vesturgötuna. Þaðan eru margar minningar. Einkennd- ust heimsóknirnar okkar þar af spjalli og var ættfræðin mikið rædd enda stórt áhugamál hjá þér. Við gleymum því aldrei þegar við kynntum kærastana fyrir þér, það var viss spenna og kvíði. Þú lést þá koma til þín, horfa í augun þín og kleipst þá í kinnarnar … loftið var spennuþrungið – er hann sam- þykktur eða ekki? Mikill léttir var þegar þú samþykktir maka okkar, enda varstu góður mannþekkjari. Okkur þykir svo vænt um gleðina sem þú gafst okkur. Þú varst svo glöð að geta upplifað stóra viðburði með okkur; útskriftir, giftingu og fæðingar litlu molanna þinna. Við kveðjum þig með miklum söknuði, elsku amma, eftir lifa fallegar og góðar minningar. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Saknaðarkveðja og risaknús frá okkur systrum. Við elskum þig að eilífu. Verna Kristín, Áslaug Guðfinna og Maríanna Valdís Friðfinnsdætur. Það er komið að kveðjustund, nú ertu farin elsku Ása. Minningarnar líða um hugann og mitt í táraflóðinu myndast lítið bros og við minnumst alls þess góða og skemmtilega sem lífið gaf. Alveg frá því ég man fyrst eftir mér hefur þú verið hluti af lífi mínu. Merkilegt hvað við vorum tengd, ég skildi það ekki alltaf, en skil það í dag. Þú varst mér sem önnur móðir og hjarta þitt var fullt af kærleik til mín og minna. Ég er þakklátur fyrir það og þakklátur fyrir svo margt annað. Þegar við Ásdís byrjuðum að búa saman fyrir bráðum 17 árum tókstu henni eins og dóttur og börnum hennar sem barnabörnum, strákarnir okkar voru nýbúnir að heimsækja þig á Eir og höfðu orð á því að þú eltist bara ekkert og vær- ir alltaf jafn yndisleg, það voru orð að sönnu. Heilsan var ekki alltaf góð en alltaf varstu hress og vildir vita allt um börnin okkar og hvern- ig okkur liði, settir ekki sjálfa þig í fyrsta sætið. Spjall yfir kaffibolla, hvort sem var á Laugaveginum eða Vesturgötunni, var notalegt og fræðandi, þú vissir svo margt og mikið og varst dugleg að leyfa okk- ur að fylgjast með fjölskyldu þinni, það var þitt stolt og þín gleði hversu vel hópurinn þinn dafnaði og stækkaði. Við eigum ótal margar ljúfar minningar sem ylja okkur um ókomin ár. Elsku frændfólk, við vottum ykkur samúð og biðjum góðan guð að blessa yndislega konu. Svo viðkvæmt er lífið sem vordags- ins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherj- ardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson) Þinn Bjarni Ómar, Ásdís og börn. Látin er ein af uppáhalds frænk- um mínum, hún Áslaug Hafberg fyrrverandi kaupmaður á Lauga- veginum í Reykjavík. Áslaug frænka, eins og við köll- uðum hana alltaf, var einstaklega góð, hjálpleg og velviljuð kona. Faðir minn, Einar, lengst af búsett- ur á Flateyri, sagði okkur systk- inunum margar sögur af því þegar Áslaug hjálpaði honum og bjargaði úr ýmsum raunum sem hann lenti í sem ungur og uppreisnargjarn maður á sínum yngri árum. Pabbi var ekki sá eini sem Áslaug hjálp- aði, hún hjálpaði öllum sem til hennar leituðu og taldi það ekki eft- ir sér. Fjölskylda mín frá Flateyri kynntist sannarlega gestrisni og góðvild Áslaugar þegar lagt var í langferð til Reykjavíkur, þá stóð heimili þeirra Áslaugar og Árna að Laugavegi 12 alltaf opið fyrir okkur ferðalangana og gistum við oft þar í umræddum ferðum. Það var svo gaman að gista hjá Áslaugu, þar hittust flestir í fjölskyldunni, bæði fjarskyldir og náskyldir, enda heimili þeirra í þjóðbraut við neð- anverðan Laugaveginn, oft var eins boðið hefði verið til ættarmóts í stofunni þeirra. Ég minnist margra ferða þar sem ég ungur drengur gisti hjá Áslaugu frænku og við Viðar, sonur hennar og frændi minn, fórum margar ævintýraferðir um miðbæinn og niður í Slipp þar sem Árni starfaði. Fyrir mig, sveitastrákinn, voru þessar ferðir hrein ævintýri og minnist ég þeirra enn með þakklæti og ævintýra- ljóma og gott var að koma aftur heim á Laugaveginn því þar beið þétt faðmlag og góðgæti. Eitt af áhugamálum Áslaugar var ættfræði og ættrækni og tók hún sig til fyrir 20 árum og tók saman og gaf út í bókarformi ættartölu Hraunholtsættar í Garðahreppi. Bók þessi er hreinn dýrgripur og fletti ég henni reglulega til að fræð- ast frekar um forfeður mína og skyldmenni. Nú er það okkar yngri afkomendanna að bæta við þessa bók frá þeim tíma sem bók Áslaug- ar náði. Þessi bók hefur hjálpað mörgum, frændum og frænkum, að nálgast og kynnast frekar skyld- mennum sínum. Áslaug var gæfukona í sínu einkalífi þótt vissulega hafi sorgin ekki látið hana ósnerta, eiginmaður Áslaugar var Árni Elíasson, gegn- heill og grandvar sómamaður og stóðu þau hjón alla tíð þétt saman og voru traustir félagar og ólu börnin sín upp sem góðar fyrir- myndir og í miklu ástríki. Mér er sérlega minnisstætt sam- tal okkar Áslaugar fyrir hálfu öðru ári, þá vorum við „Hafbergar“ að undirbúa ættarmót. Við frænka hittumst og sagði hún mér margar sögur af ættfeðrum mínum. Sög- urnar voru vissulega misjafnar en frásögn hennar snerist um að koma á framfæri því jákvæða og besta sem býr í okkur öllum og kenndi það mér margt. Nú við leiðarlok vil ég, og við öll Einarsbörn frá Flateyri, þakka Ás- laugu frænku og allri hennar góðu fjölskyldu fyrir velvild og stuðning við okkur og þann mikla vinarhug sem hún bar alltaf til okkar og allt það góða sem hún kenndi okkur. Um leið og við kveðjum mikla sómakonu viljum við senda samúð- arkveðjur til barna hennar og fjöl- skyldna. Allar góðu minningarnar um Áslaugu frænku munu lifa. Ægir E. Hafberg og systkinin frá Flateyri. Áslaug Hafberg er ein af KFUK- konunum sem ég man eftir sem barn. Hún var verslunarkona og rak verslun á Laugaveginum og ég man eftir hvað mér fannst það merkilegt að koma inn í litla og troðfulla búðina af barnafötum. Áslaug var félagskona í KFUK frá unga aldri og sýndi afar mikla tryggð við félagið. Í huga mínum átti hún tvö óskabörn í félaginu: Basar KFUK og Vindáshlíð, auk þess sótti hún vel AD-fundi meðan hún gat. Hún var í basarnefnd fé- lagsins í mörg ár og fylgdist vel með og hafði yndi af að koma á bas- arinn meðan heilsan leyfði og fagna með félagskonum á þessum hátíð- isdegi sem basarinn er. Áslaug var í vinnuhópi hjá Helgu Friðriksdótt- ur frá upphafi sem vann að und- irbúningi basarins mikinn hluta ársins. Hún lánaði verslunarglugga sinn til að sýna basarmuni í mörg ár fyrir basarinn. Kynni okkar Áslaugar endurnýj- uðust í Vindáshlíð þegar ég var í stjórn sumarbúðanna fyrir mörg- um árum. Hún kom í kvennaflokka eins lengi og hún gat og herbergi hennar var Lækjarhlíð. Hún átti sitt herbergi eins og aðrar „stelp- ur“ sem koma í Hlíðina og naut þess í ríkum mæli og oft var hlegið dátt en hún hafði einstaklega smit- andi hlátur. Áslaug var mjög kær- leiksrík kona og faðmur hennar var einstaklega hlýr eins og hún vildi umvefja alla með ástúð sinni. Það fengum við Gyða Karlsdóttir, fram- kvæmdastjóri KFUM og KFUK, að finna þegar við heimsóttum hana á Eir fyrir síðustu jól. Það var okkur ógleymanleg heimsókn. Það var einstaklega ánægjulegt að spjalla við Áslaugu og heyra hana segja frá starfi KFUM og KFUK frá liðinni tíð. Hún var haf- sjór af fróðleik og sagði skemmti- lega frá og félagið er svo lánsamt að Þórarinn Björnsson tók upp við- tal við hana á haustmánuðum um félagið. Áslaug var einlæglega trúuð kona sem setti von sína á Jesú Krist og bað fyrir öðrum og starf- inu í Guðsríki. Hún bað öllum blessunar Guðs sem voru í návist hennar. Einkunnarorð KFUK eiga vel við hana: „Ekki með valdi né krafti heldur fyrir anda minn, segir Drottinn allsherjar“ (Sakaría 4:6). Í virðingu og þökk kveðja KFUM og KFUK kæra félagssyst- ur. Við biðjum Drottin að blessa minningu Áslaugar Hafberg. Að- standendum hennar færum við innilegar samúðarkveðjur. F.h. KFUM og KFUK, Kristín Sverrisdóttir. Áslaug Hafberg HINSTA KVEÐJA Elsku langamma, við sökn- um þín svo mikið. Viltu vera svo góð að vera með okkur, gæta okkar og vaka yfir okkur? Takk fyrir öll knúsin og allar stund- irnar sem við áttum með þér. Elskum þig endalaust. Elvar Örn og Gabríela Þórunn Gíslabörn og Brynja Katrín og Arnar Kári Benediktsbörn. ✝ Þakka auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, HULDU GUÐJÓNSDÓTTUR, Hólabraut 5, Hafnarfirði. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd aðstandenda, Haukur Sveinsson. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, SIGRÍÐAR HILDAR ÞÓRÐARDÓTTUR vélritunarkennara, áður til heimilis Sporðagrunni 3, Reykjavík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunardeildar Hrafnistu í Reykjavík, H-2. Guðlaug Ingunn Jóhannsdóttir, Jóhann G. Jóhannsson og fjölskyldur. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR STEINSSON, Gullsmára 5, Kópavogi, áður garðyrkjubóndi í Hveragerði, lést á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn 24. mars. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 7. apríl kl. 13.00. Gunnhildur Ólafsdóttir, Agnar Árnason, Jóhanna Ólafsdóttir, Pétur Sigurðsson, Steinn G. Ólafsson, Guðrún Sigríður Eiríksdóttir, Símon Ólafsson, Kristrún Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.