Morgunblaðið - 31.03.2010, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 90. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Ricky Martin kominn út úr …
2. Litlar líkur á frekara gosi
3. Mónakó vill fá Eið Smára til baka
4. Reyndi að fá samfanga sinn í …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Rokksveitin Elektra hefur vakið
mikla athygli að undanförnu fyrir
ljósblátt myndband sitt sem hefur
verið bannað á öllum helstu vefveit-
um. Á stórskemmtilegri Fésbókarsíðu
sveitarinnar eru óháðir dagskrár-
gerðarmenn farnir að falast eftir
myndbandinu, auk þess sem lesa má
um árangur bassaleikarans í athygl-
isverðum þrekraunum. Tilsvör með-
lima og athugasemdir á síðunni eru
þá vægast sagt kostulegar.
Elektra grillar
hressilega í landslýð
Belginn Wim
Van Hooste er
enginn venjulegur
tónlistar-
áhugamaður.
Hann heldur úti
umfangsmiklu
bloggi í heima-
landi sínu þar sem
nálgast má ótrú-
legasta fróðleik um íslenska tónlist
auk þess sem hann aðstoðar fólk um
heim allan í leit sinni að íslenskum
tónlistargersemum. »36
Íslenskri tónlist allt
Örn Þórisson
skrifar um kvik-
myndina Black
Dynamite, sem
dregur hinar
svokölluðu
„blaxploitation“
myndir í senn
sundur og sam-
an í háði um
leið og þeim er
vottuð virðing. Frægasta mynd þeirr-
ar tegundar er efalaust Shaft en
gróskan í gerð þeirra var á áttunda
áratugnum. »40
Svartar hasar-
myndir skopstældar
Á fimmtudag (skírdagur) og föstudag (föstudagurinn langi)
Norðanátt, víða 8-13 m/s og él norðan- og austanlands, en annars yfirleitt léttskýjað.
Frost 0 til 12 stig, minnst við suðurströndina.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Norðan 5-10 m/s og él N- og A-lands, annars léttskýjað. Frost yfirleitt 1-10 stig, kaldast í
innsveitum norðanlands. Frostlaust sums staðar sunnanlands.
VEÐUR
Íslenska kvennalandsliðið í
handbolta er á framandi
slóðum hvað þá íþrótt varð-
ar. Það er komið til London
og leikur í kvöld gegn Bret-
landi í undankeppni Evr-
ópumótsins. Breska liðið er
skipað mörgum stúlkum af
skandinavískum uppruna
og er með danskan þjálfara.
Júlíus Jónasson landsliðs-
þjálfari segir íslenska liðið
ekki hafa efni á neinu van-
mati. »2
Handbolti gegn
Bretum í London
Mónakó vill fá Eið
Smára Guðjohnsen
til sín á ný þegar
keppnistímabilinu í
Englandi lýkur. Hann
er hinsvegar ekki á
sama máli. „Eið-
ur er mjög
ánægður hjá
Tottenham
og vill vera
áfram hjá
liðinu,“
sagði Arnór
Guðjohnsen,
faðir Eiðs
Smára og
umboðs-
maður hans, í
samtali við
Morgunblaðið í
gær. »1
Eiður Smári vill vera
áfram hjá Tottenham
Ekki var nóg með að Manchester
United fengi á sig mark á lokasek-
úndunum í München í gærkvöldi,
heldur meiddist Wayne Rooney á
ökkla. Örstuttu áður en Ivica Olic
tryggði Bayern sigurinn, 2:1, með síð-
ustu spyrnu leiksins, fór Rooney í ná-
vígi við Mario Gomez og lenti illa á
ökklanum. Var þetta fyrri leikur lið-
anna í Meistaradeildinni. »2
Rooney meiddist
í leik gegn Bayern
ÍÞRÓTTIR
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
í Króatíu
seth@mbl.is
ÓTRÚLEG uppákoma átti sér stað á
Town Stadium-leikvanginum í bænum
Vrbovec í Króatíu í gær á síðustu æf-
ingu íslenska kvennalandsliðsins fyrir
leik liðsins gegn Króatíu í undan-
keppni heimsmeistaramótsins í fót-
bolta. Eftir að eftirlitsmaður UEFA
gerði athugasemdir við hæð grassins
á vellinum fór vallarstjórinn rakleiðis
út á völl á sláttuvélinni og hóf að slá
völlinn á miðri æfingu íslenska lands-
liðsins og var sláttuvélinni ekið örfá-
um metrum frá leikmönnum Íslands
sem voru með hugann við æfingu liðs-
ins.
Vallarstjórinn hafði áður gert at-
hugasemdir við ákvörðun eftirlits-
manns UEFA og taldi vallarstjórinn
ekki nauðsynlegt að slá grasið fyrir
kvennaknattspyrnuleik, þar sem það
gæti reynst þeim of erfitt að hemja
boltann á snöggslegnum vellinum.
„Aldrei lent í öðru eins“
Klara Bjartmarz, starfsmaður
Knattspyrnusambands Íslands og að-
alfararstjóri landsliðsins, tók í taum-
ana og staðsetti sig fyrir framan
sláttuvél vallarstjórans til þess að
stöðva uppátæki hans.
Klara og króatíski vallarstjórinn
hnakkrifust í stutta stund og gerði
vallarstjórinn tilraun til þess að aka á
Klöru þar sem hún stóð fyrir framan
sláttuvélina. Klara gaf sig ekki þrátt
fyrir gríðarleg mótmæli frá króatíska
vallarstjóranum.
„Ég get fullyrt að við höfum aldrei
lent í því að vera trufluð með þessum
hætti á síðustu æfingu fyrir leik. Það
var ekki aðeins vallarstjórinn sem
truflaði liðið. Það var fullt af fólki að
skokka í kringum völlinn. Þetta var
ótrúleg uppákoma, en sem betur fer
koma svona atvik sjaldan upp í okkar
ferðum,“ sagði Klara við Morg-
unblaðið í gær.
20 ár aftur í tímann
„Mér finnst verst að vita til þess að
þetta viðhorf til kvennaknattspyrnu er
enn til staðar. Vallarstjórinn fullyrti
við eftirlitsmanna UEFA að ekki væri
þörf á því að slá grasið fyrir kvenna-
knattspyrnuleik – þar sem leikurinn
væri svo hægur. Mér brá bara þegar
maðurinn sagði þetta, því ég hélt að
þessir tímar væru liðnir. Mér fannst
ég vera komin 20 ár til baka. Eftir á að
hyggja þá skil ég betur þá stöðu sem
kollegar mínir eru að glíma við í þess-
um löndum þar sem kvennaknatt-
spyrnan nýtur ekki virðingar. Ef þeir
koma svona fram við okkur þá koma
þeir líklega svona fram við eigin leik-
menn,“ sagði Klara og bætti því við að
KSÍ hefði nú þegar sent formlega
kvörtun til framkvæmdastjóra Knatt-
spyrnusambands Króatíu.
Ótrúleg uppákoma í Króatíu
Vallarstjórinn
hótaði að keyra
yfir starfsmann
KSÍ á sláttuvél
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Ekki lengra Klara Bjartmarz, starfsmaður Knattspyrnusambands Íslands, stillti sér upp fyrir framan sláttuvélina á
Town Stadium í gær þegar króatíski vallarstjórinn hóf að slá keppnisvöllinn á miðri æfingu íslenska liðsins.
Íslenska kvennalandsliðið í fót-
bolta leikur gegn Króatíu í dag
klukkan 13.30 í Vrbovec. Það er
15 þúsund manna bær, um 40
kílómetra norðaustur af höf-
uðborginni Zagreb þar sem ís-
lenska liðið hefur aðsetur á með-
an það dvelur í Króatíu.
Leikurinn fer fram á heimavelli
NK Vrbovec sem spilar í 3. deild
karla.
Leikurinn í dag er liður í
undankeppni heimsmeist-
aramótsins, rétt eins og við-
ureignin við Serba á laugardag-
inn þar sem Ísland vann, 2:0,
með tveimur mörkum Hólmfríðar
Magnúsdóttur. Ísland hefur unnið
fjóra af fimm leikjum sínum í
keppninni til þessa, 5:0 og 2:0
gegn Serbíu, 12:0 gegn Eistlandi
og 1:0 gegn Norður-Írlandi. Liðið
tapaði hinsvegar 0:2 í Frakklandi
en Frakkar hafa unnið alla fimm
leiki sína.
Frakkland og Ísland heyja ein-
vígi um sigur í riðlinum sem gef-
ur rétt til að leika í umspili um
sæti á HM.
Króatar eru neðstir í riðlinum
en lið þeirra fékk sitt eina stig
til þessa með jafntefli, 1:1, við
Serba. Það tapaði 0:7 fyrir Frakk-
landi, 0:1 fyrir Norður-Írlandi og
mjög óvænt 0:3 fyrir Eistlandi á
heimavelli á laugardaginn.
Leikurinn verður í beinni
textalýsingu á mbl.is.
Leikið við Króatíu kl. 13.30 í dag