Morgunblaðið - 31.03.2010, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 31.03.2010, Qupperneq 11
Númer eitt Fyrsta kisa safnsins, samúðargjöfin franska. sóttkví þó þeir séu fluttir á milli landa og ekki þarf að bólusetja þá eða gefa þeim að éta. En ég reyni að pússa af þeim rykið fyrir jólin.“ Vinir færa þeim ketti í safnið Örlygur segir að hann hafi í byrj- un haldið skrá yfir kisurnar í safn- inu en nú sé hann hættur því. Þó veit hann að þær eru orðnar um 130. Og þeim fjölgar stöðugt. Engar tvær kisur eru eins af þessum ríflega hundrað kisum, þær eru úr ólíkum efniviði og koma frá hinum ýmsu heimshlutum. „Flestar eru þær frá Frakklandi og Þýskalandi en við hjónin höfum haft augun opin fyrir kisum til að bæta í safnið á ferðum okkar um heiminn. Nokkrar kisur keypti ég í Strassburg þegar ég hélt þar til um tíma, meðal annars fann ég eina þar frá Litháen. Vinir og kunningjar hafa líka verið mjög duglegir við að færa okkur ketti í safnið.“ Þegar kisurnar eru skoðaðar kennir ýmissa grasa. Ein er að veiða og hún kemur frá Filipps- eyjum, önnur er úr grænum jað- esteini og hana keypti Örlygur í Kína. Tvær koma alla leið frá Japan og ein trékisan er frá ítölsku eyj- unni Sardiníu. En sú stærsta í safn- inu kemur frá Mexíkó. Einn kött- urinn er næla úr málmi sem dóttir Örlygs á, nokkrar kisurnar eru mál- aðar á stein og svo er ein stór- merkileg sem er máluð á pínulítið fuglsegg. Annað listaverk er lítil ka- rafla frá Kína, en á hana inn- anverða er máluð undurfögur katta- mynd. Tveir konunglegir kettir tilheyra safninu, báðir frá Bret- landi, annar með kórónu en hinn er í drottningarlíki. „Þetta er sjálf Bretadrottning, ég keypti hana í Englandi,“ segir Örlygur og dregur fram annan kött úr Bretaveldi, sá er frá Edinborg og er kúlulaga og í honum má geyma leyndarmál. Sumir kattanna eru agnarsmáir, ýmist úr gleri eða málmum, aðrir útsaumaðir í Brussel, einn er ítalsk- ur bjölluköttur og annar skreyttur skeljum frá Nýja-Sjálandi. Svona mætti lengi telja. Nammikisa fyrir nemendur sem hrósað er eða skammaðir Örlygur heldur í lófa sínum á smárri fingrabrúðu af kisu í tré- kassa en hún er gjöf frá vinkonu hans sem býr í Suður Frakklandi. „Hún er prestsfrú og prjónaði þetta handa mér og sendi mér. Þetta er mikið listaverk. Þau presthjónin hafa líka gefið mér aðrar kisur, meðal annars gula kisu sem er servéttuhringur.“ Örlygur á einnig í fórum sínum þrjá nammiketti, kisur sem eru sæl- gætisbox. „Ég hef nammi í þessum köttum, en annan þeirra fékk ég fyrir löngu síðan og ég hef notað hann lengi á skrifstofunni minni í skólanum, stundum til að bjóða nemendum nammi eftir að ég hafði kannski skammað þá eða hrósað, en einnig til að sýna starfsfólkinu smá alúð.“ Hinir nammikettirnir eru frá Kasmírhéraði á Indlandi og fékk ég þá í gjöf nú í janúar frá Jóni Özuri samkennara og Indíafara.“ Örlygur segir að aðeins sé farið að róast í söfnuninni, hann hafi ekki verið eins duglegur undanfarið að viða að sér köttum og í byrjun. „Mér hefur ekki verið strítt á þessu uppátæki en það er náttúrulega bara fáránlegt að safna þessum köttum.“ segir hann og hlær. Egg Sem kisa hefur verið máluð á.Kisulóra Agnarsmá þrílit læða í lófa. Daglegt líf 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2010 Síðustu dagar sýningar Minjasafnins á Akureyri „Allir krakkar, allir krakk- ar... líf og leikir barna“ er núna um páskana. Á henni gefst gestum safn- ins kostur á því að dusta rykið af gömlum minningum og deila upplifun æskuáranna með afkomendum sín- um. Sýningin, sem tekur á völdum þátt- um í lífi barna, byggist á munum, ljósmyndum og minningabrotum. Saman skapa þessir þættir skemmti- legan ramma sem hefur frá opnun dregið upp mismunandi myndir í huga þeirra gesta sem komið hafa og ýtt undir samtöl kynslóða á milli. Stór sólskinsdagur í lífi ak- ureyrskra barna er öskudagurinn. Ör- sýningin „Allir hlæja á öskudaginn“ hefur því verið tvinnuð saman við fyrrnefnda sýningu. Þar má sjá heimagerða öskudagsbúninga sem ýmist hafa verið lánaðir á sýninguna eða eru úr fórum safnsins. Þarna má sjá öskupoka frá því snemma á síð- ustu öld, tunnukóngsmerki og ýmsa gripi sem notaðir voru í öskudagslið- unum. „Allir krakkar, allir krakkar... líf og leikir barna“ var opnuð síðasta sum- ar og hefur notið mikilla vinsælda. Var sýningartíminn því framlengdur fram yfir páska. Minjasafnið á Akureyri er opið á skírdag, föstudaginn langa, laug- ardaginn fyrir páska, páskadag og annan í páskum frá kl. 14-17. Safnið er í Aðalstræti 58 og heimasíða þess er: www.akmus.is. Sýningarlok Bangsabíll Til sýnis á Minjasafninu. Sýning um líf og leiki barna á Minjasafninu Allt fyrir baðherbergið Bæjarlind 6, Kópavogi, sími 517 6067. Opið mán. - fös. 10 -18, laugard. 11-16. DÆMI: Krókur kr. 895 Ruslafata kr. 1.495 WC bursti kr. 895 Handklæðaslá kr. 2.645 WC rúlluhaldari kr. 1.795 Upphengt WC og seta kr. 14.800 Snyrtihandklæði 30x50 kr. 295 Handklæði 50x100cm kr. 795 VEMAR st. handlaugartæki kr. 4.890 Sápu og tannburstaglas kr. 1.050 Innrétting 60cm, handlaug og spegill kr. 38.900 68.455Samtals alltá mynd kr. Endurútgefin hefur verið og endurbætt bókin Íslenskt vætta- tal eftir Árna Björnsson. Ritið hefur verið ófá- anlegt um árabil en birtist nú í nýjum búningi, ríkulega aukið og endurbætt. Íslenskt vættatal segir frá íbúum huliðsheima sem birst hafa alþýðu manna hér á landi í aldanna rás og allt fram á þennan dag. Hér má finna upplýsingar um álfa og huldufólk, tröll, dverga, kynjadýr, loftanda, jóla- sveina, fornmenn, landvætti, goðver- ur og drauga. Þekkir þú Ullartásu, Bjálfans barn- ið, jólasveininn Redda, Hafnarskottu, drauginn Flóalalla, álfadrottninguna Bóthildi, kvendrauginn Hrúgu, Urð- arbola, Úríði eða Villa gamla úr Esj- unni? Í bókinni eru nafngreindar helstu hollvættir og meinvættir í ís- lenskum sagnaarfi. Þeim er raðað í starfrófsröð og getið heimkynna, uppruna og helstu afreka þeirra. Vís- að er í þjóðsagnasöfn og marg- víslegar heimildir til frekari fróðleiks um verunar og greinargóð kort benda á helstu dvalarstaði þeirra. Bókin hentar vel öllum sem vilja kynnast landinu og vættunum sem það geym- ir, hvort sem þeir leggja land undir fót eða láta hugann reika. Bókin Íslenskt vættatal Ljósmæðrafélag Íslands heldur úti vefsíðunni www.ljosmodir.is. Síðan er fróðleiksbrunnur fyrir konur á með- göngunni og um fyrstu vikurnar eftir fæðingu barnsins. Vefsíðan er líka hugsuð sem upplýsingavefur fyrir feður og aðra sem áhuga hafa á því sem viðkemur meðgöngu, fæðingu og sængurlegu. Á síðunni má finna ítarlegar upp- lýsingar um meðgönguna, meðal ann- ars hvað er að gerast hjá fóstrinu viku fyrir viku, hægt er að reikna út meðgöngulengd, upplýsingar eru um þau líkamlegu einkenni sem geta komið fram á fyrstu vikum meðgöng- unnar, fjallað er um kynlíf og næringu á meðgöngu, líðan föður á með- göngutímanum, ótta á meðgöngu og mikið, mikið meira. Fæðingin fær sérkafla þar sem m.a. má finna upplýsingar um fæð- ingarstaði á Íslandi, fæðingarstig, keisaraskurði og vatnsfæðingar. Svo er annar kafli um sængurleguna þar sem allt sem henni fylgir fær umfjöll- un, svo sem brjóstagjöf og lík- amlegar breytingar móður eftir fæð- ingu barnsins. Í liðnum Spurt og svarað er hægt að senda inn spurn- ingar til ljósmæðra sem svara þeim eftir bestu getu. Mikið er af spurn- ingum og svörum á síðunni sem ættu að svara mörgu af því sem þungaðar konur og nýbakaðar mæður eru að velta fyrir sér. Ljosmodir.is er virkilega þörf og vel unnin vefsíða. Vefsíðan www.ljosmodir.is Morgunblaðið/Kristinn Nýfædd Margar spurningar kvikna þegar gengið er með barn. Allt um meðgöngu og fæðingu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.