Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1980, Síða 17

Skólablaðið - 01.03.1980, Síða 17
Ég ætla að ljúka þessari grein á nokkrum orðum um hið misskilda hugtak „þjóðleg byggingar- list". Þær meginkröfur, sem gerðar eru til húsa, eru í grófum dráttum þrenns konar: Þau verða að full nægja tæknilegum kröfum, vera svo vel og sterklega úr garði gerð að þau standist álag vatns og vinda; þau verða að fullnægja félagsleg- um og skipulagslegum kröfum svo að þau geti gegnt hlutverki sínu sem „nauðsynlegasta tæki mannkyns- ins"; loks verða þau að standast listrænar og fagurfræðilegar kröfur - og þeim þætti vilja menn oft gleyma. Eigi bygging að kallast góður_arkítektúr verður hún að standast allar þessar kröfur. - Það er hlutverk arkítekta að bræða alla þessa þætti saman og mynda úr þeim samfellda og rök- rétta heild sem við síðan köllum hús, Ef á hinn bóginn húsið fullnægir aðeins tæknilegu og skipu- lagslegu skilyrðunum, en ekki hinum fagurfræði- legu ( sem því miður er of algengt ) getur það ekki talist arkítektúr. Hið sama á við ef það stenzt aðeins fagurfræðilega og skipulagslega, en ekki tæknilega. Arkítektúr er kominn undir samtvinnun þessara og raunar ótal annarra þátta; vanti einn þeirra verður byggingin völt, hljómurinn veill, tónninn falskur. En hvað er þá „þjóðlegur" arkítektúr? Er hann hið sama og góður arkxtektúr - eða er hann kannski eitthvað annað? Það að byggingarlist sé nefnd „þjóðleg", felur í sér að hún skeri sig með einhverjum hætti úr byggingarlist ‘annarra þjóða, - hún sé ekki alþjóðleg. En í hverju gæti slík sérstaða verið fólgin? Þjóðir heims búa við ólík náttúruskilyrði, efnahags- og atvinnugrundvöllur þeirra er mis- jafn, menning þeirra frábrugðin. Allt þetta hefur sín áhrif á húsagerð. Víkjum nú að þeim þrem ólíku þáttum sem ég minntist á áðan. Það er augljóst að hús, sem er reist í regnskógi hitabeltisins, þarf að full- nægja öðrum tæknilegum og skipulagslegum skil- yrðum en hús sem gert er á íslandi. Fyrr á öldum byggðu Islendingar úr torfi og grjóti vegna þess að önnur efnisvo sem timbur og leir, voru ekki tiltæk og þjóðina skorti verkmenntun og fjármagn til þess að unnt væri að byggja úr steini. íslenzki torfbærinn var aðlögun að þessum erfiðu skilyrðum, hann var viðleitni fátkrar þjóðar til lausnar hinum tæknulegu og félagslegu þáttum byggingarlistar. Annað dæmi eru bárujárnsklæddu timburhúsin; þau voru aðlögun skandinavískrar timburbyggingarhefðar að íslenzku stað háttum, - íslenzk byggingarlist. En getur þá fagurfræðilegt eðli byggingar- listar verið af þjóðlegum rótum runnið? Þjóðir eiga sér ólíka menningu og ólíka listhefð, sprottna af rótum mislangrar þróunar. íslenzku torfhúsin stóðust og standast enn í dag þær fagurfræðilegu kröfur sem umhverfi þeirra, - náttúra landsins,- og þjóðin sjálf heimtuðú af þeim. Þau féllu einkar vel inn £ ísllenzkt lands- lag og spilltu hvergi jafnvægi þess. Listin að hlaða torfvegg var að sönnu fágað handverk kunn- áttumanna sem þróaðist og gekk í arf frá kynslóð til kynslóðar. Það, sem þó var athyglisverðast af öllu: - Fallegu vegghleðslurnar voru ekki ætlaðar til skrauts, heldur tæknileg nauðsyn, og ra Heilsugæzlustöð á Höfn í Hornafirði. Arkítekt: Jón Haraldsson. o

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.