Skólablaðið - 01.03.1980, Síða 24
„KERFIÐ HÉR ER AÐ MIKLU
LEYTI STAÐNAÐ99
OLAFUR GUÐMUNDSSON
ALDURSFORSETI
TEKINN TALI.
Nú eít þú líklega aldursforseti nemenda,
þennan vetur. Hvert er viöhorf þitt til nem-
enda og skólayfirvalda?
-Viðhorf mitt til nemenda og skólayfir-
valda er ákaflega pósitíft. Ég álít að þetta
sé gott fólk á báðum stöðum sem ekkert þarf
að setja út á. Auðvitað eru til hvítir hrafnar
í svartri hjörð, en þeir auka bara á litadýrð-
ina'-og fjölbreytileikann.
En hvað finnst þér um viðhorf kennara til
nemenda og félagslífsins í skólanum?
-Nú í sambandi við félagslífið og kennara-
na, þá þarf ekki að hafa um það mörg orð: þeir
gera nákvæmlega ekki neitt, það eru örfáir
sem koma á böllin og þá aðallega til að
fylgjast með að nemendur hagi sér skikkanlega.
Hins vegar má segja það að námið og félags-
lífið keppast oft á um hylli nemenda, eða öllu
heldur tíma og þá sérstaklega hjá þeim sem
eru "aktífir" í félagslífinu.
NÚ er það sem kalla má "félagslíf" vafa-
Xaust einn af stærstu þáttunum sem efla þann
þroska er einstaklingurinn öðlast á þessum ár-
um æfi sinnar, og þeir sem leggja einhverja
rækt við félagslífið í sínum skóla, sýna oft
áberandi meiri félagsþroska en annað fólk. En
oft fer þátttaka í félagslífi og góður árangur
í námi illa saman vegna þess tíma sem félags-
lífið tekur. Hvernig er best hægt að samræma
námið og félagslífið? Á að hygla embættis-
mönnum meira varðandi tímasókn eða hefur þú
einhverjar hugmyndir um úrbætur?
-Frí frá námi og úrlausnir varðandi tíma-
sókn hafa lítið að segja. Það myndi aðeins
o
þýða að alls kyns letingjar sæju sér greiða
leið að sleppa billega við skólasóknareinkunn-
ina. Það þarf að finna einhVerja aðra leið til
þess að samræma þetta tvennt, og í augnablik-
inu kem ég ekki auga á neina slíka leið, nema
þá að embættismenn hagræði og dreifi sinu
starfi betur, og auka breidd nemenda í starf-
inu, hvernig svo sem farið skal að því.
Hvað finnst þér að betur mætti fara í
sambandi við félagslífið? Finnst þér, e.t.v.
að mætti bæta þetta form sem er á því, þ.e.
Skólafélagið og Framtíðin?
-Félagslífið hérna gæti verið mjög blóm-
legt þrátt fyrir að við búum við slæman húsa-
kost, það eru alvarleg merki stöönunar, þegar
farið er að afsaka allt með því að húsa-
kosturinn sé of slæmur. Vissulega er ekki hægt
að halda eins stóra fundi og við viljum og
vinnuaðstaða til að undirbúa félagslífið er
ákaflega bágborin, en aðalvandamálið er það
að nemendur virðast ekki vera áhugasamir um
félagslífið, það má kannski segja að ca.lS%
nemenda séu virkir og álíka stór hópur svona
fylgist með, sem sagt meirihluti nemenda veit
sama sem ekki neitt um neitt nema böllin, sem
ég tel ekki til félagsstarfsins nema að óveru-
legu leyti.-Og svo finnst mér að mætti virkja
3. bekkinga betur. Þeir koma hér í skólann að
hausti, vitandi nákvæmlega ekkert hvað er að
gerast og um hvað félagslífið snýst. Eldri
bekkingar líta óþarflega mikið niður á þá og
treysta þeim varla fyrir nokkrum hlut og af-
leiðingin er sú að þeir einangrast.
Finnst þér þá að mætti efla meira kynning