Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.03.1980, Side 33

Skólablaðið - 01.03.1980, Side 33
I | irðfíflið dansaði á borðinu sem stóð fyrir framan konunginn. Hirðfíflið var dvergvaxið, rauð- hært og með kryppu á bakinu. Konungurinn $ar aftur á móti hár og grannur, dökkhærður og í alla staði mátti sjá á honum að hann gegndi ábyrgðarmiklu starfi. Hirðfiflið hafði nú verið í umsjá konungs í þrjú löng ár og hafði aldrei fengið umbun starfa síns. Hirðfíflið hataði konunginn eins mikið og mennirnir hata hvem annan en óttaðist hann jafn- framt því konungurinn var voldugur og gat með einni handahreyfingu látið taka hirðfíflið af lífi en hírðfíflið óttaðist dauða sinn næst konunginum. Konungurinn horfði á hirðfíflið dansa og hugsaði um óþægindi þessara veru í lífshlaupinu. Konungurinn vissi einnig að dóttir sín fann til með þessum aumingja og því hafði konungurinn veigrað sér við að leysa hirðfíflið undan byrði sinni. Honum fannst umhyggja dóttur sinnar fyrir hinni ómennsku veru vera orðin of mikil og jaðra við ást vegna samúðar hennar með fíflinu. Dóttir konungsins hafði alltaf líkað vel við og kennt í brjósti um hirðfíflið en nú þegar hún þekkti hann betur en nokkur önnur manneskja dáði hún hann vegna baráttu hans við lífið og hve vel hann tók á móti öllu mótlæti. Hirðfiflið fann vaxandi andúð konungs á sér vegna dóttur hans. Hann gerði sér grein fyrir því að þeir myndu berjast um hana þó ekki mep vopnum heldur með sálarstyrk einum saman. Hirðfiflið vissi einnig að ef hann mundi tapa þessari bar- áttu mundi hann ekki heyja fleiri og þyrfti ekki að kemba hærurnar, þökkk væri konungi. Konungur vissi hvað hirðfíflið hugsaði og þeir gerðu sér báðir fullljóst að tíminn hafði runnið upp. Baráttan var hafin og úrslit hennar voru eins óviss og hægt var. Hirðfíflið dansaði hraðar og hraðar og hrað- ar, yfirburðir hans voru á sviði danslistarinnar. Ef honum yrði hrósað hefði hann unnið. Ef ekki yrði hann líflátinn. Hirðin tók að veita hirðfífl- inii athygli og konungur hóf sína baráttu gegn skyndilegum áhuga hirðarinnar á dansi hirðfíflsins Hann barðist ekki riddaralega heldur notaði hann ósanngjörn fólskubrögð til að klekkja á hirðfífl- inu. Konungurinn gaf hirðinni skipun um að ganga til herbergja sinna. Æðasláttur hirðfíflsins dundi fyrir eyrum hans og heyrði hann því ekki er hirðin bað konung um að hifcðfiflinu að dansa áfram því hirðfíflið hefði aldrei dansað svo vel áður. Hirðfíflið hafði unnið baráttuna og þarmeð líf sitt og vin- áttu dóttur konungs. En hirðfíflið heyrði ekki stakt orð af því sem sagt var. Hann vissi þvi ekki þegar konungur bauð hirðinni að sitja sem fastast og fylgjast með dansinum. Hann dansaði því áfram sífellt hraðar og hraðar þar til hann féll niður af borðinu sem notað hafði verið undir dans hans. öll hirðin horfði á dvergvaxna líkamann sem oltið hafði niður á gólfið. Loks hljóp dóttir kon- úngsins að þessu skrípi og féll á knén við hlið hans. Konungurinn var illur vegna ósigurs síns en hafði þó ekki óskað þess að bætt yrði við byrði verunnar sem lá á gólfinu því næg var hún fyrir. Dóttir konungsins stóð upp og horfði yfir hirðina sem stóð á öndinni eftir að heyra hvort ekki væri allt í lagi með dansarann. "Hann er dáinn". Rann- sókn leiddi í ljós að hjarta litlú verunnar hafði ekki þolað álagið og gefist upp. Hann vann stríðið en tapaði orrustunni vegna hjartagalla sem hann hlaut í vöggugjöf. Miriam Ztatim. smflSRSR : DÓNS- MESSU- NfETUR- DRBUM- URÍNN.

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.