Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.02.1990, Page 35

Skólablaðið - 01.02.1990, Page 35
ur plánetunni, sem er yfirleitt ekki nákvæmlega á sól- braut. Breiddarskekkjan er misjöfn eftir plánetum. Sumar plánetur fara allt að átta gráður út fyrir sól- braut en mest verður skekkjan hjá plútó, þ.e. heilar sautján gráður. II. Jarðarmiðja eða staðarmiðja. Ómögulegt er að ákvarða tíma eða rúm nema í afstöðu við einhvern gefinn punkt. í stjörnuspeki er aðallega rætt um þrjá slíka punkta, sólarmiðju (heliocentrism), jarðarmiðju (geoc- entrism) og staðarmiðju (topocentrism). Venjulega er miðað við jarðarmiðju þegar staðsetning plánetna er reiknuð. Sumir vilja þó meina að staðar- miðja, þ.e.a.s. nákvæm staðsetning á yfirborði jarðar, gefi réttari upplýsingar. Þetta skiptir þó ekki megin- máli þar sem flestar plánetur eru í of mikilli fjarlægð frá jörðu til þess að mismunurinn milli jarðarmiðju og staðarmiðju skipti máli. Tunglið er hins vegar tiltölu- lega skammt frá jörðu. Þegar tunglið nálgast sjóndeild- arhringinn stefnir skekkjan á u.þ.b. eina gráðu (sjá mynd 7). Þessi gráða getur skipt töluverðu máli hvað varðar afstöðu tunglsins við aðrar plánetur, sérstaklega ef um margfaldað kort er að ræða en þá stækkar skekkj- an í hlutfalli við þá tölu sem margfaldað er með. Þetta vandamál kemur einnig fram í skiptingu dægurhrings- ins. Til eru fjölmörg húsakerfi sem ýmist byggjast á jarðarmiðju, staðarmiðju eða jafnvel einhverjum öðr- um viðmiðunarpunkti. IV. Upphafspunktur. Annað vandamál sem varðar viðmið- un er spurningin um upphafspunkt, sem er samkvæmt hefð annars vegar 0°hrútur á sólbraut og hins vegar rísanda-ásinn á dægurhringnum. í náttúrunni hefur ekkrt upphaf eða endi, a.m.k. ekki enn. Hins vegar er nauðsynlegt að hafa eitthvað til viðmiðunar, t.d. 1. jan- úar sem er byrjun ársins, miðnætti sem upphafspunkt sólarhringsins o.s.frv. 0° hrútur er vorjafndægrar- punkturinn, skurðpunktur miðbaugs og sólbrautar. Rísandi er skurðpunktur sólbrautar og sjóndeildar- hringsins í austri. Eins og sjá má eru þetta mjög heppi- legir viðmiðunarpunktar. Þó koma margir aðrir til greina, t.d. haustjafndægrapunkturinn á sólbraut og miðhiminn á dægurhring. En alltaf er best að hafa staðl- aða upphafspunkta og liggur því þá beinast við að nota hina hefðbundnu. En þetta er ekki vandamálið. (sjá mynd 8) Aðalvandamálið er að sumir stjörnuspekingar hneigj- ast til að byggja fræðilegan grunvöll á upphafspunkt- um. Það er mjög leiðinleg villa og bendir til algers hugs- unarleysis. Tökum margfölduð stjörnukort sem dæmi: Þegar talað er um margfaldað kort þá er átt við stjörnu- kort þar sem aðeins pláneturnar hafa verið margfaldað- ar með einhverri heilli pósitífri tölu út frá 0° hrút. Sól- braut helst kyrr. Eins, og jafnvel betra, er að hugsa sér að deilt sé í sólbraut með tölunni og fáum við þá ákveð- ið marga jafnstóra parta. Athugum að plánetur haldast kyrrar. Partarnir eru lagðir hver ofan á annan þannig að þeir virðast vera einn partur. Uphafspunktur hvers parts leggst ofan á 0° hrút. Það sameiginlega með öllum þeim punktum sem falla ofan í hver annan er talan sem var deilt með. Ef tvær plánetur hafa sameiginlegan punkt þá lenda þær í samstöðu (0° afstaða) í viðkom- andi margfölduðu korti. Nú er teygt á pörtunum í nei- kvæða hringlaga stefnu þar til endapunktarnir ná sam- an og þá höfum við hið „margfaldaða kort“. Þessu korti er síðan aftur skipt í tólf stjörnumerki. Sumum stjörnu- spekingum hættir til að túlka plánetur í slíkum kortum eftir staðsetningu. Þeir ímynda sér að stjörnukort í margfölduðu korti sé hið sama og hið eiginlega stjör- numerki í grunnkortinu. Þrjátíu gráðu svæði í margföl- duðu korti er samansafn af fáeinum gráðum sem fmna má með jöfnu millibili í grunnkortinu. Hrútsmerkið í H3 er til dæmis samansett af 0-10° hrúti, 0-10° ljóni og 0-10° bogmanni á grunnkorti, þ.e.a.s. fyrstu tíu gráður hvers eldmerkis (stjörnumerki eru á hefðbundin hátt flokkuð í fjögur frumöfl: eld, jörð, loft og vatn). Þetta má sýna á stærðfræðilegu formi með mengi: Hrúts- merkið (0-30°) í H3 = {xeR|0+p 12 0°<x< 10+p 12 0°}. Þetta er þó breytilegt eftir upphafspunkti. Setjum við t.d. upp- hafspunkt í 0° krabba þá væri hrútsmerkið í H3 sam- setning af fyrstu tíu gráðum hvers loftmerkis. Afstöður haldast hins vegar óbreyttar. Þær breytast í hlutfalli breytingu á plánetum og eru því óháðar upphafspunkti. Hér höfum við einungis fengist við H3. Með hærri tölu fjölgar bilunum og þau verða minni. Því verður æ erfið- ara að skilja sameiginlega merkingu þeirra. Eins og er höfum við engar reglur til að styðjast við en með þolin- mæði og markvissum rannsóknum eigum við örugglega eftir að öðlast meiri skilning. Að lokum munum við, með hjálp bylgjukenningarinnar, skilja breytinguna sem verður þegar pláneta fer frá einni gráðu til annarr- ar. V. Húsakerfi. Vandamál við skiptingu dægurhringsins eru of mörg til að fjallað verði um þau til hlítar í þessu greinarkorni og læt ég því upptalningu nægja. 1. Hvernig eigum við að skipta honum? a) Eftir sólbraut? (dæmi: Equal house, Porophyry.) b) Eftir tíma? (dæmi: Alcabitus, Placidus, Koch.) c) Eftir rúmi? (dæmi: Campanus, Regimontanus.) 2. Hversu mörg hús? 3. Eru ásarnir AC-DC og MC-IC húsaskil? 4.Stærð húsa: a) Mega hús verða óendanlega lítil? (Þetta kemur fyrir hjá sumum húsakerfum í norðlægum breiddum.) b) Mega hús ná yfir fleiri en eitt stjörnumerki? Enn hefur ekki fundist það húsakerfi sem leysir öll þessi vandamál. Það er því ekki skrýtið að sumir stjörnuspeking- ar taki ekki mark á húsum. Svo eru sumir sem segja að ekkrt eitt húsakerfi sé rétt og mismunandi húsakerfi henti mismunandi stöðum og hlutverkum. Sem sæmi má nefna hið nýlega staðarmiðjukerfi (topocentric house system), sem virðist henta betur til spádóma en önnur. (sjá mynd 9) Stjörnuspeki er á svipuðu reiki í dag og aðrar vísindagrein- ar voru á 19. öld. Á síðustu áratugum hefur hún orðið fyr- ir allmiklum breytingum. Ýmsar nýjar kenningar hafa bæst við hefðbundin heim hennar og leitt til nýrra túlkun- araðferða. Gallinn er aðeins sá að sumar þessar kenningar fela í sér mótsögn hver við aðra eða við hefðbundnar kenn- ingar. Allt of margir líta fram hjá þessari staðreynd, velja af handahófi hvað sem þeim hentar hverju sinni sama hversu mótsagnakennt það má virðast og sama hversu illa það samræmist þeirra eigin hugmyndum um alheiminn. Mun vísindalegra væri að taka fyrir hverja kenningu, prófa hana og pæla í henni þar til einhver rökrétt niðurstaða er fengin. Meðan við höfum engan grundvöll til að styðj- ast við verðum við einfaldlega að treysta á það sem vísinda- menn 19. aldar notuðu, almenna skynsemi. Með hjálp hennar getum við ef til vill komist að því sem upp á vant- ar til að gera stjörnuspeki að viðurkenndri vísindagrein. Páll Sigurðsson Heimildir: Jhon M. Addey, Harmonics in Astrology, L.N. Fowler, London, 1976. Michel Gauquelin.Written in the stars, Aquarian Press, Wellintonborough,1988. Reinhold Ebertin, The Combination of Stellar Influences, Ebertin-Verlag, Aalen, 1940. David Hamblin, Harmonic Charts, Aquarian Press, L.N. Fowler, London, 1977. Dona Marie Lorenz,Tools of Astrology: Houses, bls. 1-7, Eomega Grove Press, Topanga, California, 1973. Ef ég fæ ekki 10 á þessu prófí þá hef ég gert eitthvað vitlaust!

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.