SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Blaðsíða 8

SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Blaðsíða 8
8 5. júní 2011 Lyfjanotkun og bellibrögð hafa einkennt hjólreiðaíþróttina um nokkurt skeið. Aðrar íþrótta- greinar hafa ekki farið varhluta af lyfjahneykslum, en hjólreið- arnar skera sig úr. Í þeirri grein var Lance Armstrong þó lengi sér á parti. Hann barðist hetjulega við krabbamein og sigraði í þokkabót oftar í Tour de France en nokkur annar. Allt í kringum hann hröpuðu stjörnurnar, en aldrei hefur hann fallið á lyfja- prófi – að minnsta kosti ekki svo sannað sé þótt nú hafi marg- víslegar ásakanir komið fram. Fyrrverandi félagi hans, Tyler Hamilton, gekk svo langt í sam- tali við fréttaskýringaþáttinn 60 mínútur á sjónvarpsstöðinni CBS að segja að hann hefði séð Arms- trong taka ýmis lyf. „Tour de Fraud“ stóð í fyr- irsögn í New York Daily News þar sem fjallað var um að nú væri þessi fyrirmynd sökuð um að hafa brotið allar reglur, sem til væru um drengilega keppni. Þrír menn, sem voru með Armstrong í liði og áttu þátt í sigrum hans hafa nú játað að hafa haft rangt við og spyr blaðið hvernig Arms- trong ætli að halda verðlaunum sínum, jafnvel þótt hann hafi eins og hann segi aldrei svindlað. Fyrirmynd sökuð um að hafa brotið allar reglur Tyler Hamilton (t.v.) og Lance Armstrong þjóta áfram í hjólreiðakeppni árið 2000. Hamilton segir nú að Armstrong hafi kerfisbundið svindlað. Reuters U m árabil hafa menn velt því fyrir sér hvernig hjólreiðamaðurinn Lance Armstrong hafi farið að því að ná slík- um yfirburðum í íþrótt sinni. Sú um- ræða hefur tekið á sig nýja mynd eftir að fyrrver- andi liðsfélagi hans, Tyler Hamilton, kom fram í sjónvarpsþættinum 60 mínútum og sagði að greint hefði verið að hann hefði tekið lyf til að bæta frammistöðu sína fyrir hjólreiðakeppnina í Sviss árið 2001, en niðurstöðunni verið sópað undir teppið og Alþjóðahjólreiðasambandið, ICU, fengið ávísanir, fyrst upp á 25 þúsund dollara og síðar 100 þúsund dollara, fyrir það. ICU neitar því að eitt- hvert endurgjald hafi verið fyrir framlögin. Hamilton sagði enn fremur að Armstrong hefði svindlað kerfisbundið þegar hann vann sjö Tour de France titla í röð á árunum 1999 til 2005. Að hans sögn útvegaði Armstrong félögum sínum ólögleg lyf, sýndi þeim hvernig átti að nota þau, notaði óskráða farsíma og dulnefnið Edgar Allan Poe til að panta lyfið EPO (eryþropoietín) og lét fljúga með Hamilton til Spánar þar sem honum var tekið blóð, sem honum var síðar gefið aftur til að auka súrefn- isupptöku. Fjölmiðlar hafa rifjað upp að hingað til hafi atvik í Tour de France í Píreneafjöllum fyrir átta árum ver- ið helsta tengingin milli hjólreiðamannanna tveggja. Þá féll Armstrong vegna þess að plastpoki utangátta áhorfanda þvældist í teinunum á hjólinu hans. Þjóðverjinn Jan Ullrich og félagar hans virð- ast halda sínu striki, en þá kemur Hamilton upp að þeim og biður þá af myndum að dæma að hægja ferðina meðan Armstrong komi sér af stað, en það mun vera til siðs í mótinu að keppendur færi sér ekki óhöpp keppinauta sinna í nyt. Sumir ganga svo langt að segja að Hamilton hafi þarna gert Arms- trong kleift að vinna fimmta titilinn í röð. Ár er síðan hjólreiðamaðurinn Floyd Landis setti fram svipaðar ásakanir á hendur Armstrong um lyfjanotkun. Hann hélt því fram að Armstrong hefði borið ábyrgð á lyfjatöku heillar kynslóðar hjól- reiðamanna, sem skipað hefðu besta lið, sem komið hefði fram í íþróttinni. Bæði Landis og Hamilton eru fallnir af stalli. Landis var sviptur Tour de France titlinum, sem hann vann 2006. Hamilton er nú öðru sinni í banni og fyrir rúmri viku skilaði hann ólympíugullinu sínu frá 2004 eftir að hafa játað að hafa beitt blóðbragðinu. Að auki var áðurnefndum Ullrich meinað að taka þátt í Tour de France 2006 vegna gruns um lyfjatöku. Í Bandaríkjunum hefur staðið yfir rannsókn síðan í fyrrasumar á því hvort Armstrong hafi gerst sekur um svik og meinsæri þegar hann keppti fyrir lið bandaríska póstsins. Í fyrra báðu rannsakendurnir Hamilton að hjálpa sér við rannsóknina, en hann kveðst hafa neitað. Þá var honum stefnt og gefinn kostur á að segja sannleikann eða vera stefnt fyrir meinsæri. „Mér líður illa yfir að hafa þurft að koma hingað og gera þetta,“ sagði Hamilton. „En ég held að þegar upp er staðið […] muni það verða íþrótt- inni til góðs.“ Einnig sagði hann í viðtalinu í 60 mínútum: „Ja, það er fullt af öðrum svikahröppum og lygurum, sem hafa komist upp með það. Ekki bara Lance. Ég meina, með smáheppni hefði ég sloppið þrátt fyrir að vera svikahrappur og lygari.“ Armstrong hefur alltaf þvertekið fyrir að hafa haft rangt við og ítrekaði það eftir að viðtalið birtist við Hamilton. Íþróttahetja undir ámæli Lance Armstrong neitar ásök- unum um kerfisbundið svindl Lance Armstrong bíður á ráslínunni í hjólreiðakeppni í Kaliforníu í fyrra. Hann hætti keppni í hjólreiðum í febrúar. Reuters Tyler Hamilton fær kossa á kinnar eftir sigur í Tour de Romandie í Lausanne í Sviss árið 2004. Reuters Vikuspegill Karl Blöndal kbl@mbl.is Á að taka verðlaunatitla Lance Armstrong af honum sé hann sekur um lyfjanotkun? Þannig spyr Eu- gene Robinson í grein í Washington Post og kemst að þeirri niðurstöðu að það sé vonlaust verk og sóun á starfsorku að ætla að reyna að hafa hemil á lyfjanotkun atvinnumanna í íþróttum. Hafi Armstrong logið til um lyfjanotkun eigi hann að eiga það við samvisku sína, ekki lögin. Og hvað þótt hann sé sekur? Blað unga fólksins Fylgir Morgunblaðinu alla fimmtudaga Auglýsingasími569 1198

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.