SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Blaðsíða 38
38 5. júní 2011
Blake Lively
hefur vakið
athygli fyrir
fatastíl
sinn jafnt
og leik og
tekur sig
jafnan
vel út.
L
eikkonan Blake Lively hefur vakið mikla athygli síðustu
misseri, bæði fyrir leik sinn og líka flottan fatastíl. Hún
varð fræg fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Gossip
Girl þar sem hún leikur Serenu van der Woodsen en
þættirnir fjalla um líf vel settra ungmenna í New York-borg.
Lively er þó ekki sjálf frá stórborginni. Hún er Kaliforníu-
stúlka, fæddist 25. ágúst 1987, og er því 23 ára. Hún á einn
bróður og þrjú hálfsystkini og hafa þau öll, ásamt foreldrum
hennar, starfað í skemmtanaiðnaðinum. Hún fór með for-
eldrum sínum í leiklistartíma, sem þau kenndu í, því þau vildu
ekki skilja hana eftir hjá barnfóstru. Hún hefur sagt að það hafi
hjálpað henni í leiklistinni að hafa fylgst með kennslunni.
Falsaðar nektarmyndir í umferð
Hún komst í fréttirnar í vikunni út af nektarmyndum sem voru birtar
á netinu. Myndirnar virðast vera af Lively og sýna konu sem lítur út fyr-
ir að vera hún taka myndir af sjálfri sér með síma í spegli. Talsmaður leik-
konunnar segir að myndirnar séu „100% falsaðar“ og að Blake hafi „aldrei
tekið nektarmyndir af sjálfri sér. Blake mun lögsækja þá sem birtu þessar
myndir fyrst og aðra sem endurbirta þær.“
Þrátt fyrir að þetta sé stressvaldandi fyrir leikkonuna þýðir þetta allavega að
hún sé komin hátt upp í himinhvolf stjarnanna miðað við hversu mikla athygli fréttin
fékk. Hún er þó ekkert endilega hrædd við nektina því það hafa verið nektarsenur í
tveimur myndum sem hún hefur leikið í, The Town og The Private Lives of Pippa
Lee.
Lively hefur verið þekkt fyrir langa og ljósa lokka sína. Það vakti því mikla athygli
þegar hún litaði hárið á sér rautt. Það var þó ekki bara til gamans eða tilbreytingar
heldur fyrir hlutverk í myndinni Hick þar sem hún leikur á móti ungstirninu Chloe
Moretz og hinum gamalreynda Alec Baldwin. Leikkonan reynir að taka að sér fjöl-
breytileg hlutverk en í þessari mynd leikur hún konu frá suðurríkjunum sem er
eiturlyfjafíkill og móðir Luli McMullen, sem hin þrettán ára Moretz leikur.
Níu mánuðir á ári fara í tökur á Gossip Girl hjá Lively en hún leikur líka í kvik-
myndum og velur því þessa einu mynd sem hún hefur tíma til að leika í á ári vel.
Nýjasta mynd hennar er ofurhetjumyndin The Green Lantern, sem verður frumsýnd
á þjóðhátíðardegi Íslendinga í Bandaríkjunum en hér heima í byrjun ágúst. Þar leikur
hún Carol Ferris, aðalkvenhlutverkið, á móti Ryan Reynolds sem er Hal Jordan/
Green Lantern.
Leikkonan var lengi í ástarsambandi með samleikara sínum í Gossip Girl, Penn
Badgley, sem fer með hlutverk Dans Humphreys. Þau hættu nýlega saman eftir
þriggja ára samband. Sem stendur er hún tengd við annan leikara, Leonardo DiCaprio,
sem sjálfur hætti nýverið með kærustu sinni til nokkurra ára, ísraelsku fyrirsætunni
Bar Refaeli. Þau eyddu fríi saman í Suður-Frakklandi fyrir skemmstu þar sem pressan
fylgdist grannt með þeim þó þau létu ekki ná myndum af sér saman.
A
lmyrkvi á sólu var 30. júní 1954. Stjarnfræðingar reiknuðu
út að tungl gengi fyrir sólu um hádegi þennan dag og
hvergi sæist betur til þessa náttúrufyrirbæris en syðst á
landinu. Fjöldi fólks gerði sér því ferð austur í Vík í Mýrdal,
á Dyrhólaey og að Skógum undir Eyjafjöllum til að fylgjast með þess-
um einstæða atburði. Var Flugfélag Íslands með sérstaka ferð austur á
Skógasand en þangað var flogið reglulega á vegum félagsins á þessum
árum.
„Nú er kl. orðin rúmlega 12. Titrandi sólmyrkvarákir bylgjast yfir
landið og gefa umhverfinu einhvern dularfullan og annarlegan svip,“
sagði ritstjórinn Sigurður Bjarnason frá Vigur í frásögn sinni í Morg-
unblaðinu.
„Við erum að verða hálf loppin. … Svartur sandurinn, sem við
stöndum á verður þungbúnari á svipinn og skrúðgrænt landið upp af
honum missir smám saman lit sinn. Það skyggir smám saman meira.
Sólskífan er orðin örmjó. Útsýnið þrengist. Nú sést varla orðið tilFólk í Mýrdal fylgist með sólmyrkvanum gegnum svört spjöld og varð vitni að ótrúlegu náttúruundri.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Myndasafnið 1954
Kvöldroði á
miðjum degi
Blake Lively skaust upp á stjörnuhimininn sem
slúðurstúlkan Serena van der Woodsen. Hún
hefur líka vakið athygli fyrir flottan fatastíl og
er andlit Chanel.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Reuters
Káta Kali-
forníustúlkan
Frægð og furður