SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Page 15
5. júní 2011 15
Undanfarið ár eða svo hefur Eiður Smári annað veifið birst í nýju hlutverki – sem sparkskýrandi á Sky Sports-
sjónvarpsstöðinni í Bretlandi. Hefur innlegg hans almennt mælst vel fyrir og Eiður Smári staðfestir að Sky
sækist eftir áframhaldandi samstarfi við sig.
„Þetta kom frekar óvænt upp í fyrravor þegar ég var hjá Tottenham. Sky bað mig að koma og taka þátt í um-
ræðum og aðstoða við greiningu á leik og ég fann mig bara ágætlega í þessu. Alla vega hafa þeir beðið mig að
koma nokkrum sinnum síðan og vilja fá mig áfram næsta vetur.“
Eiður Smári er eini leikmaðurinn sem bæði hefur leikið undir stjórn José Mourinhos og Peps Guardiola og
segir Sky ekki síst hafa horft til þeirrar staðreyndar. „Síðan hef ég ýmist leikið með eða á móti flestum
stærstu stjörnunum í dag og hef því þokkalega yfirsýn og get jafnvel miðlað upplýsingum sem ekki liggja í
augum uppi.“
Þegar ég heimsótti Eið Smára til Barcelona fyrir rúmum fjórum árum spurði ég hann einmitt hvort hann
gæti hugsað sér að vinna við sjónvarp í framtíðinni. Þá starði kappinn á mig eins og ég væri strútur í
strápilsi.
Hann hlær þegar ég rifja þetta upp. „Ég hef ekki sóst eftir frama á þessum vett-
vangi en þetta er bara nokkuð gaman. Maður horfir öðruvísi á fótbolta frá þessu
sjónarhorni. Á endanum snýst þetta þó allt um að einhver nenni að hlusta á bullið
í mér. Einhvern tíma lýkur fótboltaferlinum og þá verður maður að finna sér eitt-
hvað að gera. Þetta er eitt af því sem kemur til greina. Það er hægt að hugsa sér
verri staði en Sky sem er risastór sjónvarpskeðja með margt fleira en fótbolta.“
Svo á jörðu sem á himni
Evrópumót 21 árs-landsliða hefst í Dan-
mörku um næstu helgi. Eiður Smári ætlar
eins og aðrir landsmenn að fylgjast með
mótinu en á vont með að átta sig á
möguleikum íslenska liðsins. „Ég hef
enga tilfinningu fyrir þessu móti. Þá á ég
við að ég veit hvað íslenska liðið getur
en hef ekki hugmynd um hvernig lið
hinna þjóðanna eru. Það hlýtur þó að
hjálpa okkur að sterkir menn hafa verið
að draga sig út úr öðrum liðum, eins og
hjá Englendingum og Dönum.“
Hann segir það þó ákveðna vísbend-
ingu að íslenska liðið hafi komist verð-
skuldað í lokakeppnina, meðal annars
með því að sigra ríkjandi Evrópumeist-
ara, Þjóðverja. „Þetta eru mjög hæfi-
leikaríkir strákar og ég óska þeim góðs
gengis í Danmörku.“
Mikla athygli vakti þegar KSÍ ákvað á
ögurstund að láta 21 árs-liðið ganga fyrir
a-liðinu síðastliðið haust. Bros færist yfir
andlit Eiðs Smára þegar þetta berst í tal.
„Ég hef mjög sterka skoðun á því máli
en þetta er liðin tíð og tilgangslaust að
velta sér upp úr þessu núna. Þeir tóku
þessa ákvörðun sem þurfti og ég er feg-
inn að hafa hvergi komið þar nærri.“
Óskar strákunum góðs gengis
mál að ég hafði misst af undirbúningstímabilinu. Það átti að
vera lítið vandamál og mér sagt að ég fengi tíma til að vinna
upp það sem vantaði upp á formið. „Síðan ferð þú bara að
spila og verður frábær,“ sögðu menn. Þannig var þetta lagt
upp.“
– Það fór á annan veg?
„Heldur betur. Ég fékk engin tækifæri í byrjunarliðinu og
kom í síðasta skipti inn á um miðjan október.“
Gramdist þessi vitleysa
– Hver voru samskiptin við Tony Pulis knattspyrnustjóra
á þessum tímapunkti?
„Engin. Ég fann tiltölulega fljótlega að hann væri ekki að
fara að stilla mér upp í liðinu. Ég ákvað hins vegar að fara
ekki í neitt fjölmiðlastríð – hef raunar nánast aldrei gert það
– heldur svara þessu mótlæti frekar þegar þar að kæmi á
minn hátt. Ég neita því hins vegar ekki að mér gramdist
þessi vitleysa um að ég væri ekki í formi og þar fram eftir
götunum. Það var út í hött. Fólk sá mig ekki á vellinum og
eflaust hafa einhverjir trúað því að ég væri ekki í formi en
þegar frá leið held ég að flestir hafi áttað sig á því að eitthvað
annað bjó að baki. Þegar ég fór svo að spila með Fulham
urðu sumir hissa á því að sjá að ég var alls ekki í svo slæmu
formi.“
– Þú varst ekki fyrr kominn inn á í fyrsta leiknum, gegn
Chelsea, en þú renndir þér í allsvakalega tæklingu?
„Já, já,“ segir Eiður og hlær.
– Var Stoke eftir á að hyggja ekki rétta liðið fyrir þig?
„Eftir á að hyggja, já. Ég tók áhættu með því að fara þang-
að. Stoke hefur sinn leikstíl, baráttu, kýlingar, löng innköst
og allt þetta. Ég mat stöðuna hins vegar þannig að fyrst ég
fengi að spila mikið, eins og mér var lofað, gæti ég minnt
rækilega á mig í ensku úrvalsdeildinni. Tony Pulis sannfærði
mig líka um að ég væri maðurinn sem liðið vantaði, til að fá
boltann í fæturna og koma stungum á framherjana.“
– Hvernig er að vera kominn aftur í ensku úrvalsdeild-
ina?
„Frábært. Mér hefur alltaf liðið vel á Englandi.“
Erfitt að aðlagast öðru liði
– Þessi tvö ár síðan þú fórst frá Barcelona hafa ekki verið
neinn dans á rósum hjá þér!
„Það er alveg rétt. Partur af skýringunni er sá að hafandi
verið hjá liði eins og Barcelona, sem spilar á mjög sérstakan
hátt, eins og við höfum séð best undanfarið, getur verið erf-
itt að laga sig að leik annars liðs. Stuttu sendingarnar og þrí-
hyrningarnir, sem voru mínar ær og kýr hjá Barcelona,
tíðkast ekki alls staðar. Það á til dæmis við um Mónakó.“
– Var algjört kúltúrsjokk að koma þangað?
„Algjört. Ég get nefnt æfingarnar sem dæmi. Þær voru allt
öðruvísi og erfiðari en ég var vanur og fyrir vikið mætti ég
útkeyrður inn á völlinn. Það var bara þannig. Ég náði heldur
ekki að aðlagast umhverfinu utan vallar og fyrir vikið var
dvölin í Mónakó mjög erfið. Ég átti fljótlega samtal við þjálf-
arann, þar sem ég fann að við áttum ekki samleið.“
– Tottenham Hotspur bjargaði þér úr þeirri prísund. Þér
gekk vel þar!
„Já, það gekk mjög vel og mér leið frábærlega hjá Totten-
ham. Ég var að vísu inn og út úr liðinu en spilaði hlutverk í
svo til öllum leikjum, hvort sem það voru níutíu mínútur,
sjötíu eða fimmtán. Harry Redknapp gerði mér fljótlega
grein fyrir því að hann vildi halda mér og ég bjóst satt best
að segja ekki við öðru en að semja við Tottenham síðasta
sumar.“
– Hvað fór úrskeiðis?
„Ég veit það ekki ennþá. Ég átti tvö til þrjú samtöl við
Redknapp þar sem hann tilkynnti mér að fyrra bragði að
hann vildi klára málið, bæði áður og eftir að ég fór í sum-