SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Síða 21

SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Síða 21
5. júní 2011 21 Guðmundur segist afar hjátrúarfullur og tvö dæmi þess má sjá í stýrishúsinu á Vilhelm – uppi í brú, eins og sagt er á sjónum – þar sem við spjölluðum saman í ró og næði þegar skip- ið lá við bryggju á Akureyri. „Já, ég er mjög hjátrúarfullur,“ segir skip- stjórinn aðspurður. Svartir kvenmanns- hanskar liggja uppi á borði eins og einhver hafi gleymt þeim þar í gær og steinsnar frá stól skipstjórans er bundinn trefill. „Það var einhver kona sem gleymdi þessum hönskum hér og þeir eru búnir að vera í brúnni hjá okkur í ein átta ár. Ég veit ekki hver á þá en eitt er víst að þeir verða hér áfram. Við er- um búnir að festa þá!“ segir Guðmundur og neitar því ekki að hanskarnir hafi fært þeim gæfu. Og svo er það trefillinn: „Hingað kom kona um næstsíðustu áramót til þess að laga hjá okkur mataræðið, hún gleymdi treflinum sín- um og það gekk svo vel í fyrsta túrnum þar á eftir að ég sagði henni að hún fengi trefilinn aldrei aftur!“ Guðmundur með hanskana og trefilinn. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson „Mjög hjátrúarfullur“ una síðustu þrjá mánuði? Við höfum engan kolmunna- kvóta og höfum því ekkert getað veitt. Auðvitað hefð- um við getað nýtt aðrar veiðiheimildir fyrirtækisins en þá hefðum við bara tekið af öðrum sjómönnum. Tíminn hefur hins vegar verið notaður til að dytta að skipinu og við það hafa tugir iðnaðarmanna hér í bænum unn- ið. Það skiptir miklu máli fyrir bæjarfélagið.“ Guðmundur bendi á að kakan stækki ekki þó fleiri skeri af henni. „200.000 tonn verða áfram 200.000 tonn þótt þau dreifist í fleiri áttir en reksturinn verður miklu óhagkvæmari. Ef fyrirhugaðar breytingar verða að lögum er ég sannfærður um að útgerðin verði farin á hausinn eftir 15-20 ár og afleiðingarnar fyrir þjóðfélag- ið yrðu miklu verri en vegna hrunsins. Menn hljóta að sjá þetta. En fyrst um er að ræða kosningaloforð Sam- fylkingarinnar er allt í lagi að eyðileggja það sem búið er að byggja vel upp. Ég vona svo sannarlega að menn sjái að sér og samþykki ekki þessar tillögur.“ Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður Sjálfstæðis- flokksins og fyrrverandi skipstjórnarmaður, fór einn túr sem háseti á Vilhelm í fyrrasumar. Vert er að geta þess að Kristján, sem er fyrrverandi bæjarstjóri á Ak- ureyri, var á sínum tíma stjórnarformaður Samherja. „Ég held að strákarnir hafi gaman af því þegar einhver svona gestur kemur um borð,“ segir Guðmundur og ekki stendur á svari þegar spurt er hvort fleiri úr hópi þingmanna hefðu gott af því að feta í fótspor Kristjáns. „Já, ég er hræddur um það og þeir eru allir velkomn- ir, þó ekki allir í einu! Ég er sannfærður um að skoðanir margra myndu breytast ef þeir kæmu í einn túr.“ syni EA.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.