SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Side 29
5. júní 2011 29
reglustjóra, saksóknara og á lög-
regluna sjálfa og mig sem dóms-
málaráðherra höfðu áhrif á þá
sem voru að eftirlitsstörfum
annars staðar. Vildu þeir láta
draga sig inn í svona harðvítugar
umræður? Vildu þeir láta stilla
sér upp að vegg og fá ásakanir
um að vera útsendarar ákveð-
inna pólitískra afla? Nei, örugg-
lega ekki.
Í kringum Baugsmálið mynd-
aðist andrúmsloft sem smitaði
frá sér inn í aðrar stofnanir. Nú
sér enginn eftir þeim peningum
sem fara í rannsókn sérstaks sak-
sóknara og laun til þeirra sem
vinna að þeim málum. Á tíma
Baugsmálsins var illilega vegið að
þeim sem rannsökuðu málið. Þá
hneyksluðust menn á Alþingi
færi ég fram á aukafjárveitingu til
saksóknarans í Baugsmálinu. Það
voru ekki bara Baugsmenn sem
beittu sér, stjórnmálamenn og
fjölmiðlar létu líka að sér kveða.
Því miður hnignaði blaða-
mennsku mjög á Baugsárunum.
Hér eru enn starfandi fjölmiðla-
menn sem voru ekki síður virkir
þátttakendur í Baugsmálinu en
viðskiptamennirnir sem eru
núna úthrópaðir. Það er ástæða
til að velta því fyrir sér hvort
þessir fjölmiðlamenn eigi meira
erindi í almenna umræðu en við-
skiptamennirnir í fyrirtækja-
rekstur.“
Viltu nefna einhver nöfn?
„Menn geta farið í nafnskrá
bókarinnar.“
Ætlarðu að skrifa fleiri bæk-
ur?
„Mér finnst líklegt að ég geri
það, ég hef gaman af því.“
Um hvað?
„Ég hef ekki gert það upp við
mig. Ég þarf að skrifa um varnar-
og öryggismál, um þær breyt-
ingar sem urðu hér á landi þegar
kalda stríðinu lauk. Þá er efni í
bók að fara yfir landsdómsmálið
gegn Geir Haarde. Sá mála-
tilbúnaður er hneyksli að mínu
mati og víti til að varast. Loks
mætti skrifa bók um Icesave, svo
að eitthvað sé nefnt. Ég er ekki að
segja að ég muni skrifa bækur um
þessi mál, en ég held að samfélag
okkar þurfi á bókum að halda þar
sem ákveðin lykilefni eru tekin
saman án þess að menn setji sig
endilega í of fræðilegar stellingar.
Hraðinn er svo mikill að auðvelt
er að tapa áttum og þræðinum en
hann er oftast nauðsynlegur til
að leiða mál til skynsamlegra
lykta og skilja strauma og stefnur
í samfélaginu.“
Ætlarðu að skrifa ævisögu?
„Æ, ég veit ekki hvort taki því.
Mér finnst skemmtilegra að fjalla
um einstök málefni.“
Konsert í hlöðunni
Þótt þú sért ekki lengur í eldlínu
stjórnmálanna þá fylgistu vel
með stjórnmálum. Hvernig
finnst þér staða Sjálstæðis-
flokksins nú um stundir og er
Bjarni Benediktsson framtíðar-
leiðtogi flokksins?
„Bjarni er ungur maður sem á
framtíðina fyrir sér. Icesave-
málið þar sem hann lenti í and-
stöðu við meirihluta eigin flokks
og allar þær sviptingar sem hafa
orðið hér á undanförnum mán-
uðum hafa hins vegar valdið því
að hann gengur í gegnum eld-
raun innan flokksins. Ég hef fulla
trú á því að hann hafi vilja og
burði til þess. Hins vegar finnst
mér stjórnarandstaðan sem heild
ekki nógu sterk í gagnrýni á rík-
isstjórnina.“
Þú ert enginn aðdáandi ríkis-
stjórnarinnar.
„Það er skelfilegt að horfa upp
á þessa lélegu ríkisstjórn. Þegar
friður ríkir um mál reynir hún að
stofna til ófriðar um þau, hvort
sem það eru stjórnarhættir
landsins eða sjávarútvegurinn.
Fyrir utan þá vitleysu að reyna
að koma þjóðinni inn í Evrópu-
sambandið án þess að nokkur
vilji það, nema einstaka sérvitr-
ingar.
Árásir Samfylkingarinnar á
Sjálfstæðisflokkinn eru engu lagi
líkar. Það er mjög ósanngjarnt að
Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að
sitja undir ræðu eins og þeirri
sem Jóhanna Sigurðadóttir flutti
á flokksstjórnarþingi þar sem
hún réðst á Sjálfstæðisflokkinn
og talaði um lúðrablástur frjáls-
hyggjunnar eins og hann hefði
aðeins borist úr herbúðum
flokksins. Ég er nýbúinn að
skrifa þessa bók og veit vel
hvernig Samfylkingin reyndi
ítrekað að koma sér í mjúkinn
hjá Baugsmönnum. Samfylk-
ingin vildi sigla á milli Sjálfstæð-
isflokksins og útrásarvíkinganna
til að veita þeim vörn gegn óvin-
um þeirra. Samfylkingunni væri
nær að horfast í augu við eigin
fortíð í Baugsmálinu í stað þess
að beina spjótum að Sjálfstæð-
isflokknum.“
Hvernig finnst þér að vera
farinn af vettvangi stjórnmál-
anna?
„Ég hafði gert það svo rækilega
upp við mig að hætta að því
fylgdi engin eftirsjá. Ég hef líka
alveg nóg að gera.“
Þið hjónin eigið hús í Fljóts-
hlíð, eyðir þú miklum tíma í
sveitinni?
„Við Rut höfum komið okkur
vel fyrir þar, en mér finnst ég
aldrei vera þar nógu mikið. Núna
um helgina, þegar þetta viðtal
birtist, verður Rut með konsert í
hlöðunni hjá okkur. Það verður
gaman að sjá hvernig það
heppnast. Við höfum verið með
annan fótinn í Fljótshlíðinni í
tæp tíu ár og líkar mjög vel.
Þarna hef ég góða aðstöðu til að
skrifa. Svo dytta ég að girð-
ingum, slæ og raka, fer í réttir og
göngur og spjalla við nágranna
mína. Ég er stoltur af því að
meira en 70 prósent íbúa á Suð-
urlandi voru á móti Icesave, það
sýnir að þetta er skynsamt fólk.“Morgunblaðið/Ómar
ugsmálið í þröngum skilningi heldur áhrif Baugsmálsins og bylgjurnar sem það sendi út í allt samfélagið.“