SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Qupperneq 30

SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Qupperneq 30
30 5. júní 2011 V ið sem vorum svo heppin að njóta kennslu góðra og í sum- um tilvikum frábærra kennara á okkar skólagöngu vitum mæta vel hvað það skiptir miklu máli og að það getur ráðið úrslitum um farsæld ungs fólks í lífinu. Og flest höfum við ein- hverjar hugmyndir um hvaða afleiðingar það getur haft fyrir börn og unglinga að lenda í höndunum á kennurum, sem ann- að hvort kunna ekki sitt fag eða hafa ekki skapgerð til þess að sinna kennarastarfi. Þegar við horfum til Íslands framtíð- arinnar frá þessum sjónarhóli er auðvitað ljóst að fátt er mikilvægara en skólakerfi, sem stendur undir nafni, ekki bara frá grunnskólaaldri heldur frá leikskólaaldri. Við höfum ekki sinnt skólakerfi okkar nógu vel. Það hefur lengi verið svo, að starf kenn- arans hefur ekki notið þeirrar virðingar, sem því ber. Um skeið var það þannig, að þeir sem flosnuðu upp frá námi fóru í kennslu. Þá var líka haft orð á því, að þeir sem ekki ættu annarra kosta völ færu í kennslu. Þetta viðhorf, sem ég man eftir á mín- um háskólaárum, endurspeglaði algert skilningsleysi á mikilvægi kennarastarfs- ins og var til marks um það virðingarleysi, sem einkenndi sýn of margra á starf kennara. Gott skólahúsnæði skiptir máli en góðir kennarar skipta enn meira máli. Þjóðin fær ekki góða kennara til starfa í sína þágu nema tvennt komi til: Að starf kennarans njóti þeirrar virð- ingar í samfélaginu sem því ber. Og að það sé vel launað starf miðað við okkar aðstæður. Það lifir enginn á virð- ingunni einni saman. Í eina tíð var litið á barnaheimili sem gæzlustaði fyrir börn. Nú er réttilega litið á leikskóla sem fyrsta skólastig. Þess vegna má ekki gleyma því í þessum umræðum að við erum ekki bara að tala um grunn- skólakennara og framhaldsskólakennara heldur líka leikskólakennara. Í leikskól- unum er grunnurinn lagður. Einu sinni fylgdi ég einum dóttursyni mínum um skeið í aðlögun á leikskóla á Skáni í Sví- þjóð. Sú reynsla opnaði augu mín fyrir mikilvægi þess starfs, sem unnið er í leik- skólum. Nú er hvorki staður né stund til þess að ræða um kauphækkanir en það kemur að því að svo verður. Þá á samfélagið að hafa frumkvæði að því að hækka laun kennara og sýna með því að við skiljum hvað þeir gegna mikilvægu hlutverki í uppbyggingu þjóðfélags okkar á 21. öldinni. Skólakerfið kostar að sjálfsögðu mikið fé en það sama á áreiðanlega við um skólana eins og heilbrigðiskerfið að fólkið í land- inu vill að börn þess og barnabörn hafi að- gang að góðum skólum og njóti kennslu hæfra kennara. Þess vegna er kannski spurning, hvort bezt fari á því að fólkið sjálft taki ákvörðun um það í beinni kosningu í hverju sveitar- félagi hvað það vill leggja mikla peninga í skólana? Er hugsanlegt að sérstakt eyrna- merkt skólaútsvar verði sett á til þess að fjármagna rekstur skólanna og íbúar kaupstaða og kauptúna ákveði sjálfir í krafti hins beina lýðræðis hvað þeir eru tilbúnir til að verja miklum fjármunum í menntun barna sinna? Fjármögnun skólastarfs með þeim hætti gæti hugsanlega skapað samkeppni á milli sveitarfélaga um eftirsóttustu kennarana. Er það eitthvað vont? Það mundi hvetja þá til dáða að finna að þeir væru eftirsóttir og laða fleira hæfileikafólk að kenn- arastörfum. Það getur ráðið úrslitum um sálarheill einstaklings um alla hans framtíð, hvort hann kvíðir fyrir að fara í skólann á hverj- um morgni frá barnsaldri eða hvort hann hlakkar til. Auðvitað á það að vera þannig að börn hlakki til. Auðvitað á það ekki að vera þannig að þau kvíði fyrir og að sá kvíði verði þrúgandi kvöldið áður. Er hugað nægilega vel að þessu? Ég efast um það. Kannski vegna þess að það hefur ekki verið hugað nægilega vel að sálarheill kennaranna sjálfra. Líði þeim ekki vel í starfi líður börnum og unglingum ekki vel hjá þeim. Það er tímabært að efna til umræðna um þennan þátt í endurbyggingu Íslands frá hruni á öðrum forsendum en þeim að við vöknum bara upp, þegar kennaraverkfall er að skella á. Skólastarfið er ekki minni grundvallarþáttur í samfélagi okkar en viðunandi og sanngjarnt velferðarkerfi og heilbrigðisþjónusta, sem uppfyllir þær kröfur, sem við viljum að hún geri. Það segir mikla sögu um skólana og kennarana hvernig við, hvert og eitt, minnumst þeirra, þegar fram líða stundir. Ég mun minnast þeirra Skeggja Ásbjarn- arsonar og Ingólfs Guðbrandssonar úr Laugarnesskólanum um miðja síðustu öld með þakklæti til æviloka. Dr. Heinz Edel- steins með djúpri virðingu og Þórhalls Vil- mundarsonar, síðar prófessors, fyrir ógleymanlega og innblásna kennslu í sögu íslenzku þjóðarinnar í MR veturinn 1955. Og vona að sem flestir Íslendingar geti átt slíkar minningar um kennara sína. Eins furðulegt og það nú er hafa skóla- málin verið jaðarmál í þjóðfélags- umræðum á Íslandi með örfáum und- antekningum. Þegar við nú horfumst í augu við sjálf okkur eftir mestu ófarir í sögu íslenzka lýðveldisins og reynum að meta upp á nýtt hvað skiptir máli og hvað skiptir minna máli í uppbyggingu þessa fámenna eyjasamfélags á norðurhjara ver- aldar eigum við að skipa skólunum þann sess sem þeim ber. Þeir eru lykillinn að farsæld Íslendinga til framtíðar. Ísland framtíðarinnar V: Hefjum starf kennarans til nýrrar virðingar Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@mbl.is M ilton gamli Berle var gersamlega grunlaus um afleiðingar gjörða sinna þegar hann sendi ungan söngvara, sem var gestur í skemmtiþætti hans á NBC-sjónvarpsstöð- inni, gítarlausan inn á svið. „Leyfðu fólki að sjá þig, vinur,“ sagði Miltie frændi, eins og hann var gjarnan kallaður, og klappaði á öxlina á honum. Vinurinn var Elvis Presley, dagurinn 5. júní 1956. Elvis hafði áður komið fram í sjónvarpi en aldrei án gítarsins. Nú var hann skyndilega frjáls eins og fuglinn á sviðinu og lagið, Hound Dog var ekki fyrr byrjað, er Elvis hlóð í all- svakalega mjaðmahnykki, sem á einu kvöldi urðu vörumerki hans. Áhorfendur störðu fyrst á tilþrifin í forundran en síðan slepptu þeir sér, alltént stúlkurnar, og veinuðu einum rómi á goðið. Annað eins hafði aldrei sést í sjónvarpi. Um fjörutíu milljónir manna horfðu á þáttinn og dag- inn eftir gekk allt af göflunum. Símalínur voru rauðgló- andi og bréf streymdu inn. Ýmsir sjálfskipaðir siðapost- ular veittust að Elvis í fjölmiðlum og gagnrýnendur í sjónvarpi lögðu upp í krossferð gegn hinum unga söngvara, hann hlyti að vera handbendi hins illa og til þess falinn að hafa bráðskemmandi áhrif á bandaríska æsku. Viðurnefnið alræmda varð til: „Elvis the Pelvis“, ellegar „Elli hnykkur“. Það var eins og að skvetta vatni á gæs, Elvis og hnykkirnir voru búnir að hasla sér völl. Um þá sögu alla þarf ekki að fjölyrða. Leitun er að vinsælli söngvara í sögunni. Gaman er að rifja upp framgöngu Elvisar í þætti Mil- tons Berles á þessum degi fyrir 55 árum á YouTube. Elv- is söng ekki bara Hound Dog með þessum líka til- þrifum, heldur spjölluðu þeir Berle saman í drjúga stund á eftir. Uppnám stúlknanna í sjónvarpssal fór að vonum ekki framhjá stjórnandanum og spurði hann Elvis að flutn- ingi loknum hver galdurinn væri. „Ef ég hreyfði fæt- urna svona myndi ég þá næla mér í stelpur?“ „Ég veit ekki með stelpurnar,“ svaraði Elvis um hæl, „en þar sem þú ert kominn á þennan aldur myndi þetta í öllu falli örva blóðflæðið hjá þér.“ „Þennan aldur,“ hummaði Berle hissa en hann var tæplega fimmtugur á þessum tíma. „Mér líður bara eins og notuðum bíl.“ Berle var hvergi af baki dottinn og spurði Elvis næst í trúnaði hvernig hann fengi stelpurnar til að hljóða svona. „Herra Berle, ég er ekki viss um að þér myndi líka það.“ „Hvað áttu við?“ hváði Berle. „Ég kann ekki við stelpur sem veina, rífa sig úr föt- unum og reyna að kyssa mig,“ svaraði Elvis, ískaldur. Nú var Berle öllum lokið. „Einmitt það. Einhver hlýt- ur að hafa troðið á höfðinu á þér – á bláum rúskinns- skóm ... (e. Blue Suede Shoes).“ Hound Dog eftir Jerry Leiber og Mike Stoller, kom upprunalega út á b-hlið smáskífunnar Don’t Be Cruel í júlí 1956. Bæði lög komust á topp bandaríska vinsælda- listans sem er fáheyrt. Hound Dog seldist í fjórum millj- ónum eintaka og sat í ellefu vikur á toppi vinsældalist- ans, sem var met á þeim tíma. Lagið sem velti því úr sessi var Love My Tender, einnig með Elvis Presley. orri@mbl.is Elvis hnykkir inn Elvis Presley í essinu sínu í þætti Miltons Berles 1956. ’ Ég kann ekki við stelpur sem veina, rífa sig úr fötunum og reyna að kyssa mig Spjallþáttakóngurinn Milton Berle, ábyrgð hans er mikil. Á þessum degi 5. júní 1956

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.